summaryrefslogtreecommitdiff
path: root/17025-8.txt
diff options
context:
space:
mode:
Diffstat (limited to '17025-8.txt')
-rw-r--r--17025-8.txt4949
1 files changed, 4949 insertions, 0 deletions
diff --git a/17025-8.txt b/17025-8.txt
new file mode 100644
index 0000000..276d374
--- /dev/null
+++ b/17025-8.txt
@@ -0,0 +1,4949 @@
+The Project Gutenberg EBook of Sæfarinn, by Jules Verne
+
+This eBook is for the use of anyone anywhere at no cost and with
+almost no restrictions whatsoever. You may copy it, give it away or
+re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included
+with this eBook or online at www.gutenberg.org
+
+
+Title: Sæfarinn
+ Ferðin kring um hnöttinn neðansjávar
+
+Author: Jules Verne
+
+Release Date: November 8, 2005 [EBook #17025]
+
+Language: Icelandic
+
+Character set encoding: ISO-8859-1
+
+*** START OF THIS PROJECT GUTENBERG EBOOK SÆFARINN ***
+
+
+
+
+Produced by Jeroen Hellingman, Jóhannes Birgir Jensson and
+the Online Distributed Proofreading Team at
+https://www.pgdp.net
+
+
+
+
+
+
+
+SÆFARINN
+
+
+(Ferðin kring um hnöttin neðansjávar)
+
+
+EFTIR
+JULES VERNE
+
+
+
+
+KOSTNAÐARMAÐUR
+PÉTUR G. GUÐMUNDSSON
+
+REYKJAVÍK
+1908
+
+
+PRENTSMIÐJAN GUTENBERG
+
+ * * * * *
+
+Sæfarinn.
+
+(Ferðin umhverfis hnöttinn, neðansjávar).
+
+Eftir
+Jules Verne.
+
+
+
+
+I.
+
+
+Það var árið 1866, að sá kvittur kom upp og gekk staflaust um öll lönd,
+að vart hefði orðið við sjóskrímsl eitt mikið og ilt.
+
+Sumum fanst nú samt fátt um þessa sögu, sem heyrðu hana í fyrsta sinni.
+Sögðu þeir þetta mundu vera sæorminn alkunna, sem kemur í ljós á hverju
+ári og hverfur aftur án þess að gera nokkrum manni mein.
+
+En í þetta sinn urðu margir að láta sannfærast, þó ekki væru þeir
+auðtrúa, því skrímsl þetta var séð af mörgum skipum og hvað eftir annað.
+Einu sinni sást það frá tveim skipum í senn, og var svo skamt frá þeim,
+að gera mátti áætlun um stærð þess. Eftir því sem sagan sagði, var það
+miklu meira vexti en nokkurt annað dýr, dautt eða lifandi, sem þekst
+hefir í höfum jarðarinnar. Það fylgdi líka sögunni, að það væri ærið
+hraðfara, því að á hálfsmánaðarfresti kom það í ljós á tveim stöðum með
+þúsund mílna millibili.
+
+Sögur um sjóskrímslið vóru á hvers manns vörum. Blöðin fluttu langar
+greinar um það, og gamanvísur vóru sungnar um það á leikhúsunum.
+
+Og lærðir menn háðu harðar rimmur. Þeir gátu ekki borið á móti því að
+skrímslið væri til, svo margir menn höfðu séð það og svo var hitt, að í
+undirdjúpum hafsins þóttust menn vita, að vera mundi risavaxinn gróður
+og var ekki ólíklegt að í þeim miklu skógum hefðust við skrímsl og dýr
+ýmisleg, sem öllum væru ókunn. Það var því ekki ólíklegt, að þetta
+skrímsl hefði hröklast þaðan af tilviljun og flækst upp að yfirborðinu.
+
+En þá var eftir að vita hvers konar skepna þetta var. Var það risavaxinn
+kolkrabbi eða var hægt að skipa því í flokk með hvölunum?
+
+Sagnirnar sem um það gengu vóru margar og misjafnar, svo lítið var á
+þeim að byggja. Sögurnar um sjóskrímslið, sem gengið höfðu í blöðum og
+manna munni bárust nú inn í vísindaleg tímarit og urðu þar óþrotlegt
+þrætuefni.
+
+Það var á öndverðu ári 1867, að ég var á heimleið til Parísar úr
+vísinda-leiðangri í Nebraska, og var staddur í Nýju-Jórvík. Tíðindamenn
+stórblaðanna þefuðu mig uppi þegar í stað, og leituðu álits míns um mál
+þetta, sem þá var efst á baugi og mest um talað. Þótti þeim mikið undir
+því komið, hvað ég segði um það, því ég var prófessor við
+náttúrugripasafnið í París og höfundur bókarinnar: "Um leyndardóma
+undirdjúpanna". Ég gat ekki skorast undan því með öllu, en reyndi þó að
+forðast allar staðhæfingar. Bar ég það fyrir, að enn væri ókunnugt um
+eðli dýrsins og náttúru. Þó þótti mér mest líkindi til, að þetta væri
+risavaxið náhveli, eftir öllum líkum að dæma.
+
+Að dýrið væri hvalakyns, og einmitt af þessu tægi, réði ég af atviki,
+sem kom fyrir, meðan ég stóð við í Nýju-Jórvík.
+
+Það var í aprílmánuði, að gufuskipið "Skotland", eitt með stærstu og
+fegurstu skipum Cunard-línunnar, var á ferð úti í Atlantshafi, svo sem
+150 mílur vestur af Englands-ströndum. Veður var kyrt og fagurt og
+skipið klauf sjóinn með jöfnum hraða. Þá vissu menn ekki fyr til, en
+skipið kiptist við, eins og það hefði höggvið niður eða rekist á
+eitthvað. Farþegarnir urðu þegar óttaslegnir og Anderson skipstjóri
+átti fult í fangi með að telja um fyrir þeim. Mikil hætta gat varla
+vofað yfir, því innanrúmi skipsins var skift í 7 hluta með vatnsheldum
+milligerðum, svo þó gat kæmi á skipið, og eitt rýmið fyltist sjó, hlaut
+það að fljóta eftir sem áður.
+
+Svo fór skipstjóri niður hið bráðasta, að gæta vegsummerkja. Sá hann þá,
+að sjór féll inn í 5. rými, til mikilla muna. Til allrar hamingju vóru
+gufukatlarnir ekki þar, því hefði svo verið og sjór komist í eldstórnar,
+gat verið voði á ferðum.
+
+Anderson stöðvaði skipið og lét háseta einn fara fyrir borð og kafa
+undir það. Hann kom upp aftur eftir fáar mínútur og sagði, að rifa mikil
+væri á botni skipsins, á að gizka 3 álna löng. Engin tiltök vóru á því,
+að gera við svo mikinn leka. "Skotland" varð því að halda áfram
+ferðinni, þó með minni hraða en áður, og náði heilu og höldnu höfn í
+Liverpool þrem dögum eftir áætlun. Skipið var hið bráðasta lagt í þurkví
+og menn fengnir til að athuga skemdirnar. Þeir ætluðu varla að trúa
+eigin augum! Svo sem 4 álnum fyrir neðan yfirborðslínu var stóreflis
+glompa á skipinu, í lögun eins og jafnhliða þríhyrningur; járnþynnurnar
+kliptar sundur svo rækilega og snyrtilega eins og það væri gert með
+götunarvél.
+
+Það dýr, sem þessu hafði valdið, hlaut að hafa lagtönn mikla og
+hræðilega, og afar tröllaukið hlaut það að vera, úr því það gat rekið
+gat á járnskipið svo snögglega, að naumast varð við vart. Það hlaut líka
+að hafa góð sundfæri, fyrst það gat losað tönnina og hörfað frá nógu
+fljótt eftir áreksturinn.
+
+Þessi atburður vakti mikla athygli um allan heim, og umtal manna um
+sjóskrímslið breyttist nokkuð. Áður höfðu menn litið á það, sem
+skringilegan fyrirburð, kveðið um það háðvísur og hent gaman að því. En
+nú hætti mönnum að standa á sama um það. Því var kent um urmul af
+skipbrotum, sem ekki var fullkunnugt um, og sjófarendur vóru ekki
+óhultir um sig fyr en þeir höfðu þurt land undir fótum.
+
+Blöðin lýstu skrímslinu sem skæðasta mannfélags-óvætt, og í öllum
+mentuðum löndum var skorað á stjórnirnar, að gera út skip til að elta
+það og ráða það af dögum.
+
+England gerði ráðstafanir til framkvæmda á þessu, en Ameríka varð fyrri
+til, að ferðbúa skip. Um það leyti, sem skipið átti að leggja af stað,
+kom bréf til mín frá flotamálaráðaneytinu ameríska. Var mér boðið þar
+að fara með gufuskipinu "Abraham Línkoln" í hinn fyrirhugaða leiðangur,
+og fylgdi það með, að Farragút flotaforingi hefði tilbúinn klefa handa
+mér á skipinu.
+
+Áður en mér barst þetta bréf, hafði ég ekki ætlað mér annað fyrir, en
+fara til Parísar og setjast að í litla húsinu, sem ég átti í
+Grasafræðisgarðinum, og njóta lífsins meðal vina og kunningja
+og--safnanna minna. Þegar ég var búinn að lesa bréfið breyttist þessi
+fyrirætlun mín óðara. Mér fanst ég mega til, að fara að elta náhvelið,
+eins og það væri sjálfsögð skylda eða öllu heldur hlutverk mitt í
+lífinu.
+
+Og svo hugsaði ég sem svo: "allar leiðir liggja til Rómaborgar"; hví
+mátti ekki segja það sama um París. Nú skyldi blessuð skepnan verða svo
+hugulsöm, að láta okkur ná sér nálægt ströndum Frakklands. Ekki var það
+óhugsandi.
+
+"Konsæll!" kallaði ég.
+
+Konsæll var þjónn minn. Hann hafði fylgt mér á öllum ferðalögum, og var
+mér trúr og hollur, enda var mér vel til hans. Konsæll var ættaður og
+upprunninn frá Flæmingjalandi, og líkur löndum sínum í háttum og
+skapferli. Hann var framúrskarandi hugrór maður, en þó djarfur og
+dáðrakkur. Hann varð aldrei hissa á nokkrum hlut, skifti aldrei skapi,
+var friðsamur og háttprúður, en hraustur og handtakagóður, ef til þess
+kom. Hann var ákaflega vanafastur og vanakær. Í fám orðum,--Konsæll var
+hreinasta fyrirmynd, sem þjónn. En Konsæll hafði líka kreddur fyrir sig,
+og lét aldrei af þeim. Aldrei nefndi hann mig í ávarpi eða viðtali öðru
+vísi en í þriðju persónu.
+
+"Konsæll!" endurtók ég, og fór að taka saman dót mitt, því nú var kominn
+í mig ferðahugur.
+
+Konsæll var mér eftirlátur,--óhætt var um það. Ég var ekki vanur að
+spyrja, hvort hann vildi fylgja mér á ferðum mínum, það var sjálfsagður
+hlutur. En nú stóð nokkuð óvanalega á. Það var ófyrsjáanlegt hve löng
+þessi ferð mundi verða, og svo áttum við í vændum, að fást við þessa
+voðaskepnu, sem gat molað stærsta hafskip eins og eggskurn. Hvað skyldi
+Konsæll segja til þess?
+
+"Konsæll!" kallaði ég enn.
+
+"Var húsbóndinn að kalla?", svaraði Konsæll og vatt sér inn um dyrnar.
+
+"Já hafðu alt tilbúið. Við leggjum af stað að tveim stundum liðnum."
+
+"Eins og húsbóndanum þóknast", svaraði Konsæll ofur rólega.
+
+"En það liggur mikið á. Láttu í koffortið mitt svo mikið, sem í það
+kemst af fötum, nærklæðnaði og hálslíni. Vertu nú bara fljótur."
+
+"En safngripina húsbóndans?"
+
+"Safngripina mína--sendum við til Parísar."
+
+"Eigum við þá ekki að fara til Parísar?"
+
+"Ha? Ó-nei, ekki nú þegar," svaraði ég út í hött.
+
+"Gott".
+
+Við förum dálítinn útúrkrók, Konsæll, við tökum okkur far með "Abraham
+Línkoln".
+
+"Eins og húsbóndanum þóknast".
+
+"Þú veizt víst hvað stendur til,--að við ætlum að fara að eltast við
+óargadýr, þetta illræmda náhveli, og þú mátt geta því nærri, að höfundur
+bókarinnar: "Um leyndardóma undirdjúpanna",--sem er tvö bindi í 4. bl.
+broti--getur ekki hafnað því tilboði, að verða með í förinni. Þetta er
+heiðarlegt hlutverk, en hættulaust er það ekki. Ómögulegt að segja, hvað
+fyrir getur komið.--Getur verið, að dýrið sé ilt viðureignar, en
+Farragút flotaforingi, er nú líka karl í krapinu."
+
+"Ég ætla að fara með húsbóndanum", svaraði Konsæll rólega.
+
+"Hugsaðu þig nú vel um, Konsæll minn", sagði ég, "þetta getur orðið
+óhappa ferð. Það getur vel farið svo, að við komum ekki lifandi aftur".
+
+"Eins og húsbóndanum þóknast!"
+
+Að tveim stundum liðnum stigum við á skip. Ég sagði Farragút
+flotaforingja nafn mitt og svo var mér vísað á klefann, sem mér var
+ætlaður. Á þilfarinu iðaði alt í einni bendu, fólk og farangur, því þá
+var komið að burtfararstundu.
+
+"Abraham Línkoln" var einkar fagurt skip, hraðskreið freigáta af nýjustu
+gerð. Gufuþenslan í katlinum var komin á hámark.
+
+Farragút lét kasta landfestum og kallaði niður í vélrýmið:
+
+"Áfram!"
+
+Vélin komst á hreyfingu og tók að snúa skrúfuspöðunum með sívaxandi
+hraða.
+
+Á ströndinni stóð múgur og margmenni, og æpti endalaus húrraóp meðan
+skipið var að skríða út höfnina, og veifaði höttum og vasaklútum, til að
+veita okkur síðustu fararheillaóskirnar.
+
+
+
+
+II.
+
+
+Við héldum suður með ströndum Suður-Ameríku að austanverðu. Í byrjun
+júlí fórum við fyrir suðurodda Ameríku og stýrðum vestur í Kyrrahafið,
+því að norðan til í því hafði hvalsins orðið vart síðast.
+
+Farragút flotaforingi hafði með sér öll áhöld og tæki, sem notuð eru
+við hvalaveiðar, sem eðlilegt var, úr því hann ætlaði að veiða hval; en
+hann hafði og meira. Honum hafði tekist að ráða til fararinnar, konung
+allra hvalveiðamanna, Ned Land.
+
+Ned Land var frá Kanada. Hann var afburðamaður í iðn sinni. Hann var
+sjóngóður, snarráður, ófyrirleitinn og hugrakkur, hverjum manni fremur.
+Og svo fimur var hann að beita skutli, að fáum hvölum var undankomu
+auðið, sem hann komst í skotmál við.
+
+Eins og aðrir Kanadamenn talaði hann frönsku jafn vel og ensku. Ég held
+honum hafi þótt gaman að tala frönsku. Það var víst helzt þess vegna, að
+hann gaf sig meira að mér en öðrum á þessari löngu sjóferð. Annars var
+hann heldur fátalaður.
+
+Dagarnir vóru langir og leiðir á þessari úthafsför. Ned Land var oft á
+vakki fram á skipinu og horfði á hvernig það klauf öldurnar fyrir
+ofurafli gufunnar. Ég gaf mig oft á tal við hann og þá spjölluðum við um
+alla heima og geima. Brátt varð ég þess var, að hann lagði lítinn trúnað
+á sögurnar um náhvelið.
+
+"Ég hefi elt ótal hvali", sagði hann, "skutlað fjölda og drepið marga,
+en engan hefi ég séð svo stóran eða rammefldan, að honum væri trúandi
+til, að reka gat á stórt járnskip".
+
+Ég reyndi að sannfæra hann með því, að leiða honum fyrir sjónir, hve oft
+það hefði komið fyrir á seinni öldum, að risastór sjóskrímsli hefðu sést
+og stundum náðst.
+
+Ned Land, sem sí og æ tottaði tóbakspípuna, gerði þá ekki annað, en
+spýta út um annað munnvikið, og nöldra með fyrirlitningarróm: "Tómir
+kolkrabbar!"
+
+Ég reyndi þá að sannfæra hann um allar þær líkur, sem fengnar vóru með
+tilstyrk vísindanna fyrir því, að náhveli væru til, og svo benti ég
+honum á það, hvað fyrir hafði komið upp á síðkastið, og vitnisburð
+fjölda merkra manna um það mál, manna, sem hann þekti eins vel og ég.
+
+Ned Land hleypti brúnum og horfði á mig með háðsbros í munnvikunum. Hann
+lagði ekki trúnað á eitt einasta orð, sem ég sagði.
+
+"En heyrið þér þá", sagði ég loks, og hugsaði, að nú skyldi til skarar
+skríða, "hvaða grein gerið þér þá fyrir skemdinni á "Skotlandinu"?"
+
+Nú var Ned Land kominn í klípu!
+
+"Það er", stamaði hann, "það er . . . ."
+
+"Hvað þá?"
+
+"Haugalygi frá upphafi til enda".
+
+Meira hafði ég ekki upp úr honum; en ekki varð okkur þetta að
+óvildarmáli.
+
+Farragút flotaforingi hafði heitið tvö þúsund dala launum, þeim manni,
+sem fyrstur kæmi auga á náhvelið. Óðar en komið var inn í Kyrrahafið
+fóru allir að skygnast eftir því. Yfirmenn og hásetar vóru sí og æ uppi
+á þilfari, hvort sem þeir áttu að vera þar eða ekki. Þeir sem höfðu
+sjónauka miðuðu þeim út yfir sjónhringinn alla vega, en þeir, sem þá
+höfðu ekki, urðu að beita berum augum. Þeir sem í förinni vóru, höfðu
+auðvitað allan hugann á náhvelinu, og þá drógu ekki tvö þúsund dalirnir
+úr áhuganum,--löngunin eftir því, að "verða fyrstur" hafði gagntekið
+alla eins og megn hitasótt.
+
+Ég mændi út yfir hafið eins og hinir, og hafði ekki síður en þeir hugann
+á náhvelinu; en mig langaði mest að vita hverrar tegundar dýr þetta
+væri, og svo ákafur var ég orðinn upp á síðkastið, að ég stóð á þiljum
+uppi frá morgni til kvölds, og gaf mér varla tíma til að matast. En
+þegar svo langt var komið, þá fanst Konsæl það vera skylda sín, að gefa
+mér viðvörun. Með afar kurteisum og fáguðum orðtækjum bað hann mig að
+ofreyna ekki sjónina lengur á þessu.
+
+Samt gat Konsæll ekki að því gert, að hann hafði glöggar gætur á því,
+hvort ekki sæist neitt sérkennilegt á sjónum. Ned Land var sá eini, sem
+lét sig þetta engu skifta. Það var eins og hann forðaðist að líta út á
+sjóinn. Ég mátti til að setja ofan í við hann fyrir það, því vel gat það
+komið að liði, að hann var öllum mönum sjónhvassari, hefði hann bara
+fengist til að beita augunum.
+
+"Það er til einkis", sagði hann, "við önum þetta í blindni hvort eð er.
+Það er sagt að þessi undraskepna hafi sést í Kyrrahafinu. Það eru tveir
+mánuðir liðnir síðan, og hvar er það nú? Ef það er eins fljótt í förum
+eins og sagt er, þá er hætt við að það hafi fært sig eitthvað síðan".
+
+Það var í raun og veru útlit fyrir, að Ned Land hefði rétt fyrir sér.
+Freigátan strikaði úthafið þvert og endilangt, en enginn varð var við
+náhvelið.
+
+Og þar kom að lokum, að áhuginn fór að dofna. Menn fóru að verða
+þreyttir á þessu tilbreytingalausa og árangurslausa ferðalagi. Þeim fór
+að leiðast, að horfa út yfir hafið autt og endalaust! Það var hvort sem
+var alveg árangurslaust! Smátt og smátt fóru menn að efast um, að þessi
+undraskepna væri til í raun og veru, og svo mikil brögð urðu að þessu,
+að skipshöfnin krafðist þess að síðustu, að haldið yrði heim og leitinni
+hætt.
+
+Það var komið fram í nóvembermánuð og við vórum staddir vestan til í
+Kyrrahafinu í nánd við Japan. Þá ákvað Farragút að leitinni skyldi
+haldið áfram í þrjá daga. Yrði einkis vart að þeim tíma liðnum, ætlaði
+hann að stýra "Abraham Línkoln" heim á leið aftur.
+
+Þetta glæddi áhugann að nýju. Nú var um að gera, að nota tímann vel, ef
+það átti að lánast, að ná í þessa tvö þúsund dali. Svo var farið að
+skima eins og áður.
+
+En svo liðu þessir þrír dagar, að einskis varð vart. Fresturinn var
+útrunninn að kvöldi hins fimta nóvember og þá breytti Farragút stefnunni
+eins og hann hafði lofað og stýrði í landsuður.
+
+Ég var staddur á þilfarinu, og var að tala við Konsæl, þegar myrkrið
+færðist yfir. Tunglið óð í skýjum og varpaði flögtandi birtu yfir
+öldurnar öðru hvoru. En þess á milli grúfði niðsvart náttmyrkrið yfir
+úthafinu.
+
+"Heimskulegt flan er þessi för orðin", sagði ég, "nær hefði okkur verið
+að fara rakleitt heim."
+
+"Og raða upp safngripunum húsbóndans", sagði Konsæll.
+
+"Og þar á ofan verðum við hafðir að háði og narri!"
+
+"Það er ef til vill ekki rétt hjá mér, að segja sem svo . . . . .",
+sagði Konsæll.
+
+"Láttu það fljúga, Konsæll".
+
+"Mér datt í hug, að það væri ekki hyggilegt af mönnum, sem eru eins
+lærðir og húsbóndinn, að stofna sér . . . . .".
+
+Konsæll hætti í hálfu kafi, því upp úr miðri næturþögninni drundi
+málrómur Ned Lands alt í einu.
+
+"Hæ-hó! Sæormurinn mikli! Framundan á stjórnborða!" æpti hann í sífellu.
+
+Á einni svipstundu ruddust allir upp á þilfar; kyndarar og vélamenn
+neðan af neðsta gólfi, hvað þá aðrir.
+
+Það var að eins ein hugsun, ein spurning, sem fyrir öllum vakti: Hvað
+gat Ned Land hafa séð í biksvörtu náttmyrkrinu?
+
+Eins og tvö hundruð faðma frá skipinu var ljós blettur á sjónum,
+líkastur því, sem birtu legði þar upp úr djúpinu. Ég sá undir eins, að
+það var ekki maurildi; það var alt annar blær á þessari birtu. Skrímslið
+hlaut að vera að eins fáa faðma fyrir neðan yfirborðið, en birtan, sem
+ljómaði af því, var með öllu óskiljanleg. Ljósbletturinn var eins og
+bungumyndaður og skærastur í miðjunni.
+
+"Þetta er maurildi!" kallaði einn yfirmannanna.
+
+Ég laut fram á öldustokkinn og athugaði furðusýn þessa.
+
+"Nei", sagði ég, "maurildi ber ekki svona mikla birtu. Þetta er eitthvað
+skylt rafmagnsljósi. En sjáið þið, það hreyfist, það færist áfram, aftur
+á bak; það nálgast?"
+
+Nú hætti okkur að lítast á blikuna. Ljósbletturinn nálgaðist freigátuna
+með miklum hraða en hávaðalaust. Menn æddu um þilfarið og æptu af undrun
+og ótta.
+
+"Kyrrir!" hrópaði Farragút. "Stýrið á stjórnborða; fulla ferð aftur á
+bak!"
+
+Við þessa skipun hljóp hver maður á sinn stað, og "Abraham Línkoln"
+skreið aftur á bak í hálfhring.
+
+"Stýrið á bakborða, áfram!" drundi skipstjórinn, og freigátan rann af
+stað frá ljósblettinum.
+
+Það er að segja,--hún átti að fjarlægjast hann.
+
+En þessi undraskepna kom á eftir, með tvöfalt meiri hraða.
+
+Þetta var óskiljanlegt með öllu. Við stóðum á þilfarinu aðgerðalausir og
+orðlausir af hræðslu. Dýrið gerði meira en nálgast freigátuna, það synti
+hringinn í kringum hana, og fór hún þó með fullum hraða.--Svo hvarflaði
+það frá, svo sem mílu vegar, kom svo aftur með fleygiferð og stefndi á
+"Abraham Línkoln", staðnæmdist eins og tuttugu skref frá skipinu
+og--hvarf. Það hafði auðsjáanlega ekki farið í kaf, því birtan dvínaði
+ekki smátt og smátt, heldur þvarr alt í einu, eins og þegar ljós
+sloknar. Rétt á eftir kom það í ljós hinum megin við skipið, hvort sem
+það hefir nú synt umhverfis það eða undir kjölinn. Við máttum búast við
+árekstri þá og þegar, sem gat orðið okkur óhappadrjúgur.
+
+Nú tók ég eftir einu, sem ég hafði ekki athugað áður: Freigátan fór á
+flótta í stað þess að sækja á. Hún var ofsótt í stað þess að ofsækja. Ég
+hafði orð á þessu við Farragút flotaforingja. En hann, sem annars var
+stillingin sjálf, var nú auðsýnilega ruglaður og ráðþrota.
+
+"Svo er það", sagði hann, "en ég veit ekki hvaða óvættur þetta er, og
+þori ekki að ábyrgjast skipið í þessu myrkri, það væri blátt áfram
+heimskulegt af mér að gera það. En á morgun skiftum við um hlutverk".
+
+"Þér eruð þá viss um að þetta sé eitthvert dýr?"
+
+"Já", svaraði hann, "ekki er um það að villast; þetta er auðsjáanlega
+risavaxið náhveli. En það er þrungið rafmagni, og ef það hefir lagtönn
+eftir stærð, og löngun til að beita henni, er það áreiðanlega mesta
+skaðræðisskepna, sem nokkurn tíma hefir í söltum sjó lifað. Ég verð að
+fara varlega".
+
+Skipshöfnin var á flakki alla nóttina. Engum kom til hugar að festa
+svefn. "Abraham Línkoln" hafði ekki undan hvort sem var, og fór því með
+hálfum hraða; og náhvelið hagaði sér eftir því. Það var auðséð, að það
+ætlaði ekki að renna af hólmi.
+
+Um miðnætti hvarf það samt, eða réttara sagt, slokknaði, svo við fórum
+að halda að það hefði hundskast burtu. En einni stundu síðar heyrðist
+heljar hvinur, eins og vatni væri þeytt út um pípu með feikna afli.
+
+Á þilfarinu stóðum við Ned Land og Farragút.
+
+"Ned Land", kallaði flotaforinginn, "hafið þér oft heyrt hvali öskra?"
+
+"Já", anzaði Ned Land, "en ég hefi ekki heyrt hval öskra fyr, sem ég
+hefi grætt á tvö þúsund dali, fyrir það eitt að sjá hann".
+
+"Tvö þúsund dalina skuluð þér fá", sagði flotaforinginn, "en ég vil fá
+að vita hvort það er líkt þessu, þegar hvalir þeyta sjó út um
+blástursholuna?"
+
+"Já, svipað því er þetta hljóð", svaraði Ned, "en miklu sterkara".
+
+Klukkan tvö sást ljósbletturinn aftur í nokkurri fjarlægð frá skipinu,
+og við heyrðum greinilega að dýrið lamdi sjóinn með sporðinum.
+
+Á freigátunni var hafður viðbúnaður mikill. Veiðarfærum var raðað með
+borðum, svo hægt væri að ná til þeirra hvenær sem á þyrfti að halda. Í
+framstafn voru látnar tvær fallbyssur. Var önnur svo gerð, að með henni
+mátti skjóta skutli, en hin var fyrir sprengikúlur.
+
+Klukkan 6 um morguninn fór að elda aftur. En þegar fyrsta sólarbjarmanum
+sló á loftið, hvarf birtan af hvalnum aftur í einum svip. Stundu síðar
+var orðið albjart, en þá lagðist yfir þoka, svo niðdimm, að varla sá út
+úr augunum.
+
+Ég fór upp í reiðann, svo hátt sem kaðlaþrepin náðu, en sumir af
+foringjunum fóru alveg upp að sigluhúnum. Svo störðum við út í þokuna,
+sem valt í hægðum sínum yfir hafflötinn.
+
+Ned Land varð aftur fyrstur til að sjá dýrið.
+
+"Sæormurinn!" æpti hann. "Afturundan, á bakborða!"
+
+Góðan kipp frá skipinu grilti í dökkleitt ferlíki, sem stóð eins og alin
+upp úr sjónum. Dýrið lamdi sjóinn svo afskaplega með sporðinum, að
+drifhvítur froðuferill sást aftur af því langa leið.
+
+Freigátan nálgaðist hvalinn, og gafst mér nú færi á að athuga hann
+nákvæmlega. Frásagnirnar um lengd hans voru auðsjáanlega orðum auknar.
+Hann var á að gizka 100 faðma langur. Skrokkurinn var rennilegur, svo
+ætla mátti að hann væri afar-hraðsyndur. Hann þeytti öðru hvoru sjó og
+andgufu upp um blástursholuna; stóð sú stroka oft yfir 100 fet í loft
+upp. Ég var nú ekki lengur í vafa um það, að þetta væri eins konar
+hvalur.
+
+Skipverjar biðu með óþolinmæði eftir fyrirskipunum skipherrans. Farragút
+virti hvalinn fyrir sér grandgæfilega og kallaði svo á vélstjórann:
+
+"Hafið þér kynt undir kötlunum?" spurði hann.
+
+"Kyndið þér meira! Eins og katlarnir þola!"
+
+"Já", svaraði vélstjórinn.
+
+Menn æptu af fögnuði við þessa skipun. Nú átti til skarar að skríða.
+Kolsvartir reykjarmekkir ultu upp úr reykháfum skipsins, en
+gufukatlarnir nötruðu svo fyrir ofurmagni gufunnar, að alt var sem á
+þræði léki.
+
+Hvalurinn fór ekki úr stað, fyr en ekki voru nema 50 faðmar milli hans
+og skipsins; þá tók hann viðbragð og synti undan með sama hraða og
+skipið skreið. Stóð svo þessi eltingaleikur í þrjá stundarfjórðunga að
+hvorki dró sundur né saman. Var ekki útlit fyrir að neitt ynnist með
+þessu móti.
+
+Farragút réð sér ekki fyrir reiði. Hann klóraði sér ákaft fyrir ofan
+eyrað, svo húfan fór aftur á hnakka.
+
+"Ned Land!" hrópaði hann.
+
+Ned Land gekk til hans.
+
+"Sýnist yður ráðlegt að skjóta út bátum?" spurði flotaforinginn.
+
+"Fjarri fer því", svaraði Ned. "Hér er ekki við lamb að leika. Þessi
+skepna fer að eigin geðþótta og lætur ekki leika á sig".
+
+"Hvað er þá til ráða?"
+
+"Ekkert annað en auka hraðann. Ég ætla að setjast undir bugspjótið með
+skutulinn minn, og nái ég til dýrsins, þá skal ég hitta".
+
+"Vélstjóri!" hrópaði flotaforinginn, "leggið þyngra á öryggishanana."
+
+Ned Land settist undir bugspjótið. Öryggishanarnir voru þyngdir og kolum
+mokað á eldana að nýju. Skrúfan fór fjörutíu og þrjá snúninga á mínútu
+og "Abraham Línkoln" fór hálfa tíundu sæmílu á klukkustundinni.
+
+En náhvelið synti líka hálfa tíundu mílu á klukkustundinni.
+
+Gekk svo heila klukkustund, að enginn munur varð á millibilinu. Var
+þetta smán mikil fyrir hraðskreiðasta skip ameríska flotans, enda voru
+skipverjar alveg hamslausir. Þeir stóðu fram í stafni og jusu bölbænum
+og formælingum yfir dýrið, en flotaforinginn reitti hárið af kollinum á
+sér af bræði.
+
+Enn var kallað á vélstjórann.
+
+"Er gufuþenslan á hámarki?" spurði foringinn.
+
+"Já", svaraði vélstjórinn.
+
+"Hefir verið þyngt á öryggishönunum?"
+
+"Já, þenslan er hálf sjöunda loftþyngd[1]".
+
+"Látið hana verða 10 loftþyngdir!"
+
+Þetta var skipun, sem Vesturheimsmanni sómdi.
+
+"Konsæll!" kallaði ég, "nú springur skipið".
+
+"Eins og húsbóndanum þóknast", svaraði Konsæll.
+
+Ég verð að segja eins og satt er, að á þessu augnabliki var mér sama, þó
+ég ætti það á hættu.
+
+"Abraham Línkoln" jók skriðinn. Hann gnötraði allur frá sigluhún ofan í
+kjöl og reykháfarnir virtust vera alt of þröngir, svo þykkur var
+mökkurinn, sem ruddist upp úr þeim í sífellu. Þrýstimælirinn sýndi 10
+loftþyngdir, en skriðstikan 10 mílna hraða.
+
+En þetta kom fyrir ekki, því hvalurinn synti líka með 10 mílna hraða,
+alveg þrautalaust.
+
+Ég get ekki lýst tilfinningum mínum á þessari stundu. Ég var gagntekinn
+af einhverju eirðarleysi. En Ned Land sat á sínum stað, með skutulinn
+reiddan um öxl. Þar kom að lokum, að saman fór að draga öðru hvoru.
+
+"Við drögum hann uppi, við drögum hann uppi!" æpti Ned og laut fram með
+reiddan skutulinn.
+
+En í sömu svipan tók dýrið viðbragð og rann áfram, með svo miklum hraða,
+að sjálfsagt mundi nema 15 mílum á klukkustund. En ekki nóg með það, það
+synti líka hringinn í kring um freigátuna, og fór hún þó með fullum
+hraða. Skipverjar voru hamslausir af bræði. Nú var komið hádegi og við
+vorum engu nær en um morguninn. Farragút sá að svo búið mátti ekki
+lengur standa og hugsaði sér að taka til annara ráða.
+
+Fallbyssan á framstafni skipsins var hlaðin í skyndi og henni miðað á
+dýrið. Skotið reið af, en kúlan fór yfir hvalinn, og var það ekki að
+undra, því færið var 1000 faðmar.
+
+"Aftur!" kallaði flotaforinginn. "Fimm hundruð dali skal ég gefa hverjum
+þeim, sem getur lamað þessa djöfuls óvætt með skoti." Þá gekk fram gamall
+maður gráskeggjaður,--mér er sem ég sjái hann enn,--hvasseygur var hann
+og æðrulaus á svip, en andlitsdrættir allir sem í stein væru markaðir.
+Hann gekk að fallbyssunni, hagræddi henni og miðaði lengi. Loks drundi
+skotið og fylgdi því fagnaðaróp skipverja.
+
+Kúlan hitti hvalinn, en--undur og bísn!--hún hrökk af skrokknum á honum
+eins og hagl af húsþaki og féll í sjóinn langa leið frá.
+
+"Er þá skepna þessi klædd með kvartils-þykkri járnhúð?" sagði gamli
+maðurinn, og var heldur ófrýnn.
+
+"Fari það í sjóðbullandi!", varð Farragút á orði. Nú var eftirsóknin
+hafin á nýjan leik.
+
+"Ég held áfram þangað til freigátan springur í loft upp", sagði
+flotaforinginn við mig.
+
+Við vórum að vona, að dýrið þreyttist af þessari aflraun, þegar til
+lengdar léti. En því var ekki að skifta.
+
+Svo leið hver klukkustundin eftir aðra, að það hægði ekki vitund á sér.
+
+Þetta var voðalegt kapphlaup. Á þessum eina degi fórum við áreiðanlega
+frekar 250 sæmílur. Þó vórum við engu nær en daginn áður. Svo kom nóttin
+og niðamyrkur lagðist yfir úthafið.
+
+Ég hugsaði að þessi viðureign væri nú á enda og allar fyrirætlanir okkar
+að engu orðnar.
+
+En klukkan 11 um kvöldið sást rafljósbjarminn enn á ný, í lítilli
+fjarlægð. Það var því líkast, sem náhvelið lægi kyrt, og væri mók á því
+eftir áreynsluna. En það var tækifæri, sem Farragút ætlaði ekki að láta
+ónotað. Hann rendi nú skipinu í áttina þangað, sem hvalurinn lá. Ned
+Land kom sér fyrir undir bugspjótinu; hann hafði oft fengist við það
+áður, að læðast að sofandi hvölum.
+
+Skipið skreið nú ofurhægt og svo hávaðalaust, sem unt var. Þegar ekki
+vóru eftir nema 150 faðmar að hvalnum, var vélin stöðvuð. Menn stóðu
+kyrrir og héldu niðri í sér andanum. Ég stóð í stafninum, við bugspjótið
+og hallaðist fram á borðstokkinn. Fyrir neðan mig sá ég hvar Ned Land
+sat, með skutulinn reiddan um öxl, reiðubúinn að kasta honum, hvenær
+sem færi gæfist.
+
+Alt í einu tók hann viðbragð og þeytti skutlinum. Ég heyrði glamur, eins
+og skutullinn hefði lent á einhverju hörðu. Rafmagnsbirtan af dýrinu
+hvarf, en tvær voðalegar vatnsgusur hvolfdust ofan á þilfar
+freigátunnar, með svo miklu afli, að alt lauslegt fór um koll og
+skolaðist til og frá um þilfarið, eða féll út, bæði menn og munir. Ég
+fann að skipið kiptist við afar-snögt, og áður en ég náði handfestu á
+nokkrum hlut, steyptist ég á höfuðið í sjóinn.
+
+Þetta var ljóta kafförin; þó kom ekkert fát á mig, því ég er góður
+sundmaður, þegar ég segi sjálfur frá. Þegar mér skaut upp aftur fór ég
+að litast um eftir freigátunni. Höfðu þeir nú tekið eftir því að ég féll
+útbyrðis?
+
+Í austurátt sá ég móta fyrir ferlíki, sem fjarlægðist óðum.
+
+"Hjálp! Hjálp!" hrópaði ég.
+
+En skipið færðist sífelt fjær. Ég sá það á því, að rauða ljósið á
+bakborða varð æ daufara og daufara. Mér var erfitt um sundið, því fötin
+drógu mig niður. Ég ætlaði að fara að sökkva, en þá fann ég að þrifið
+var í herðarnar á mér og mér var haldið uppi.
+
+"Ert það þú, Konsæll", stundi ég upp, "Þú hefir þá fallið fyrir borð
+líka".
+
+"Ég hljóp út á eftir húsbóndanum".
+
+"En hvað er þá orðið um skipið?" spurði ég.
+
+"Það getum við ekki hirt um frekar", svaraði Konsæll. "Þegar ég hljóp
+fyrir borð heyrði ég sagt, að skrúfan og stýrið hefði brotnað".
+
+Þetta var engin feginsfrétt; en hvað sem því leið, urðum við að reyna að
+bjarga lífinu á einhvern hátt.
+
+Konsæll hjálpaði mér til að komast úr fötunum; svo syntum við til
+skiftis, þannig, að sá sem hvíldi sig, lá á bakinu og hélt sér í hinn.
+
+En svona gat það ekki gengið til lengdar. Hve lengi við höfum synt veit
+ég ekki, en ég man, að ég var orðinn ákaflega þreyttur. Ég gat varla
+haldið vitunum upp úr og var farinn að drekka sjó ákaft.
+
+Þá gægðist tunglið fram undan skýjunum og brá birtu yfir öldurnar. Var
+eins og ég hrestist við það nokkur augnablik. Ég lyfti upp höfðinu og
+svipaðist um eftir freigátunni. Var hún þá komin svo langt, að ég sá að
+eins móta fyrir henni. Nú misti ég þróttinn að fullu; ég var að sökkva
+og heyrði óglögt að Konsæll var að kalla á hjálp.
+
+En þá heyrði ég svarað einhversstaðar!
+
+"Heyrðir þú þetta?" umlaði ég.
+
+"Já", svaraði Konsæll, og gerði nú sitt ýtrasta til að hrópa "hjálp" út
+yfir eyðimörku hafsins.
+
+Aftur var svarað og ekki langt undan. Hvað gat þetta verið?
+
+Nú gat ég ekki haldið mér uppi lengur. Ég varð að eins var við, að ég
+var dreginn af stað, rakst á eitthvað, sem þétt var fyrir og að mér var
+tosað upp úr sjónum,--svo misti ég meðvitundina.
+
+Þegar ég raknaði við til meðvitundar aftur, fann ég að verið var að núa
+mig í ákafa.
+
+"Konsæll!" kallaði ég af veikum mætti.
+
+"Húsbóndinn hringir!" heyrði ég að sagt var í málróm Konsæls. En maður
+sá, sem laut ofan að mér var ekki Konsæll.
+
+"Ned!" sagði ég.
+
+"Rétt er það", svaraði hvalveiðakóngurinn.
+
+"Hefir þú þá fallið fyrir borð líka?"
+
+"Já", svaraði Ned, "en ég var svo heppinn að hitta strax á fljótandi
+eyju".
+
+"Eyju?"
+
+"Já,--eða sama sem, nefnilega sæorminn. Nú skil ég hvers vegna
+skutullinn minn hrökk af dýrinu. Náhvelið þitt er búið til úr
+hnoðnegldum járnþynnum, hr. prófessor".
+
+Ég reis upp í flýti. Þetta dýr eða--hvað það átti að heita--þessi
+hlutur, sem við vórum staddir á, var hálfur upp úr. Við hlið mér sat
+Konsæll hálf rænulaus og illa útlítandi, ekki síður en ég. Ég fór nú að
+athuga skepnu þessa. Þetta var ekki dýr, það var af og frá! Um það var
+ekki lengur að villast, að það var gert úr hnoðnegldum járnþynnum, eins
+og Ned Land sagði.
+
+Þetta var ekkert náttúruafbrigði, heldur eitthvað enn furðulegra. Það
+var einhver "ógerningur", gerður af manna höndum.
+
+"Neðansjávarskip!" varð mér að orði. "Snildarlega gert, með afar-sterkar
+vélar!--Við erum þá ekki langt frá mönnum; okkur er borgið".
+
+Ned Land var á öðru máli um það, og lá við að við færum að trúa því, að
+hann hefði rétt fyrir sér. Við börðum á járnþynnurnar af öllu afli og
+Ned Land stappaði með járnbryddu stígvélunum alt hvað af tók. Þó urðum
+við einskis hljóðs varir inn í skipinu.
+
+"Það verður skemtilegt, þegar hann fer í kaf", sagði Ned.
+
+Ekki þótti mér það nú svo skemtileg tilhugsun. En við áttum ekki annars
+úrkosti, en dvelja þar yfir nóttina, sem við vórum komnir.
+
+Þegar loksins fór að lýsa af degi, heyrðum við skrölt í járnslám og
+hlekkjum og sáum hlera opnast í þilfarinu. Þar kom maður upp og
+skygndist um. Þegar hann sá okkur rak hann upp hljóð, hvarf niður aftur
+og skelti hleranum á eftir sér. Rétt á eftir komu átta karlmenn upp á
+þilfarið. Þeir tóku okkur, án þess að mæla orð frá vörum og fóru með
+okkur niður í skipið.
+
+Hlemmurinn féll aftur yfir höfðum okkar og við vórum staddir í
+niðamyrkri. Við fórum ofan járnstiga og inn um dyr, sem lokað var á
+eftir okkur. Þar vórum við látnir einir.
+
+Þarna var svo mikið myrkur, að ég hefi aldrei komið í annað eins. Ekkert
+náttmyrkur getur jafnast á við það.
+
+Ned Land lét eins og óður væri. Hann sparkaði öllu um koll, sem lauslegt
+var inni, og datt sjálfur um sumt af því.
+
+"Það er dálagleg gestrisni að tarna!" þrumaði hann. "Og þar að auki eru
+þetta sjálfsagt mannætur, þegar til kemur!"
+
+"Við erum ekki komnir á steikarateininn ennþá", sagði Konsæll.
+
+"Nei, en í ofninn", svaraði Ned Land.
+
+Það var ekki þar fyrir, það gat vel verið satt sem hann sagði, því ég
+fann að þilin vóru úr járni alt í kring.
+
+Alt í einu varð svo bjart inni, að ég varð að láta aftur augun. Kveikt
+hafði verið á ljósmiklum rafmagslampa, sem festur var í loftið.
+
+Við fórum nú að litast um. Herbergi þetta var 4 álnir á hvern veg og
+járn í öllum veggium og loftinu. Gólfið sá ég ekki, vegna ábreiðu, sem á
+því lá. Á miðju gólfi stóð viðhafnarlaust tréborð og 4 stólar.
+
+Okkur gafst ekki mikill tími til umsvifa því rétt í þessu opnaðist
+hurðin og inn gengu tveir menn. Var annar þeirra lítill vexti, en
+knálegur. Hann gekk á undan.
+
+Hinn, sem á eftir fór, var miklu hærri, og varð okkur þegar starsýnt á
+hann. Hann var fagurlega vaxinn, fríður sýnum og hinn höfðinglegasti.
+Hann hafði alskegg, stutt; augun voru dökk og starandi,--nærri
+kaldranaleg--og ennið hátt. Það var fljótséð að ekki mundi auðvelt að
+hafa áhrif á tilfinningar þessa manns. En gáfaður maður hlaut hann að
+vera. Það var auðséð á honum.
+
+Hann var auðsjáanlega yfirmaður skipsins, því þegar þeir vóru komnir inn
+úr dyrunum, vék hinn sér til hliðar. Hann staðnæmdist frammi fyrir okkur
+og starði á okkur langa stund. Ekki hraut honum orð af vörum fyr en
+loks, að hann ætlaði út aftur; þá talaði hann við förunaut sinn á máli,
+sem ég skildi ekki.
+
+Hvað átti ég að taka til bragðs? Ég vonaði að hann skildi frönsku og
+ávarpaði hann á því máli,--talaði svo skýrt og skilmerkilega, sem mér
+var unt. Ég sagði honum nöfn okkar og hvað manna við værum og hvernig á
+því stóð, að við vórum þar komnir.
+
+Ókunni maðurinn hlustaði á mig með stillingu og kurteisi. En ekki sást
+nokkur vottur þess, að hann skildi mig og ekki svaraði hann.
+
+Ned Land varð auðvitað fokvondur. Hann endurtók alla frásögu mína á
+ensku, og viðhafði all-ófögur orð með köflum. Hann endaði mál sitt á því
+að heimta mat; sagði að við værum komnir í dauðann af hungri og yrðum að
+fá mat.
+
+En það leit ekki út fyrir, að ókunni maðurinn skildi Ned Land heldur. Ég
+var einmitt farinn að hugsa um að reyna latínu, en þá segir Konsæll.
+
+"Ef húsbóndanum þóknast, gæti ég reynt þýzku". Það hafði mér ekki dottið
+í hug áður. Konsæll var flæmskur og talaði auðvitað þýzku. Ég gat að
+eins lesið hana og--sannast að segja--með herkjum. Ég var því fljótur
+til að samþykkja það.
+
+Í þriðja sinn var honum nú sagt hverir við værum og hvers vegna við
+værum þangað komnir. En í þetta sinn var það Konsæll sem sagði frá, með
+allri þeirri kurteisi og formkreddum, sem honum var lagið. En árangurinn
+varð alveg sá sami,--alls enginn. Ókunni maðurinn snéri sér nú að
+förunaut sínum og mælti við hann nokkur óskiljanleg orð. Svo fóru þeir
+út úr herberginu báðir.
+
+Skömmu seinna opnaðist hurðin á ný og kom inn þjónn með þur föt. Þótti
+okkur Konsæl gott að fá fötin, en Ned Land sefaðist ekkert fyr en
+þjónninn loks kom með mat; þá var eins og hýrnaði yfir Kanadamanninum.
+
+Að lokinni máltíð lögðum við okkur fyrir og sváfum vært og lengi. Þegar
+við vöknuðum og vórum að nudda stírurnar úr augunum, vissum við ekki fyr
+af, en skipstjórinn snaraðist inn í herbergið. Hann stóð kyr stundarkorn
+og virti okkur fyrir sér. Svo hóf hann máls og talaði á hreinustu
+frönsku:
+
+"Herrar góðir! Mér er jafnlétt um að tala frönsku eins og þýzku og
+ensku. Ég skildi því mæta vel alt það sem þið sögðuð. En ég vildi fyrst
+vita deili á ykkur og íhuga svo málið í næði. Ég hefi verið í miklum
+vafa um, hvað gera skal við ykkur. Þið eruð komnir hingað á skip mitt
+fyrir sakir óhappaatvika. Þið hafið truflað lífsrás mína og rósemi . . "
+
+"Ósjálfrátt". greip ég fram í fyrir honum.
+
+"Ósjálfrátt!" át hann eftir. "Var það ósjálfrátt að "Abraham Línkoln"
+var gerður út til að ofsækja mig? Var það ósjálfrátt að þér fóruð með
+skipinu og tókuð þátt í ofsóknunum? Var það ósjálfrátt að þið skutuð á
+skip mitt og Ned Land kastaði skutli á það?"
+
+"Við vissum ekki annað en skip yðar væri sjóskrímsl, sem nauðsyn bæri
+til að eyðileggja", svaraði ég.
+
+"En hefðuð þið nú vitað að þetta var niðansjáfarskip; hefðuð þið ekki
+elt það og skotið á það, alveg eins og sjóskrímsl?"
+
+Mér varð svarafátt. Ég fann með sjálfum mér, að Farragút flotaforingi
+mundi ekki hafa gert neinn mun á því.
+
+"Eins og þið getið sjálfir séð og skilið". sagði ókunni maðurinn, "ber
+mér að skoða ykkur sem óvini mína. Vildi ég verða laus við ykkur, þyrfti
+ég ekki annað en seta ykkur upp á þilfarið og fara svo í kaf. Ég hefi
+fylsta rétt til að gera það".
+
+Hann talaði ofur-rólega og reiðilaust, en þó stökk honum ekki bros. Var
+auðséð að hann meinti það, sem hann sagði.
+
+"En hvað sem því líður", bætti hann við, "þá hefi ég ákveðið að hafa
+ykkur hérna á skipinu framvegis. Þið getið verið eins og frjálsir menn
+og hreyft ykkur svo mikið sem rúm leyfir".
+
+"Er það meiningin að við eigum að vera hér á skipinu alla æfi?" spurði
+ég.
+
+"Já", svaraði ókunni maðurinn, "þið megið hætta að hugsa um þurlendið,
+því þangað komið þið aldrei framar, enda missið þið einskis í við það".
+
+"Ég strýk héðan undir eins og færi gefst", sagði Ned Land.
+
+"Yður er heimilt að reyna það", svaraði ókunni maðurinn þurlega.
+
+Það var sýnilega engrar tilslökunar að vænta af þessum manni. Við urðum
+að sætta okkur við það, sem hann vildi vera láta.
+
+"Er mér leyfilegt að spyrja um nafn yðar?" sagði ég.
+
+"Gagnvart yður er ég ekki annað en Númi skipstjóri. En gagnvart mér
+eruð þér og félagar yðar farþegar með skipi mínu, Sæfaranum".
+
+Númi skipstjóri opnaði dyrnar og kallaði á þjón. "Það er búið að bera
+mat á borð í herbergi ykkar", sagði hann við Ned Land og Konsæl. "Viljið
+þið fara með manni þessum".
+
+Svo snéri hann sér að mér.
+
+"Nú, hr. Aronnax, má ég fylgja yður til borðs? Morgunverðurinn er
+tilbúinn".
+
+Ég snæddi morgunverð með skipstjóranum og var hjá honum það sem eftir
+var dagsins. Fór hann með mig fram og aftur um skipið og sýndi mér alt
+sem markvert var, sem var æði margt. Var hann hinn þægilegasti viðmóts
+og leysti úr öllum spurningum með alúð og nákvæmni.
+
+Við fórum fyrst eftir löngum gangi, sem var uppljómaður af
+rafmagnsljósi. Þaðan fórum við inn í borðstofuna. Þar var rúmgott inni
+og snyrtilega um gengið. Húsgögn vóru öll úr eik og greipt fílabeini.
+Skápar vóru skreyttir dýrum krystöllum og stóðu á þeim og svo borðinu
+skrautmunir úr dýrum málmum og hreinu postulíni.
+
+Þaðan fórum við að skoða bókasafn skipsins. Bókaskáparnir þöktu veggina
+frá gólfi og upp í loft. Borð mikið stóð á miðju gólfi en legubekkir á
+tvær hendur, fóðraðir dýrindis skinni. Öll vóru húsgögn þessi úr svörtum
+palísanderviði og koparrend víða. Í safni þessu sagði Númi að væru tólf
+þúsund bindi, og væri mér heimilt að nota það eftir vilja og þörfum.
+Þessu boði varð ég mjög feginn, upp á framtíðina.
+
+Þar var samankomið úrval úr bókmentum allra þjóða, og urmull af
+vísindabókum, einkum ritum um náttúrufræði. Meira að segja fann ég þar
+bókina mína: "Um leyndardóma undirdjúpanna".
+
+Loks komum við inn í aðalsalinn. Það var stórt herbergi og
+prýðilegt,--fimtán álnir á lengd og 9 álnir á breidd. Á þiljunum héngu
+málverk eftir frægustu snillinga í Evrópu. Marmaralíkneski, gerð í
+fornum stíl, stóðu þar í hornunum, en lítil borð stóðu hér og hvar á
+gólfinu. Borðfletirnir vóru úr skygndu gleri, en undir glerinu gat að
+líta fjölda hinna fáséðustu dýrindismuna úr ríki hafsins. Þar vóru meðal
+annars marmennilssmíði svo fögur, að ég hefi hvergi séð önnur eins, og
+perlur svo stórar og hreinar, að mér var blátt áfram ómögulegt að meta
+þær til verðs. Forte-píanó stóð þar í einu horninu; það var opið, og
+leit út fyrir að vera oft notað.
+
+Úr aðalsalnum héldum við áfram fram eftir skipinu, og varð fyrir okkur
+gangur með tveimur hurðum á þilinu annars vegar. Vóru þar tvö herbergi
+samhliða og var annað herbergi skipstjórans, en hitt sagðist hann ætla
+mér til íbúðar, meðan ég dveldi á skipinu. Ekki var það miður búið að
+þægindum öllum og viðhöfn en önnur herbergi þar á skipinu.
+
+Fremst í skipinu var klefi með innibyrgðu, samanþjöppuðu andrúmslofti,
+og annar samskonar sagði Númi að væri við afturstafn skipsins.
+
+Frá klefum þessum var stöðugt nýju lofti veitt um alt skipið eftir
+þörfum. Á hverjum morgni var farið upp að yfirborðinu og nýjar
+loftbyrgðir teknar í klefana.
+
+Klefi skipstjórans var einfaldur og skrautlaus--ólíkur mjög öðrum
+herbergjum skipsins, sem öll vóru búin skarti og dýrindis húsbúnaði.
+Þegar við komum þangað inn, lýsti Númi fyrir mér byggingu skipsins og
+gerð allri. Það var réttar 100 álnir á lengd og í lögun eins og vindill.
+Það var 12 álnir að þvermáli um miðju. Byrðingurinn var tvöfaldur, en
+tengdur saman alt umhverfis, með þverbitum úr járni. Þoldi skipið því
+afarmikinn þrýsting. Hreifivélar skipsins vóru knúðar með rafmagni og
+svo sterkar, að Sæfarinn gat hæglega farið 15 mílur á vöku. Stýrið var
+eins og á öðrum skipum, en auk þess vóru tveir láréttir spaðar eða
+vængir utan á hliðunum, miðskipa. Þeim mátti halla fram og aftur og
+beina á þann hátt stefnu skipsins upp á við og niður á við, þegar gangur
+var kominn á það. Auk þessa vóru klefar á skipinu eða hólf, sem fylt
+vóru sjó, ef skipið átti að sökkva, en tæmd, þegar það átti að leita
+upp. Á sama hátt mátti einnig ráða djúpstöðu þess, þó það væri á ferð. Á
+framenda skipsins var dálítill turn og í honum stýrishjólið. Gluggar
+vóru á turninum öllum megin og gat stýrimaður séð þaðan til allra hliða.
+Á afturenda þess var annar turn. Í honum var afar-skært rafljós, sem
+notað var á nóttum og í kafförum.
+
+Í skipstjóraklefanum og aðalsalnum vóru ýms skipstjórnaráhöld. Þar vóru
+hin vanalegu skipstjórnaráhöld, svo sem sigurverk, sem gekk fyrir
+rafmagni, loftvog, áttaviti og sólhæðarmælir. En auk þessa vóru þar
+margs konar áhöld önnur, sem Númi hafði sjálfur fundið upp, til að mæla
+með hraða, stefnu og djúpstöðu skipsins.
+
+Númi skipstjóri skýrði fyrir mér, með mikilli nákvæmni, hvernig áhöld
+þessi væru gerð og notuð. Hann sagði mér, hvernig hann færi að því, að
+ná rafmagni úr ýmsum efnum í sjónum, og hvernig hann hefði reiknað þetta
+alt út fyrirfram, áður en hann byrjaði á skipssmíðinni. Var þetta alt
+svo flókið og margvíslegt, að ég verð að sleppa því hér.
+
+Ég var alveg forviða á þessu öllu saman.
+
+"Þér hafið þá sjálfur staðið fyrir smíðinni, og gert allar teikningar og
+áætlanir", sagði ég.
+
+"Já", svaraði skipstjórinn, "ég hefi stundað nám við háskólana í Berlín,
+París og New-York og numið þar svo mikið, sem útheimtist til þessa".
+
+"En hvernig gátuð þér smíðað skipið svo, að ekki yrði hljóðbært um allan
+heim?"
+
+"Það skal ég segja yður, Aronnax minn. Ég hefi fengið sinn hlutann úr
+hverri áttinni. Kjölurinn er smíðaður hjá Krausot í Frakklandi,
+skrúfumöndullinn hjá Pen & Co. í Lundúnum, súðaþynnurnar hjá Lírd í
+Liverpool, skrúfan hjá Scott í Glasgow, þéttiloftsklefarnir hjá Sail &
+Co. í París, vélarnar hjá Krúpp í Essen, stafnfleygurinn í Motala í
+Svíþjóð, verkfærin hjá Hart í New-York o. s. frv. Verksmiðjurnar fengu
+þessar pantanir undir ýmsum nöfnum, og áttu að senda hlutina á ýmsar
+hafnir. En svo lét ég skip, sem ég átti sjálfur, smala öllu saman".
+
+"En þá var þó eftir að laga þetta til og setja það saman", sagði ég.
+
+"Já, ég setti upp verkstæði á óþektri eiðiey úti í miðju Kyrrahafi og
+þar lauk ég smíðinni á Sæfaranum, með tilstyrk manna þeirra, sem nú eru
+með mér hér. Þegar við vórum búnir að því, brendum við öllu, sem eldur
+gat eytt, en köstuðum hinu í sjóinn, svo engin vegsummerki sáust eftir".
+
+"Það hefir kostað nokkuð, skipið yðar, get ég ímyndað mér".
+
+"Já", svaraði Númi, "með öllum áhöldum kostar það mig eina milljón, sex
+hundruð og áttatíu þúsund krónur. En með öllum söfnum og dýrgripum, eins
+og það er nú, er það ekki of hátt virt á fimm miljónir króna".
+
+"Þér hljótið að vera afar auðugur maður?"
+
+"Já, hr. prófessor, það er ég. Mér væri hægðarleikur að borga allar
+ríkisskuldir Frakklands, tólf miljarða".
+
+Því næst fylgdi Númi mér aftur á skipið, til þess að sýna mér vélrýmið.
+Við fórum fram hjá eins konar strompi, og var á honum hurð. Sá ég að
+járnstigi lá upp eftir honum og spurði skipstjórann hvað gert væri við
+hann.
+
+"Við förum upp í bátinn eftir þessum stiga", svaraði hann.
+
+"Svo, þið hafið þá bát".
+
+"Já, lokaðan bát, af sömu gerð og Sæfarann, en miklu minni. Hann liggur
+í dæld á þilfarinu og er festur með skrúfum. Á þilfarinu er hleri og
+annar í botninum á bátnum. Þeir standast á. Með því að opna hlerana get
+ég farið upp í bátinn. Hleranum á þilfarinu er lokar á eftir mér, en
+sjálfur loka ég hlerunum í bátnum. Svo losa ég um skrúfurnar og þá þýtur
+báturinn upp að yfirborðinu í einum svip. Þegar ég finn að báturinn
+flýtur ofansjávar, opna ég hlera á þilfari hans, síðan reisi ég sigluna,
+set upp segl og sezt við stýrið".
+
+"En hvernig komist þér niður til skipsins aftur?"
+
+"Það get ég ekki. Sæfarinn verður að koma upp til mín. Báturinn er
+tengdur við skipið með löngum látúnsvír, sem rafmagnsstraumur leikur um,
+og fylgir það bátnum eftir neðansjáfar. Þarf ég því ekki annað en þrýsta
+á tippi, ef ég vil gefa því vísbendingu".
+
+Alt þetta var svo einfalt og þó svo haganlega fyrirkomið, að það vakti
+aðdáun mína.
+
+Þegar við komum lengra fram í ganginn, sá ég inn í herbergi Ned Lands og
+Konsæls. Sátu þeir að snæðingi og vóru hraustir og hressir að sjá. Ég sá
+matsuðuklefann, og hvernig maturinn var soðinn við rafmagnshita. Við
+fórum framhjá klefum skipverjanna, en ekki sá ég inn í þá, því hurðirnar
+vóru aftur. Seinast skoðaði ég vélrýmið. Þar sá ég þessar undravélar,
+sem gengu fyrir rafmagni og gátu snúið skrúfuásnum tuttugu snúninga á
+sekúndunni.
+
+"Nú ætla ég að gefa yður næði til rannsókna yðar og vísindaiðkana",
+sagði skipstjórinn, þegar við komum inn í aðalsalinn aftur. "Við erum
+núna staddir í nánd við Japan, eins og þér sjáið á kortinu þessu. Braut
+skipsins er mörkuð á það á hverjum degi, svo þér getið séð hvað ferðinni
+líður. Bókasafnið og salinn er eður heimilt að nota eftir vild. Með
+yðar leyfi ætla ég að hverfa frá um sinn".
+
+Númi fór nú út, að svo mæltu, en ég sat einn eftir.
+
+Hver var hann, þessi undralegi maður? Hann var framúrskarandi að gáfum
+og fróðleik, en fyrirleit þurlendið og mennina af lífi og sál. Hver var
+hann? Og hvert ætlaði hann að fara með mig?
+
+Þessu var ég lengi að velta fyrir mér, eftir að skipstjórinn fór. Ég sat
+hugsi langa lengi, þar til loks ég stóð upp og gekk inn í herbergi mitt,
+til að taka á mig náðir.
+
+Árdegis daginn eftir kom Konsæll og Ned Land inn í salinn til mín. Þeim
+varð fyrst fyrir að spyrja, hvernig á þessu stæði og hvar við værum
+staddir.
+
+"Tuttugu og fimm föðmum fyrir neðan yfirborð sjáfar", svaraði ég.
+
+"Þetta er stór-merkilegt", sagði Konsæll.
+
+Ég sýndi Konsæl öll þau undur af fágætum náttúrugripum, sem vóru í
+salnum. Hann var vanur að fylga mér á söfnunum í París og bar gott
+skynbragð á þess konar hluti.
+
+Ned Land spurði mig spjörunum úr, um Sæfarann og Núma skipstjóra. Hann
+var á fjáður að vita hve skipshöfnin væri fjölmenn, því hann hafði þegar
+hugsað sér að myrða alla skipverja, eða byrgja þá inni, en taka skipið
+á sitt vald.
+
+Ég reyndi að telja um fyrir honum og fá hann ofan af þessu. En alt í
+einu sloknaði ljósið í salnum og við stóðum eftir í kolsvarta-myrkri.
+
+Við stóðum hreyfingarlausir og þegjandi og biðum þess, sem verða vildi.
+Svo heyrðist glamur, líkt því sem járnþynna væri dregin eftir
+skipshliðinni, og í sama vetfangi lagði skæra birtu inn í salinn um tvo
+glugga. Í gluggum þessum vóru afarþykkar glerrúður og lágu yfir þær
+sterkar koparstengur til styrktar. Sáum við út um gluggana sterka
+rafljósbirtu, sem lýsti upp sjóinn langa leið frá skipinu, í allar
+áttir. Það var fögur sjón og stórkostleg. Ljósbrotið var svo
+einkennilegt í vatninu að því verður ekki með orðum lýst. Nálægt skipinu
+var sjórinn sem fljótandi eldhaf, en smádofnaði er lengra dró frá og
+eyddist loks í sæmyrkrinu yfir og undir og alt um kring.
+
+Við horfðum hugfangnir á þessa dásamlegu sjón. Brátt kom í ljós urmull
+af fiskum og allskonar sædýrum. Fylgdu þeir skipinu eftir og hringsóluðu
+kringum það, eins og fuglager í lofti. Sumir þessara fiska vóru
+undursamlega fagrir, fór þar saman blikandi litskrúð, fagurt sköpulag og
+aðdáanlega mjúkar og skjótar hreyfingar.
+
+Alt í einu hvarf þessi töfrasjón. Hlerunum var rent fyrir gluggana og
+ljósi brugðið upp á rafmagnslömpunum í salnum. En lengi á eftir sátum
+við eins og í leiðslu og rifjuðum upp í huganum þennan merkilega
+fyrirburð. Hann var svo nýstárlegur og nærri yfirnáttúr legur að
+hugmyndalíf okkar var snortið um langan tíma.
+
+
+[Footnote 1: Loftþyngd er sá þrýstingur kallaður, sem loftið gerir á
+yfirborð jarðarinnar; en hann samsvarar hérumbil 15 punda þunga á
+hverjum ferþumlungi yfirborðs. Þýð.]
+
+
+
+
+III.
+
+
+Ég fór að una æfinni betur á Sæfaranum þegar fram í sókti. Ég hafði
+fyrir reglu að fara upp á þilfar á hverjum morgni, meðan verið var að
+skifta um loft í skipinu. Þar hitti ég vanalega stýrimanninn, sem fékst
+þar við mælingar og athuganir. Ég reyndi oftsinnis að hafa tal af honum,
+en það kom fyrir ekki. Hann skildi ekki eða lézt ekki skilja eitt orð af
+því sem ég sagði. Hann mælti nokkur orð á máli, sem ég skildi ekki, í
+hvert sinn sem hann ætlaði ofan í skipið aftur.
+
+Ég skildi það sem skipun um að fara niður aftur og hagaði mér samkvæmt
+því.
+
+Á daginn sat ég lengstum við bóklestur í salnum eða bókasafnsklefanum.
+
+Ég varð lítið var við Núma skipstjóra. Ég hefi ekki í fyrstu hugmynd um,
+hve fálátur hann var og einförull, og var því farinn að halda um tíma
+að hann væri farinn af skipinu.
+
+Stöku sinnum hitti ég hann uppi á þilfarinu á morgnana. En oftast var
+hann þá svo hugsi og fámálugur, að engu tauti var við hann komandi. Þó
+bar við, að hann var glaðari í bragði. Það var helzt, þegar hann hafði
+sérstakan áhuga á einhverju, sem hann var að gera, að hann kom og tók
+mig tali. En þá var hann líka öllum mönnum alúðlegri og liprari. Listir
+og vísindi vildi hann helzt af öllu tala um.
+
+Hann elskaði hafið. Ég varð þess var einn dag. Við stóðum saman á þiljum
+uppi og nutum veðurblíðunnar. Loftið var hlýtt og himininn heiður. Öldur
+úthafsins liðu eftir sæfletinum, eins og spegilgljáandi fjallabungur.
+Númi benti út yfir öldurnar og gat ekki varist þess, að dázt að hinni
+stórfenglegu og óháðu tign úthafsins. Hann lauk máli sínu með þessum
+orðum:
+
+"Frá öldufalli yfirborðsins og niður í myrkustu undirdjúp er hafið á
+eilífri hreyfingu, þrungið lífi og lifandi verum. Það vekur undrun og
+ótta mannanna. Þeir hræðast hyldýpið, en ég hræðist það ekki. Þegar ég
+er á Sæfaranum er mér sama hvar ég hvíli í faðmi hafsins".
+
+Ned Land og Konsæll komu oft til mín inn í aðalsalinn og hafði ég gaman
+af heimsóknum þeirra, því þeir vóru sífelt að ybbast og kýta--oftast í
+góðu þó. Ned Land hafði alt á hornum sér. Hann kunni ekki við að vera
+innibyrgður, kvartaði undan mataræðinu, hvað það væri tilbreytingarlaust
+og var sárreiður við Núma skipstjóra, sem lét eins og hann heyrði ekki,
+þegar sem hæst gekk hranaskapur og umkvartanir Ned Lands.
+
+Konsæll var þvert á móti, ánægður með alt. Hann hafði lag á því að haga
+sér eftir kringumstæðunum, og mín vegna var hann í sjöunda himni yfir
+því, hvað mér gæfist gott færi á að rannsaka hafið og sædýralífið.
+Gluggarnir á skipshliðinni vóru opnir tvo tíma á dag að jafnaði. Þá tíma
+notuðum við Konsæll kostgæfilega, til að athuga sjóinn. Þegar ég kom
+auga á einhvern fisk, sem við höfðum ekki séð áður, flýtti Konsæll sér
+að ákveða hvaða flokki eða tegund hann ætti að teljast með. Konsæll
+hafði vel vit á því og var heldur en ekki upp með sér af þeirri fræði.
+Hann sagði oft við Ned Land, að hann væri ekki annað en óseðjandi magi,
+sem skifti fiskunum í tvo flokka, eftir því hvort þeir væru ætir eða
+óætir.
+
+En Ned Land þekti fiskana á annan hátt: af eigin reynslu og eftirtekt og
+hann fór ófögrum orðum um "safnhúsavizku" Konsæls, sem hann svo
+kallaði.
+
+Við héldum stöðugt í suðurátt, fórum yfir miðjarðarlínuna og komum loks
+á siglingaleiðir verzlunarskipanna.
+
+Dag einn sat ég í aðalsalnum og var að lesa í bók. Ned Land og Konsæll
+sátu við gluggana og horfðu út í sjóinn. Alt í einu spratt Konsæll upp
+og gekk þangað sem ég var.
+
+"Vill ekki húsbóndinn koma út að glugganum sem snöggvast", sagði hann og
+virtist vera mikið niðri fyrir.
+
+Ég brá við og leit út um gluggann. Sá ég þá eitthvert svart ferlíki
+liggja grafkyrt í sjónum skamt frá skipinu. Ég neytti augnanna því
+betur, sem nær dró.
+
+"Skipsflak!" kallaði ég upp yfir mig.
+
+"Já", sagði Ned Land, "það er sokkið og möstrin eru brotin". Það var sem
+hann sagði. Slitrin úr reiðanum héngu á köðlum út af borðunum. Skipið
+hallaðist á bakborða og var fult af sjó. Það hlaut að vera nýsokkið, því
+mastrastúfarnir, sem stóðu upp úr þilfarinu, vóru hreinir. Í dyrum eins
+þilfarsklefans sáum við liggja lík ungrar konu og hafði hún kornbarn í
+fanginu. Lengra hafði hún ekki komist þegar slysið vildi til. Á
+þilfarinu láu 4 hásetar dauðir og flæktir í reiðaköðlunum. Var hræðileg
+sjón að sjá, hvernig þeir vóru útlits. Þeir höfðu barist við að losa
+sig úr köðlunum fram í andarslitrin.
+
+Við stóðum eins og steini lostnir og horfðum á þessa hroðasjón, meðan
+Sæfarinn rendi framhjá. Og áður en við mistum sjónar á flakinu, sáum við
+hákarlana steðja að úr öllum áttum, með glóandi glirnum og gapandi
+kjöftum.
+
+Þetta var í fyrsta sinn, sem mér varð óhægt innanbrjósts, síðan ég kom á
+Sæfarann.
+
+Ég fór að leggja þungan hug á Núma skipstjóra og gat þó varla gert
+sjálfum mér grein fyrir, af hverju það stafaði. Mér hafði hingað til
+staðið á sama um fálæti hans og fáskifti, ég hafði hugsað mest um
+rannsóknir mínar og bóklestur. En nú fanst mér alt í einu, sem eitthvað
+væri óhreint við þetta háttalag skipstjórans og skipverja, eitthvað
+undarlegt og tortryggilegt.
+
+Það leið heldur ekki á löngu, að þessi skoðun mín fékk nýja átyllu.
+
+Eitt sinn snemma dags kom ég upp á þilfarið. Stóð stýrimaðurinn þar og
+benti á vissan stað í sjónhringnum, en Númi skipstjóri starði þangað
+gegnum sjónauka sinn. Svo lét hann sjónaukann síga og fór að ganga um
+gólf á þilfarinu, án þess að skifta sér af mér. Stýrimaður var allur á
+hjólum, eins og honum væri mjög mikið niðri fyrir. Hann ávarpaði
+skipstjórann öðru hvoru á máli, sem ég skildi ekki og Númi svaraði á
+sama máli. Rétt á eftir tóku þeir sjónaukana aftur og beindu þeim á
+þenna sama stað. Ég neytti augnanna af fremsta megni, en sá ekkert
+athugavert. Hljóp ég því ofan í salinn og sótti þangað sjónauka. Þegar
+ég kom upp aftur setti ég sjónaukann fyrir augun, en í sama vetfangi var
+hann hrifsaður af mér.
+
+Númi skipstjóri stóð frammi fyrir mér. Hann var rólegur á svipinn, eins
+og hann var vanur, en hann var meira en rólegur, andlit hans var kalt og
+stirðnað að sjá, eins og lífvana steingerfingur. Hann kreisti aftur
+munninn og beit á jaxlana, en augun vóru sem í eldsglóð sæi. Ég fann þó
+fljótt að hann ætlaði ekki að láta reiði sína bitna á mér. Hann gat ekki
+haft augun af deplinum, sem hann horfði á áður og bægði mér frá að
+athuga.
+
+Loks var eins og hann áttaði sig og fengi vald yfir sjálfum sér. Hann
+sagði nokkur orð við stýrimanninn, sem hvarf þegar ofan í skipið, og
+snéri sér svo að mér.
+
+"Ég verð að byrgja yður inni", sagði hann.
+
+"Þér hafið auðvitað vald til þess", sagði ég. "En má ég spyrja yður
+einnar spurningar?"
+
+"Nei".
+
+Númi fór aftur að horfa út yfir hafið. Ég fann að vélin komst á
+hreifingu og skrúfan tók að knýja skipið áfram með vaxandi hraða.
+
+Ég fór niður til þeirra Ned Lands og Konsæls. Þar vóru fyrir fjórir af
+hásetum skipsins og fóru þeir með okkur inn í sama herbergið, sem við
+vórum í fyrsta morguninn, sem við vórum á skipinu. Þeir spurðu mig
+spjörunum úr, en ég hafði ekki annað að segja en það, sem fyrir mig bar
+uppi á þilfarinu. Ned Land var í versta skapi.
+
+Að vörmu spori kom þjónn inn og bar mat á borð fyrir okkur. Sefaðist þá
+vonzkan í Ned Land, um stund. Konsæll hvatti mig til að borða mig vel
+saddan, "því það er ekki víst að við fáum mat aftur í bráðina", sagði
+hann, "það er eins víst að þeir gleymi okkur alveg".
+
+Ned Land tók þriflega til matar síns, eins og hans var vandi, og ég lét
+ekki mitt eftir liggja.
+
+Að lokinni máltíð lagðist Ned Land endilangur á gólfið og steinsofnaði.
+Rétt á eftir lagðist Konsæll fyrir líka og sofnaði. Þótti mér það slæmt,
+því mér fanst full þörf á að vaka og hafa gát á öllu.
+
+En nú brá undarlega við. Ég varð altekinn af máttleysi og þreytu og varð
+að leggjast á gólfábreiðuna líka. Hugsunin sljóvgaðist smátt og smátt,
+og einhver undarleg þyngsli sigu yfir höfuðið á mér, svo ég gat naumast
+haldið augunum opnum. Ég man það síðast, að ég heyrði að hlerunum var
+lokað og skipið hætti að velta; en það var merki þess, að það var komið
+í kaf. Svo misti ég meðvitundina alveg og féll í fastan, draumlausan
+svefn.
+
+Morguninn eftir vaknaði ég og var þá inni í klefanum mínum. Mér var það
+nú fullljóst, að Númi skipstjóri hafði blandað svefnlyfi í morgunmatinn
+okkar daginn áður. Ég reis á fætur og fór inn í salinn, því hann stóð
+opinn. Bjóst ég við að hitta skipstjórann þar, og fá hjá honum skýringu
+á máli þessu.
+
+Rétt á eftir kom hann út úr klefa sínum og gekk inn í salinn. Hann var
+þögull eins og vant var og fór að ganga um gólf, án þess að veita mér
+nokkra athygli.
+
+En alt í einu staðnæmdist hann frammi fyrir mér.
+
+"Eruð þér læknir?" spurði hann.
+
+"Já", sagði ég, "ég stundaði lækningar í mörg ár, áður en ég fékk
+embætti við jurtasafnið í París".
+
+"Einn af hásetum mínum er veikur. Viljið þér skoða hann?"
+
+"Já".
+
+"Komið þá með mér".
+
+Mér flaug þegar í hug, að veiki þessi mundi standa í sambandi við það,
+sem gerst hafði daginn áður, og var meira í mun að fá vissu fyrir því.
+
+Númi fór með mig aftur í skipið og lauk upp einum hásetaklefanum. Komum
+við þar inn í rúmgott herbergi, og var það uppljómað af rafljósi. Maður
+lá í fleti út við þilið gengt dyrunum. Sá ég þegar, að hann var sár en
+ekki sjúkur. Ég laut niður að honum og losaði um blóðugan
+léreftsrenning, sem bundinn var um höfuð honum. Hann kveinkaði sér ekki
+hið minsta, en starði á mig með stirðu og sljóu augnaráði.
+
+Sárið var hroðalegt. Hauskúpan var brotin og heilinn skaddaður mikið.
+Bólga var farin að myndast í sárunu og hafði þegar gert manninn alveg
+tilfinningarlausan.
+
+"Hvernig hefir maðurinn hlotið þetta sár?" spurði ég.
+
+"Skipið rakst á", sagði Númi. "Við það brotnaði járnteinn í vélrýminu og
+féll í höfuð honum".
+
+Ég horfði steinþegjandi á særða manninn. Hann var ungur að aldri, fríður
+sýnum og svipmikill og bar sömu þjóðerniseinkenni og aðrir þar á
+skipinu.
+
+"Hann skilur ekki frönsku", sagði Númi, "svo yður er óhætt að tala".
+
+"Hann verður dauður að tveim stundum liðnum", sagði ég.
+
+Númi skipstjóri brá hendinni fyrir augun og mér virtist ég sjá tár
+hrynja.
+
+"Verður honum með engu móti hjálpað?" spurði hann.
+
+"Nei".
+
+"Jæja, þá þarf ég ekki yðar aðstoðar með".
+
+Ég fór út úr herberginu, en Númi var eftir hjá manninum dauðvona,
+niðurlútur og harmþrunginn.
+
+Ég hvarf inn í herbergið mitt aftur, þungt hugsandi. Ég gat ekki um
+annað hugsað allan daginn en banasængina aftur í skipinu og þennan
+óskiljanlega árekstur, sem skipið hafði orðið fyrir, meðan við lágum í
+dvala, undir áhrifum svefnlyfsins.
+
+
+
+
+IV.
+
+
+Við fórum fyrir norðan Ástralíu og vórum komnir inn í Indlandshaf í
+janúarmánuði 1868. Ég veitti því eftirtekt, að Númi hagaði ferðinni
+öðruvísi þegar þangað kom. Í Kyrrahafinu fór Sæfarinn með fullum hraða
+eftir ákveðinni stefnu. En þegar dró nær ströndum Vestur-Indlands, hægði
+hann skriðinn og stýrði þá sitt á hvað, ýmist í norður eða suður. Liðu
+svo nokkrir dagar að við hringsóluðum um sama svæði, en fórum svo að
+þokast suður á við.
+
+Það bar við einn dag, að ég sat í aðalsalnum, út við gluggann, og var að
+horfa á urmul af fiskum, sem safnast hafði utan um skipið. Þá kom Númi
+skipstjóri inn og gekk rakleitt til mín, út að glugganum.
+
+"Við erum bráðum komnir til Ceylon", sagði hann formálalaust.
+"Perlutekjan er að vísu lítil á þessum tíma árs. Þó getur verið, að
+nokkrir menn fáist við það núna. Langar yður ekki til að sjá þá kafa,
+prófessor?"
+
+Ég var fljótur að játa því, en mig furðaði á því, að Númi skyldi alt í
+einu fá löngun til að nálgast þurlendið og mennina.
+
+"Það er langt til Ceylon enn", sagði ég, "og fari Sæfarinn ekki hraðara,
+en undanfarna daga, þá . . . ."
+
+Númi tók fram í fyrir mér:
+
+"Við verðum komnir þangað á morgun", sagði hann.
+
+Hann horfði stöðugt út í sjóinn, og mér varð líka litið þangað, en
+hnykti við heldur en ekki.
+
+Ég kom auga á mann í sjónum, ekki liðið lík, sem barst með straumnum,
+heldur bráðlifandi mann, sem klauf sjóinn með sterklegum sundtökum, fór
+upp að yfirborðinu til að anda og kafaði svo aftur niður í djúpið.
+
+"Þarna er maður sem liggur við druknun", sagði ég. "Við verðum að bjarga
+honum!"
+
+Númi svaraði ekki, en laut fast að gluggarúðunni.
+
+Maðurinn í sjónum kom rakleitt að glugganum, lagði andlitið að rúðunni
+að utanverðu og skifti nokkrum merkjum og bendingum við Núma skipstjóra.
+Svo synti hann upp að yfirborðinu aftur og sá ég hann ekki framar.
+
+Þó mér þætti þessi óvænti atburður furðu gegna, hafði þó einn hlutur
+vakið athygli mína. Þegar menn þessir nálguðust hvor annan, sinn hvoru
+megin við gluggarúðuna, sá ég óðara, að þeir vóru af sama kyni báðir.
+Flaug mér þá í hug, að þessi undarlegi skipstjóri mundi vera Indverji,
+enda þótt hann talaði eins og mentaður Vesturlandamaður. Sundmaðurinn
+leit út fyrir að vera almúgamaður, en eftir látbragði Núma og
+andlitsfalli að dæma, mátti ætla að hann væri frjálsborinn aðalsmaður af
+góðu bergi brotinn.
+
+Númi skipstjóri fór yfir í hinn enda salsins og opnaði kistu, sem stóð
+þar. Hann tók upp úr henni bögla marga, athugaði þá vandlega og raðaði
+þeim svo niður aftur. Í bögglum þessum var tómt gull. Gizkaði ég á, að í
+kistunni væru fimm miljónir króna í gulli.
+
+Þegar Númi var búinn að láta alt ofan í aftur, læsti hann kistunni
+vandlega, og hringdi bjöllu að því búnu. Þá komu inn 4 menn og báru
+kistuna út. Heyrði ég á fótatakinu að þeir báru hana að stiganum. Rétt á
+eftir fór Sæfarinn upp á yfirborðið; hlerarnir vóru opnaðir og kistunni
+bisað upp á þilfarið.
+
+Árla morguns daginn eftir kom Númi inn og settist að morgunverði með
+okkur. Hann var óvanalega málhreifur, en mintist þó ekki einu orði á
+það, sem gerst hafði daginn áður.
+
+"Við skulum nú borða okkur sadda", sagði hann, "það getur orðið langt
+þangað til við fáum mat aftur".
+
+Matur var nógur á borðum, eins og vant var, og réttir margir. Sá ég að
+sumir þeirra vóru búnir til úr fiski, en hvaða efni var í sumum var mér
+ómögulegt að renna grun í, og hafði ég þó borðað þá mörgum sinnum. Þeir
+vóru einkennilegir á bragðið, en mér var þó farið að fallast á þá upp á
+síðkastið.
+
+"Þér vitið ekki hvað það er, sem þér borðið", sagði Númi skipstjóri. "En
+ég get fullvissað yður um, að það er holl fæða og nærandi. Það er langt
+síðan ég og mínir menn höfum borðað annan mat".
+
+"Eru þessir réttir fengnir allir úr sjónum?" spurði ég.
+
+"Já", sagði skipstjórinn. "Ég þarf ekki annað en festa net utan á
+skipið, svo er það orðið fult af fiski eftir litla stund. En stundum fer
+ég á dýraveiðar í neðansjávarskógunum; þar eru veiðiföng bæði mikil og
+góð".
+
+"Ég get vel skilið, hvernig þér veiðið í net, en hitt er mér
+torskildara, hvernig þér farið að því, að veiða dýr í skógunum
+neðansjávar", sagði ég, "og undarlegt þykir mér það, að aldrei skuli
+vera kjötmeti á borðum yðar".
+
+"Kjöt af landdýrum sést hér aldrei".
+
+"En hvers konar steik er þetta?" spurði ég og benti á einn diskinn.
+
+"Þetta er kjöt að vísu", sagði skipsjórinn, "en það er af sæskjaldböku.
+Þetta, sem þér haldið líklega að sé svínakjöt, er höfrungalifur.
+Matsveinninn minn er vel að sér í tilbúningi matar. Rjóminn er þeyttur
+úr hvalamjólk, og sykurinn er búinn til úr eins konar þangtegund".
+
+Ég varð að samsinna því, að matsveinninn væri stöðu sinni vaxinn, því
+maturinn var ljúffengur.
+
+Númi tók til máls aftur: "Ekki nóg með það, að ég hafi öll matarföng úr
+hafinu. Klæðnaður minn er líka sniðinn af efnum þess. Þráðurinn, sem
+klæðið er ofið úr, er rakinn úr einskonar sætágum. Sængurdýnurnar eru
+troðnar út með afar-smágerðu þangi.
+
+Í stuttu máli sagt, get ég fengið úr sjónum allar lífsnauðsynjar
+mínar".
+
+Að lokinni máltíð fórum við inn í bókaklefann og reyktum vindil, sem
+auðvitað var vafinn úr blöðum af nikótínkendri sæurt. Númi sagði mér að
+ætlun sín væri að skoða grynningarnar við Mandor, en þar er mest
+perlutekja í heimi.
+
+"Eruð þér tilbúinn?" spurði skipstjórinn, lagði frá sér vindilinn og
+stóð upp. "Félagar yðar verða ef til vill með í förinni?"
+
+"Það held ég sjálfsagt", sagði ég og stóð upp. "En nú liggur Sæfarinn
+við botn og hér er 30 feta dýpi".
+
+"Það er svo til ætlast", svaraði skipstjórinn.
+
+"En getum við komist í bátinn fjórir?" spurði ég.
+
+"Nei, við förum fótgangandi".
+
+"Fótgangandi!" át ég eftir, "--á mararbotni?"
+
+"Já, einmitt það".
+
+Hann kallaði á Ned Land og Konsæl og fór með okkur miðskipa.
+
+Mér datt í hug, að annaðhvort væri skipstjórinn brjálaður, eða hann væri
+að gera skop að okkur. En svo fór hann með okkur inn í klefa einn og þá
+fór ég að renna grun í hvað í ráði væri. Á þilunum héngu kafarafatnaðir
+margir og nokkrir menn vóru þar til taks að hjálpa okkur til að fara í
+kafarafötin. Föt þessi vóru úr togleðri og öll ein samfella, skálmar,
+bolur, ermar og vetlingar. Undir iljunum vóru þung og þykk blýstykki.
+Sterkar látúnsgjarðir héldu fötunum frá brjóstinu, svo ekki skyldi
+þrengja að öndunarfærunum.
+
+En hvaðan átti svo andrúmsloftið að koma? Númi skipstjóri hafði séð ráð
+við þeim vanda. Þegar við vórum búnir að setja upp sterkan eirhjálm, sem
+festur var með látúnskraga við upphlutinn, var pípa, sem lá úr honum,
+sett í samband við hylki eitt, sem við höfðum á bakinu. Í hylki þessu
+var samþjappað loft. Fann ég að hreint loft streymdi inn í hjálminn
+þegar búið var að setja þetta saman. Um mittið girtum við belti og var í
+því hnífur, rafmagnsgeymir og rafmagnslampi, sem kveikja mátti á og
+slökkva eftir vild.
+
+Svo vórum við fullbúnir til ferðarinnar. Búningur þessi var svo þungur,
+að ég gat ekki hreyft mig úr sporunum. En Númi hafði líka gert ráð fyrir
+því. Tveir menn tóku hvern okkar og bisuðu okkur inn í hliðarklefa. Að
+því búnu lokuðu þeir hurðinni vandlega.
+
+Í klefa þessum var niðamyrkur. Ég heyrði sterkan hvin og fann kulda
+leggja upp eftir líkamanum. Klefinn var orðinn fullur af sjó, sem
+hleypt hafði verið inn í hann. Dyr vóru opnaðar á skipshliðinni og lagði
+inn um þær daufa dagsskímu. Gengum við út á mararbotninn gegnum þessar
+dyr.
+
+Þegar þangað kom fann ég ekki til þyngslanna á kafarabúningnum. Mér var
+létt um allar hreyfingar og gat ég séð til allra hliða gegnum glerrúður
+í hjálminum.
+
+Birtu lagði niður í djúpið, skærari en ég hafði búist við. Ég gat vel
+greint hluti í 100 faðma fjarlægð. Þegar lengra dró hurfu myndirnar í
+bláa móðu, sem döknaði smátt og smátt og hvarf að síðustu í
+svarta-myrkri.
+
+Sjórinn umhverfis okkur var líkur andrúmsloftinu, eins gagnsær og það,
+en miklu þéttari í sér. Hátt yfir höfði mér sá ég móta fyrir yfirborði
+sjávarins.
+
+Við gengum eftir smágerfum, ljósum sandi. Að baki okkur sáum við
+Sæfarann liggja eins og svartan, ílangan klett á botninum, en eftir
+nokkra stund hvarf hann okkur sýnum.
+
+Annað veifið gengum við fram á fiska, sem þutu upp af hræðslu, eins og
+hrossagaukar í mýri. Steinar lágu á sandsléttunni til og frá, þaktir
+lindýrum og sægróðri. Upp á háum klettum stóðu skankalangir krabbar og
+störðu á okkur.
+
+Alt í einu fór að halla undan fæti og gengum við niður brekkuna.
+Dagsbirtan varð æ daufari og daufari og að síðustu sáum við ekki annað
+en daufa rauðleita rökkurglætu.
+
+Fram undan okkur var að sjá eins og svartan vegg. Það var
+neðansjávarskógur.
+
+Eikurnar vóru eins konar trjákendir þönglar, stofnarnir þráðbeinir og
+greinarnar líka. Var mjög torvelt að komast áfram í skógi þessum. Trén
+stóðu svo þétt, að við urðum að sveigja þau til hliðar til að komast
+áfram; en trén sóktu í sama horfið aftur svo leiðin luktist að baki
+okkar.
+
+Það var nú orðið svo dimt, að við urðum að bregða upp ljósi. Varð þá
+bjart umhverfis okkur sem um hádag væri. Virtist mér gróðurinn svo
+fjölbreyttur eins og væri ég staddur í suðrænum frumskógi. En undarlega
+kom hann mér fyrir augu, þessi fáséði myrkviður, þá er ég hafði virt
+hann fyrir mér stundarkorn. Var örðugt að gera greinarmun á dýrum og
+jurtum, svo mjög líktist hvað öðru. Ruglaði ég saman sæplöntum og
+lindýrum, skelfiskum og þarastönglum.
+
+Það var afar örðugt að komast áfram í skógi þessum. Þegar við vórum
+komnir spottakorn inn í hann gerði Númi okkur vísbendingu um að nema
+staðar. Við lögðumst niður á þarabing til að hvíla okkur. Varð ég feginn
+hvíldinni, því ég var orðinn þreyttur. Það fór fyrir mér eins og öðrum
+köfunarmönnum, að mig sótti svefn. Eftir nokkra stund lét ég aftur
+augun og steinsofnaði.
+
+Ekki veit ég, hve lengi ég hefi sofið, en þegar ég lauk upp augunum,
+spratt ég á fætur í ofboði.
+
+Nokkur skref frá mér sé ég standa sækönguló meira en álnar háa, og var
+svo að sjá sem hún ætlaði þegar að ráða á mig. Ég varð skelkaður í
+svipinn, enda þótt ég vissi, að kafarafötin mundu verja mig biti hennar.
+Í sömu svifum vöknuðu félagar mínir. Réðist Númi skipstjóri á óféti
+þetta og barði það niður með byssuskeftinu.
+
+Eftir viðureignina við dýr þetta, sem var jafn andstyggilegt sem það var
+meinlaust, datt mér í hug að hæglega gæti ég rekist á dýr, sem
+kafarfötin væru ekki einhlít fyrir. Mér hafði ekki hugkvæmst það áður.
+En upp frá þessu ásetti ég mér að vera var um mig.
+
+Við lögðum af stað aftur, og vórum klukkustund að komast gegnum skóginn.
+Númi stýrði förinni og fór jafnan fremstur. Þegar komið var út úr
+skóginum fór að hækka undir fæti, og birta í sjónum.
+
+Loks nam hann staðar. Sjórinn var hreinn og tær umhverfis okkur og
+uppljómaður af sólskini. Fram undan okkur sáum við grynningar þaktar
+perluskeljum.
+
+Númi benti með hendinni yfir grynningarnar. Skeljarnar héngu á mjóum
+taugum við klappir og steina. Það vóru fádæma auðæfi, sem lágu þarna á
+mararbotni.
+
+Við reikuðum til og frá og skoðuðum skeljarnar. Ned Land flýtti sér að
+tína saman stærstu og fallegustu perlurnar.
+
+Að liðnum tíu mínútum nam skipstjórinn staðar alt í einu og benti okkur
+að fylgja sér í var, undir stórum kletti. Skamt frá okkur sáum við
+svertingja kafa niður. Var hann að freista hamingjunnar að ná í
+eitthvað, áður en perlutekjan byrjaði alment. Yfir höfðum okkar sá ég í
+botninn á bátnum hans, sem ruggaði hægt á yfirborðinu. Við annan fótinn
+á sér hafði hann bundið þungan stein til að verða fljótari að komast til
+botns. Þegar hann náði botni, losaði hann steininn við sig, lagðist á
+hnén og fór að tína skeljar í poka. Að því var hann svo sem hálfa
+mínútu. Svo fór hann upp að yfirborðinu aftur, dró steininn upp í bátinn
+á taug, sem fest var við hann, sótti í sig veðrið og stakk sér til botns
+aftur. Gekk svo koll af kolli. En hvort hann hefir fundið nokkra perlu í
+öllum þessum skeljum er ómögulegt að segja, þó hann legði lífið í hættu
+fyrir þá von.
+
+Við fengum fljótt sönnun fyrir því, hvað vinna þessi er hættuleg. Eitt
+sinn þegar svertinginn stakk sér til botns og var að leggjast á hnén
+tók hann viðbragð og snéri aftur upp til bátsins. Þá sá ég eitthvað
+dökkleitt í sjónum fyrir ofan hann. Það var hákarl, og synti beint að
+svertingjanum, með gapandi gini. Svertinginn vatt sér snögglega til
+hliðar, en þá sló hákarlinn sporðinum á hann, svo hann féll til botns.
+Hákarlinn snéri að honum aftur og sýndist þá öll von úti um
+svertingjann. Í sömu svipan óð Númi skipstjóri fram móti hákarlinum og
+mundaði hnífinn. Hákarlinn sá hann og snéri þegar að honum. Númi lét sér
+ekki bregða, en þegar hákarlinn hugðist að gleypa hann, varpaði hann sér
+til hliðar og lagði hnífnum á kaf í kvið hákarlinum. Sjórinn litaðist
+blóði og sá ég ekki hverju fram fór í nokkrar sekúndur. Þegar þeir komu
+í ljós aftur, sá ég að Númi hélt sér föstum á bæxli hákarlsins og lét
+hnífinn ganga í skrokkinn á honum, en náði þó ekki að leggja hann í
+hjartað. Hákarlinn braust um ákaflega. Mynduðust iðuköst í sjónum út frá
+honum alla vega, svo mikil, að mér lá við falli. Númi misti loks taksins
+og féll til botns. Þótti mér þá sem úti væri um hann. Ég ætlaði að
+skunda til og hjálpa honum, en þessi voðasjón fékk svo mikið á mig, að
+ég stóð sem steini lostinn og komst ekki úr sporunum. Í sömu svipan sá
+ég hvar Ned Land óð fram og hafði á lofti skutulinn. Þegar hann náði
+til hákarlsins, rak hann skutulinn á kaf í skrokkinn á honum. Sjórinn
+varð að nýju svo litaður blóði, að ég sá ekki hverju fram fór um hríð.
+Ég skreiddist nú á vettvang og var Númi þá staðinn upp. Hann gekk að Ned
+Land og tók í hönd honum fast og innilega.
+
+Svertinginn var horfinn. Hann hafði komist aftur upp í bátinn sinn, án
+þess við tækjum eftir því. Hátt uppi í sjónum sáum við svart ferlíki.
+Það var hákarlshræið sem flaut þar og barst burt með straumnum.
+
+Það var liðið langt á dag og farið að skyggja. Við urðum því að hafa
+hraðann á, að komast til skipsins aftur. Númi valdi nú aðra leið,
+styttri og greiðfærari. Við gengum í tvær stundir eftir sandsléttum.
+Vóru þær víðast auðar, en sumstaðar var sægróður mikill, þang og
+þaraflækjur, taugar og tágar, sem flæktust um fætur okkar og seinkuðu
+ferðinni. Það var nærri aldimt orðið þegar við sáum loks ljósin á
+Sæfaranum. Varð ég alls hugar feginn þegar við náðum loks skipinu, og
+tókum á okkur náðir eftir ferðalag þetta.
+
+
+
+
+V.
+
+
+Sæfarinn hélt áfram förinni. Hann rann um veglausan sægeiminn eins og
+kólfi væri skotið, dag eftir dag. Ég sat lengstum í salnum við lestur og
+rannsóknir. Nóg var úr að velja í bókasafni skipsins. En mest var þó
+vert um hina miklu bók náttúrunnar, sem Númi skipstjóri fletti upp fyrir
+mér á hverjum degi, á þann hátt að renna hlerunum frá gluggunum. Sjórinn
+sjálfur og sædýraríkið var óþrotlegt rannsóknarefni fyrir mig. Ég fann
+það brátt, að rit mitt "Um leyndardóma undirdjúpanna" þurfti mikilla
+umbóta við, því margt reyndist mér þar rangt eða ónákvæmt. Svo hafði ég
+mörgu við að bæta, svo næsta útgáfa hlaut að verða miklum mun stærri.
+
+Leiðin sem við fórum var mörkuð á kortið daglega, eins og Númi hafði
+sagt. Ég fylgdi stefnunni með athygli, vegna rannsókna minna, því á þeim
+hafði ég allan hugann og gætti naumast dagatals eða tímalengdar.
+
+Númi stýrði gegnum Persaflóann og þaðan inn í Rauðahafið. Hann hélt
+stöðugt í norðurátt og þótti mér það furðu gegna, þegar svona var langt
+komið.
+
+Lesseps var að grafa Suezskurðinn mikla um þetta leyti, en hann var ekki
+kominn nærri alla leið gegnum eiðið. Hvað ætlaði skipstjórinn fyrir
+sér? Ég var stöðugt að hugsa um það, því mér var farið að þykja nóg um.
+
+Dag einn kom Númi inn í salinn og spurði ég hann þá þegar, hvert hann
+ætlaði að fara.
+
+"Hvers vegna spyrjið þér svona! Ég ætla auðvitað yfir í Miðjarðarhafið",
+svaraði hann snúðugt. "Ég býzt við að komast þangað á morgun".
+
+"Á morgun?"
+
+"Já, prófessor góður. Eruð þér hissa á því?"
+
+"Það er nú komið upp úr á mér að vísu, að falla í stafi, þó eitthvað
+furðulegt beri við á skipi þessu. En--þá megið þér herða skriðinn
+freklega, ef þér ætlið að sigla suður fyrir Afríku og verða kominn inn í
+Miðjarðarhaf á morgun".
+
+"Suður fyrir Afríku, segið þér hr. prófessor!--Hvaða erindi eigum við
+þangað?"
+
+"Ég hélt að Sæfarinn væri ekki vel fallinn til að ferðast landveg. Og
+komist hann ekki yfir eiðið . . . . ?"
+
+"Þá fer hann undir það".
+
+"Er það fært?"
+
+"Já, ég hefi fundið göng mikil neðansjávar, sem liggja gegnum eiðið,
+djúpt í jörðu. Þau kalla ég Arabisku göngin".
+
+"Hvernig stóð á því að þér funduð þau?"
+
+"Það skal ég segja yður", svaraði skipstjórinn. "Ég hafði veitt því
+eftirtekt að í Miðjarðarhafinu og Rauðahafinu vóru nokkrar fiskitegundir
+af sama tagi. Kom mér þá til hugar að samband mundi vera milli hafanna.
+Nú er sjávarhæðin meiri í Rauðahafinu og hlaut því að falla straumur úr
+því yfir í Miðjarðarhafið. Ég gerði tilraun til að ganga úr skugga um
+þetta á þann hátt, að ég veiddi nokkra fiska nálægt Suezeiðinu, festi
+eirhringi við sporðinn á þeim og lét þá svo lausa. Þegar ég kom upp
+undir Sýrlandsstrendur nokkrum mánuðum seinna, var ég svo heppinn að
+rekast á nokkra af þessum fiskum. Ég átti nú ekki annað eftir en finna
+opið á göngunum á botni Rauðahafsins, og það hepnaðist mér um síðir. Ég
+hætti mér inn í göngin og komst í gegnum þau slysalaust. Síðan hefi ég
+farið um þau mörgum sinnum".
+
+Mér þótti þessi frásaga næsta merkileg og flýtti mér að segja félögum
+mínum af þessu. Konsæll komst á loft af ánægju, en Ned Land ypti öxlum.
+
+"Neðansjávargöng", át hann eftir; "slíkt og þvílíkt hefi ég aldrei heyrt
+talað um!"
+
+"Hafið þér heyrt talað um Sæfarann?" spurði Konsæll. "Til er hann þó,
+og hitt er engu ótrúlegra, að þessi göng séu til".
+
+"Já, við verðum víst að vona að svo sé", sagði Ned, "því fljótar komumst
+við inn í Miðjarðarhafið".
+
+Um hádegisbil daginn eftir fór Sæfarinn upp að yfirborðinu. Við
+félagarnir fórum þegar upp á þilfar. Land var að sjá langt til austurs,
+en ógreinilega þó, því þokuslæðingur lá yfir.
+
+Við vórum að spjalla saman nokkra stund. En alt í einu þagnaði Ned Land
+og benti út yfir hafið.
+
+"Lítið þið á", sagði hann.
+
+"Ég sé ekkert", svaraði ég. "Ég hefi ekki augun yðar".
+
+"Sjáið þér ekkert á hreifingu framundan á stjórnborða?"
+
+Ég neytti sjónarinnar af fremsta megni og kom loks auga á stóra skepnu,
+með langan og dökkleitan skrokk.
+
+"Koma fyrir hvalir í Rauðahafinu?" spurði Konsæll.
+
+"Það ber við að þeir flækjast þangað", svaraði ég.
+
+Ned Land hafði ekki augun af dýrinu. "Þetta er ekki hvalur", sagði hann.
+"Ég þekki hvalina og þeir þekkja mig".
+
+Sæfarinn nálgaðist skepnuna óðfluga.
+
+"Hvaða herjans dýr er þetta!" hrópaði Ned Land. "Það hefir ekki klofinn
+sporð, eins og hvalur, og önnur sundfæri þess líkjast klunnalegum
+útlimum á landdýri".
+
+"Það er sækýr, ef húsbóndanum þóknast", sagði Konsæll.
+
+"Nei, það er ekki sækýr", sagði ég. "Það er eins konar hvalur af
+höfrungakyni, sem er orðinn mjög fágætur. Hann er kallaður dýkingur."
+
+Ned Land hafði ekki augun af hvalnum. Honum stóð alveg á sama um nafnið.
+En svona hval hafði hann ekki séð áður, og brann nú í skinninu af
+vígahug.
+
+"Svona hval hefi ég aldrei drepið", sagði hann.
+
+Í þessum svifum kom Númi skipstjóri upp á þiljur og heyrði hvað Ned Land
+sagði.
+
+"Munduð þér vera fáanlegur til að taka upp fyrri starfa yðar, rétt í
+þetta sinn?" spurði Númi.
+
+Ned Land þreif ósjálfrátt báðum höndum til skutulsins.
+
+"En ég vil ráða yður til að missa ekki marks. Það getur riðið yður
+sjálfum á miklu", bætti Númi við.
+
+Ned Land setti upp kæruleysis- og fyrirlitningarsvip, en svaraði engu.
+
+"Eru þeir illir viðureignar, dýkingarnir?" spurði ég.
+
+"Já, í meira lagi", svaraði Númi. "Það eru dæmi þess að þeir hafa ráðist
+á hvalveiðamenn og hvolft bátunum undir þeim. Ég er ekki hræddur um Ned
+Land, þó ég segði svona. Ég sagði það af því ég veit, að honum þykir
+gott kjöt, en kjötið af dýkingnum er mesta sælgæti".
+
+Númi kallaði niður í skipið og komu þá 7 menn upp að vörmu spori. Þeir
+losuðu bátinn og settu hann á flot. Sex menn settust undir árar en einn
+fór að stýrinu. Við félagarnir þrír komum okkur fyrir í skutnum. Númi
+varð eftir í Sæfaranum.
+
+Skipverjar ýttu frá og lögðust á árarnar. Sóttist róðurinn fljótt og
+vórum við komnir í námunda við hvalinn innan lítillar stundar. Þegar
+fáir faðmar vóru eftir, hægðum við ferðina. Ned Land fór fram í stafninn
+og stóð þar með reiddan skutulinn. Skutultaugin var ekki föst í bátnum,
+eins og vanalegast er, heldur var endinn á henni festur við dufl, sem
+flaut á yfirborðinu, en línan var í sjó. Mátti sjá af því hvað skutlinum
+leið.
+
+Þessi dýkingur var óvanalega stórvaxinn, ýkjulaust 10 álnir á lengd.
+Hann lá í sjóskorpunni og hreyfði sig ekki, heldur en hann væri
+sofandi. Mátti því komast mjög nærri honum.
+
+Báturinn nálgaðist smátt og smátt, þangað til ekki vóru eftir nema 3
+faðmar; þá vóru árarnar lagðar upp.
+
+Ned Land stóð í stafni með reiddan skutulinn. Alt í einu heyrðist hvinur
+mikill og hvarf dýkingurinn í sömu svipan. Skutullinn hafði auðsjáanlega
+geigað frá beinni stefnu.
+
+"Fari hann í sjóðbullandi!" öskraði Ned Land í bræði sinni. "Hann slapp
+undan skutlinum".
+
+"Ekki alveg", sagði ég. "Hann hefir fengið skeinu talsverða, því sjórinn
+er blóðlitaður".
+
+"Skutulinn!" hrópaði Ned Land.
+
+Hásetarnir þrifu árarnar og reru þangað sem duflið flaut. Þegar
+skutullinn var kominn upp í bátinn var farið að elta dýkinginn.
+
+Hann var ekki særður til muna, því hann synti hratt. Hásetarnir lögðust
+á árarnar af öllum mætti. Við komumst í skotmál hvað eftir annað, og Ned
+Land var að því kominn að kasta skutlinum, en þá fór dýkingurinn jafnan
+í kaf, svo að við mistum hans. Þessi eltingaleikur stóð yfir í fulla
+klukkustund. Ég var farinn að halda að við yrðum að hætta við svo búið,
+en þá varð sú breyting á, að dýkingurinn snéri við alt í einu og kom
+rakleitt á móti okkur.
+
+Ned Land var viðbúinn að taka á móti honum.
+
+"Varið ykkur piltar!" sagði hann.
+
+Stýrimaðurinn sagði nokkur orð á sínu máli, sem að líkindum þýddu
+eitthvað svipað því sem Ned Land hafði sagt.
+
+Það fór eins og við höfðum búist við, að dýkingurinn réði þegar á bátinn
+og velti honum á annað borðið svo sjór féll inn. Var það snarræði
+stýrimannsins að þakka, að bátnum hvolfdi ekki. Hvalurinn beit því næst
+í borðstokkinn og vó bátinn á loft með kjaftinum, hvað eftir annað. Ned
+Land hélt sér með annari hendi, en í hinni hafði hann skutulinn og lét
+hann ganga jafnt og þétt í skrokkinn á hvalnum. Við kútveltumst hver um
+annan þveran í bátnum og hefðum eflaust bráðlega hlotið meiðsl eða bana,
+ef Ned Land hefði ekki tekist að leggja dýkinginn í hjartað. Hann
+linaðist í átökunum, tennurnar urguðu við járnið; svo misti hann taksins
+og sökk.
+
+Duflinu skaut upp að vörmu spori og hvalnum rétt á eftir. Hann var þá
+dauður. Við festum taug við sporðinn á honum, og hinum endanum við
+bátinn. Svo rerum við í áttina til Sæfarans með hvalinn í eftirdragi.
+
+Seinna um daginn átum við kjöt af honum að miðdagsverði. Var það
+bragðgott og engu líkara en nautakjöti.
+
+Daginn eftir héldum við áfram norður á bóginn, í hægðum okkar. Um
+náttmálaskeið var Sæfarinn við yfirborðið og fór ég þá upp á þilfar. Mig
+var farið að langa til að sjá sægöngin sem skipstjórinn hafði sagt mér
+af, og fór nú að athuga hvar við værum staddir. Þoka var yfir og myrkt
+af nóttu. Ég sá grylla í rauðleitt ljós í nokkurri fjarlægð.
+
+"Fljótandi viti", var sagt við hliðina á mér.
+
+Það var Númi skipstjóri sem talaði.
+
+"Þetta er vitinn í Suez", sagði hann. "Við erum þá og þegar komnir að
+göngunum".
+
+"Er ekki vandfarið gegnum göngin?" spurði ég.
+
+"Ójú, ég er vanur að vera í stýrisklefanum sjálfur og segja fyrir um
+stefnuna. En nú verðum við að fara niður".
+
+Þegar við vórum komnir niður, var öllum hlerum lokað og búið um
+vandlega. Sjór var tekinn inn í einn klefann og sökk þá Sæfarinn niður í
+6 faðma dýpi.
+
+Ég ætlaði að hverfa til herbergis míns, en Númi skipstjóri kallaði á
+mig.
+
+"Langar yður ekki til að koma með mér inn í stýrisklefann, prófessor
+góður?" spurði hann.
+
+"Jú, ég tek mér til þakka".
+
+Stýrisklefinn var 3 álnir á hvern veg og lítið eitt hærri. Stýrishjólið
+var í honum miðjum. Glerrúður kúptar og sterkar vóru á hverri hlið og
+mátti sjá út um þær í allar áttir frá skipinu.
+
+Ekkert ljós var þar inni. En skímu lagði inn um gluggana frá ljóskerunum
+utan á skipinu. Maður stóð við stýrishjólið og hélt báðum höndum um
+húnana. Hann var mikill vexti og þreklegur.
+
+Rafmagnsþræðir láu úr klefanum niður í vélrýmið og var sá umbúnaður við
+endana, að Númi gat ráðið stefnu skipsins og hraða með mestu nákvæmni.
+Hann hægði þegar ferðina að miklum mun.
+
+Ég stóð við gluggana á bakborða, og virti fyrir mér háa hamra, sem við
+fórum með fram. Númi hafði ekki augun af áttavitanum. Hann sýndi
+stýrimanni með bendingum hvernig hann ætti að stýra.
+
+Þegar klukkan var 15 mínútur gengin í 11 tók skipstjórinn sjálfur
+stýrið. Sáum við þá eins og hellismunna heljarstóran fram undan okkur.
+Inn í hann stefndi Sæfarinn. Úti fyrir heyrðist óvanalegur hávaði og
+straumur. Það var sjórinn úr Rauðahafinu, sem hallans vegna braust með
+heljar afli gegnum göngin, út í Miðjarðarhafið. Sæfarinn barst með
+straumnum eins og kólfi væri skotið og hafði þó vélin aftur á af öllum
+mætti.
+
+Ég var með öndina í hálsinum af undrun og aðdáun. Göngin vóru svo þröng,
+að skipið straukst nærri með hliðveggjunum. Var sem eldrákir með öllum
+litum regnbogans flýgju fyrir gluggana, vegna birtunnar sem lagði á
+bergið frá skipinu.
+
+Klukkan 5 mínútur yfir hálf 11 slepti Númi stýrishjólinu og snéri sér að
+mér.
+
+"Miðjarðarhafið!" sagði hann.
+
+Ferðin undir eyðið hafði ekki staðið yfir nema 20 mínútur.
+
+Morguninn eftir hitti ég Ned Land og Konsæl á þilfarinu. Þeir höfðu
+sofið báðir á leiðinni gegnum sægöngin og ekki haft hugmynd um hvað fram
+fór.
+
+"Þá erum við nú komnir í Miðjarðarhafið", sagði ég.
+
+"Ekki held ég það sé nú orðið enn", sagði Ned Land.
+
+"Svo er það ei að síður", sagði ég. "Ströndin sem við sjáum móta fyrir í
+suðri er Egiptaland".
+
+"Já, annað hvort það, eða eitthvað annað", svaraði Ned.
+
+"Úr því húsbóndinn segir að svo sé, þá verðið þér að trúa húsbóndanum",
+sagði Konsæll.
+
+"Þér, Ned Land, sem hafið svo hvassa sjón, hljótið að sjá hafnarvirkin í
+Port Said", sagði ég.
+
+Ned Land horfði þangað stundarkorn. "Jæja, það er fyrirtak", sagði hann.
+"Við erum þá í Miðjarðarhafinu í raun og veru. Heyrið þér prófessor, við
+getum þá farið að ráða ráðum okkar".
+
+Ég vissi vel hvað Ned Land átti við, en ég lét sem ég skildi hann ekki.
+
+"Er ekki einmitt núna tækifæri til að strjúka frá Sæfaranum?" hélt hann
+áfram.
+
+"Það er nú hægar ort en gert", sagði ég.
+
+Ned Land var bráðlátur eftir frelsinu, og orðinn heldur skapstyggur upp
+á síðkastið.
+
+"Það getur nú verið", sagði hann. "En einhver endir verður að vera á
+þessu".
+
+Ég vissi það vel, að Ned Land átti óþolandi æfi á skipinu. Hann var
+vanur sjálfræði og svaðilförum á hvalaveiðum. Það lamaði þrótt hans og
+heilsu, að vera einangraður svona í iðjuleysi. En ég reyndi að draga
+flóttann á langinn, því ég átti margt eftir óséð og órannsakað í
+hafinu.
+
+"Alt hefir einhvern enda", sagði ég. "Þegar við komum í námunda við
+Frakkland, England eða Norður-Ameríku, getur vel farið svo að betra færi
+bjóðist, þegar minst varir".
+
+"Þegar við komum þangað eða þangað" sagði Ned og ygldi brúnina. "En nú
+erum við í Miðjarðarhafinu.--Er það ekki eins gott og allir hugsanlegir
+staðir aðrir?"
+
+Ned hafði rétt að mæla, svo að ekki varð á móti borið. Ég vissi ekki
+hverju ég átti að svara.
+
+"Hvað heldur Konsæll um þetta?" spurði Ned Land.
+
+Konsæll sagði það sannast, að hann hefði enga hugmynd gert sér um þetta.
+Hann átti enga vini eða ættingja, sem þráðu hann. Hann var allur þar sem
+ég var. Hans skilningur á málinu var, í fám orðum sagt, "eins og
+húsbóndanum þóknaðist".
+
+Ég var neyddur til að fastákvarða eitthvað.
+
+"Ég er hræddur um, að við getum ekki bygt neitt á Núma skipstjóra",
+sagði ég. "Okkur er kunnugt um leyndarmál hans og þess vegna lætur hann
+okkur ekki lausa. Við verðum því að nota fyrsta færi sem gefst til að
+strjúka frá Sæfaranum".
+
+"Það er einmitt það sem ég hefi í hyggju", svaraði Ned.
+
+"En fyrsta tilraunin verður að lánast", sagði ég. "Lánist hún ekki,
+verður okkar gætt svo vandlega, að færið gefst aldrei aftur. Við verðum
+að fara varlega".
+
+"Rétt er það", sagði Ned Land. "En gefist gott tækifæri,--ætlið þér þá
+að vera tilbúinn að nota það?"
+
+"Já".
+
+Ned Land hafði hugsað sér, að annaðhvort yrðum við að synda í land, ef
+Sæfarinn flyti nálægt landi að nóttu til, eða við tækjum bátinn og rerum
+til lands á honum. En þetta hvorttveggja var ógerlegt, eins og nú stóð
+á. Sæfarinn hélt sig langt frá löndum og var lengstum í kafi; rétt eins
+og skipstjórinn hefði eitthvert hugboð um ráðagerð okkar.
+
+Einn dag sem oftar var ég sokkinn niður í rannsóknir mínar, inni í
+salnum. Við vórum þá komnir suður fyrir Krít. Kom þá yfir mig svo mikill
+hiti, að ég varð að losa um föt mín. Ég skildi ekki í því hvaðan sá hiti
+stafaði. Við vórum staddir á 10 faðma dýpi, en þar er hitinn litlum
+breytingum háður. Mér datt í hug að einhver veiki væri að leggjast á
+mig. En hélt þó áfram við iðju mína; en hitinn óx og varð með öllu
+óþolandi. Ég ætlaði að fara burt úr salnum, en í því kom Númi skipstjóri
+inn, og gekk að hitamælinum.
+
+"Fjörutíu og tvö stig", sagði hann.
+
+"Já, hvaðan sem þessi hiti stafar, þá er hann óþolandi", sagði ég.
+
+"Hann verður ekki meiri en við viljum vera láta", sagði Númi.
+
+"Þá finst mér að þér ættuð að draga úr honum", sagði ég.
+
+"Það get ég ekki", sagði skipstjórinn. "En ég get siglt burt frá honum".
+
+"Kemur hann utan að?" spurði ég.
+
+"Já, skipið flýtur í sjóðheitum sjó".
+
+Í sömu svipan var gluggahlerunum skotið frá. Sá ég þá að sjórinn var
+hvítur umhverfis Sæfarann. Alt var ein gufuólga eins og í sjóðandi hver.
+
+Ég studdi hendinni á rúðuna, en varð að kippa henni að mér hið bráðasta,
+vegna hitans.
+
+Númi sagði að við værum í nánd við eldfjall neðansjávar, sem væri að
+gjósa.
+
+Ég leit út um gluggann. Sæfarinn lá kyr, því engin leið var að komast
+lengra, vegna hitans. Sjórinn breytti lit og roðnaði smátt og smátt.
+Stafaði sá litur frá síndri og ösku sem þyrlaðist í sjónum eins og ryk
+í lofti. Brennisteinsfýlu megna lagði um skipið, en í nokkurri fjarlægð
+brutust fram lyfrauðar logatungur, svo bjartar, að rafljós Sæfarans varð
+að engu fyrir þeim.
+
+Nú var ekki viðlit að haldast við lengur vegna hitans.
+
+Númi skipaði að snúa við. Stundarfjórðungi síðar drógum við að okkur
+svalt og hreint loft á yfirborði sjávar.
+
+
+
+
+VI.
+
+
+Við vórum komnir út í Atlantshaf.
+
+Ned Land var inni hjá mér. Við höfðum enga tilraun getað gert til að
+flýja á leiðinni gegnum Miðjarðarhafið. Nú sat hann þarna brúnaygldur og
+beit á jaxlinn.
+
+"Það er engin ástæða til að láta hugfallast", sagði ég. "Nú förum við
+upp að Portúgalsströndum. Frakkland og England eru skamt á burtu. Ég
+trúi ekki öðru en færi gefist eftir nokkra daga".
+
+Ned Land leit á mig og opnaði munninn.
+
+"Það verður að gerast í kvöld", sagði hann.
+
+Mér hnykti við. Ég hafði satt að segja ekki búist við svo skjótri
+breyting á högum mínum. Mér varð orðfátt í svipinn.
+
+"Í kvöld verðum við örfáar mílur undan landi", sagði Ned Land. "Nóttin
+er dimm og vindur stendur á land. Þér hafið heitið að láta ekki standa á
+yður, hr. prófessor".
+
+Ég svaraði engu.
+
+"Klukkan níu!" sagði hann ennfremur. "Þá er Númi inni í klefa sínum og
+skipverjar geta ekki heyrt til okkar. Í bátnum eru árar, mastur og segl.
+Ég hefi fengið mér skrúflykil, mátulegan fyrir skrúfurnar sem báturinn
+er festur með. Alt er til taks. Konsæll verður með mér, þegar ég fer að
+losa bátinn, en þér bíðið í bókaklefanum þangað til ég gef yður
+vísbendingu".
+
+Ned Land gekk út, og beið ekki eftir að ég svaraði. Og þegar á alt var
+litið,--hverju átti ég að svara? Það var rétt sem hann sagði, við urðum
+að nota tækifærið. Við gátum verið komnir langt út í haf daginn eftir.
+
+Ég hélt til í herberginu mínu það sem eftir var dagsins. Ég var í svo
+mikilli geðshræringu, að ég var hræddur um að Númi veitti því eftirtekt,
+ef hann sæi mig. Tilfinningar mínar voru tvískiftar: Ég hlakkaði til að
+verða aftur frjáls maður og komast til vina og vandamanna. En mér
+leiddist að skilja við hið mikla furðuverk mannlegrar snildar, Sæfarann,
+og vera ekki hálfnaður með vísindaleg störf og rannsóknir sem ég hafði
+með höndum. Það var ljóti dagurinn. Ýmist hugleiddi ég alla þá ánægju,
+sem ég nyti þegar ég kæmi á land, eða ég óskaði með sjálfum mér að
+eitthvað kæmi fyrir, sem hindraði Ned Land að fremja fyrirætlun sína.
+
+Miðdagsmatinn át ég ekki fyr en kl. var orðin sjö. Þá vóru einir 2 tímar
+eftir! Óþreyjan ætlaði að gera út af við mig. Ég gat ekki setið kyr, en
+varð að fara að ganga um gólf. Mér datt í hug að alt gæti komist upp
+áður en við kæmumst burt frá skipinu. Og svo yrðum við dregnir fyrir
+Núma skipstjóra, sem yrði stórreiður, eða það sem verra var, hryggur
+yfir því, að ég skyldi bregðast honum. Ég fékk ákafan hjartslátt.
+
+Ég gekk inn í salinn til að sjá enn einu sinni herbergið, sem ég hafði
+lifað í svo margar ánægjustundir og drukkið af bikar vísindanna, og
+virða fyrir mér í síðasta sinn öll þau furðuverk, sem þar vóru geymd.
+
+Klukkan sló átta.
+
+Ég leit á skipstjórnaráhöldin. Áttavitinn sýndi að við héldum áfram
+norðureftir, með fram ströndinni. Hraðinn var ekki mikill og djúpstaða
+skipsins var 10 faðmar. Alt þetta var svo hentugt sem orðið gat fyrir
+fyrirætlun okkar.
+
+Svo snéri ég aftur inn í herbergið mitt, fór í hlýjan fatnað, tók saman
+skjöl mín öll og annað sem ég þurfti að hafa meðferðis. Svo var ég
+ferðbúinn.
+
+Þegar klukkan var að verða níu, lagði ég eyrað við hurðina á
+skipstjóraklefanum og hleraði, en varð einskis var. Ég yfirgaf herbergið
+mitt og fór inn í salinn. Þar var hálfbjart og enginn maður inni.
+
+Ég opnaði dyrnar að bókaklefanum, þar var jafn draugalegt. Ég
+staðnæmdist við hurðina sem lá að miðskips-ganginum og beið þar eftir
+vísbendingu frá Ned Land.
+
+Alt var kyrt og hljótt. Snúningshnykkir vélarinnar var eina hljóðið sem
+heyrðist. En meðan ég stóð þarna og hlustaði, urðu þeir smátt og smátt
+strjálli og hægari og hættu loks með öllu.
+
+Hvað var nú á seyði? Dauðaþögn var alt umhverfis. Blóðið suðaði fyrir
+eyrum mér eins og ég væri með hitasótt.
+
+Ég varð var við dálítinn kipp, sem ég kannaðist við. Sæfarinn var að
+leggjast á mararbotninn, en engin vísbending kom frá Ned Land.
+
+Alt í einu opnaðist hurðin að salnum og Númi skipstjóri kom inn.
+
+"Þér eruð þá hérna", sagði hann, "ég hefi verið að leita að yður
+alstaðar. Eruð þér kunnugur sögu Spánverja?"
+
+Ég var svo ruglaður, að ég mundi ekki í svipinn eitt orð úr sögu
+Spánar. Að eins örfá nöfn flugu mér í hug: Philip--númer eitthvað og
+Karl--Karl fimti. En það var víst ekki þetta, sem skipstjórinn átti við.
+
+Ég heyrði hann endurtaka spurninguna, og gerði nú mitt ítrasta til, að
+koma fyrir mig orði.
+
+"Ég er mjög illa að mér í henni" svaraði ég.
+
+Númi ypti öxlum og settist niður. Ég settist líka, eins og ósjálfrátt.
+
+"Þá skal ég segja yður dálitla sögu", sagði Númi. "Lúðvík 14. konungur
+yðar gerði sonarson sinn að konungi á Spáni, eins og yður er kunnugt um.
+Lúðvík lét alt eftir sér, sem hann gat. Spánverjum mátti líka standa
+nokkurn veginn á sama hvort þeim var illa stjórnað af frönskum prins eða
+austurrískum, enda létu þeir svo búið standa. En Holland, Austurríki,
+England og Þýzkaland bundust samtökum til að koma honum frá völdum og
+setja í stað hans erkihertoga frá Austurríki.
+
+Spánverjar höfðu hægt um sig. Það var það eina sem þeir gátu gert.
+Filippus gerði slíkt hið sama. Hann gerði það eina sem í valdi hans
+stóð, en það var að senda til Ameríku eftir peningum. Síðari hluta
+ársins 1702 stefndu nokkur skip, hlaðin gulli, að ströndum Spánar. Þeim
+fylgdi franskur herfloti undir forustu Chateau-Renards. Þeim var ætlað
+að lenda í Kadiz; en sú borg var þá í hervörzlum enskra skipa.
+Chateau-Renard fór þá vestur með landi og inn í Vióflóann við
+útnorðurströnd Spánar. Þar ætlaði hann að koma gullinu á land. En þá
+risu borgararnir í Kadiz upp öndverðir og andmæltu því. Þeir áttu
+einkarétt á að afferma öll skip, sem komu frá amerísku nýlendunum, og
+héldu nú fast á þessum rétti sínum. Filippus var gunga og þorði ekki
+annað en gera að vilja þeirra. Flotinn lá í Vióflóanum þangað til enskur
+floti, miklu stærri, kom og réði á hann 22. október.
+
+Chateau-Renard varðist í lengstu lög. En þegar hann sá ekkert undanfæri
+lengur kveikti hann í skipunum og þar sukku öll auðæfin í sjávardjúp".
+
+Ég heyrði tæplega hvað Númi sagði, og því síður að ég fylgdist með
+efninu. Ég hafði allan hugann á fyrirætlun okkar félaganna, og beið
+eftir því sem verða vildi.
+
+Númi horfði á mig með háðslegu augnaráði, og reyndi ég þá að láta svo
+sem ég veitti máli hans glögga athygli.
+
+"Núna erum við staddir í Vióflóanum", sagði hann. "Viljið þér líta á,
+prófessor?"
+
+Númi stóð upp og gekk inn í salinn. Ég fór á eftir honum. Ekki var ljós
+þar inni, en gluggarnir vóru opnir og sjórinn uppljómaður kring um
+skipið.
+
+Rafljósið bar birtu langan veg yfir mararbotninn til allra hliða og
+mátti glögt greina alla hluti sem nálægir voru, eins og um hádag væri, á
+þurru landi. Botninn var sléttur og þakinn hvítum sandi. Skipsflök láu
+til og frá og kringum þau breiður af kössum, kirnum og alls konar hlutum
+öðrum. Innanum alt þetta láu dyngjur af gulli, slegnu og óslegnu, silfri
+og gimsteinum. Nokkrir menn af Sæfaranum vóru að vinnu kringum skipið,
+klæddir kafarabúningi. Þeir söfnuðu gulli og gimsteinum í stórar byrðar
+og báru inn í Sæfarann. Fór svo fram um stund.
+
+Mér fanst svo mikið um þessa sjón, að ég gætti í svipinn einskis annars,
+en virða fyrir mér auðæfin, sem dyngt var inn í skipið.
+
+"Skilst yður nú að ég sé auðugur?" spurði Númi. "Svo er víst", svaraði
+ég, "en hvað getið þér gert við alt þetta fé?"
+
+"Hvað ég geri við féð!" át hann eftir. Svo stóð hann hugsi stundarkorn
+og horfði út í sjóinn. Gremjulegt bros lék um varir hans, þegar hann tók
+til máls aftur: "Þér haldið auðvitað að ég sé með öllu skilinn að
+skiptum við þurlendið og þá, sem það byggja. En þegar ég nú segi yður,
+að svo er ekki, þá skilst yður sjálfsagt, að ég hafi nóg við féð að
+gera".
+
+Númi settist niður við gluggann, snéri sér að mér og tók aftur til máls:
+
+"Ég sé að þér skiljið það, þér vitið eins vel og ég, að alt má kaupa
+fyrir peninga þar efra. Það er ekki nóg að fórna lífi sínu og sinna, þó
+hver einstaklingur heillar þjóðar úthelli blóði sínu fyrir
+fósturjörðina,--hver hirðir um það! Hjartablóð heillar þjóðar er einskis
+virði í kauphöllinni. Alt er að engu metið nema peningar, miklir
+peningar!" Númi spratt upp og krepti hnefana. "Kaupmenn, kaupmenn!"
+þrumaði hann. "Dýrslega sinnaðir, samvizkulausir . . . "
+
+Hann þagnaði alt í einu, eins og hann þættist hafa sagt meira en hann
+ætlaði. Eftir stundarþögn snéri hann sér aftur að mér og var þá búinn að
+ná aftur sínum vanalega svip hörku og stillingar.
+
+"Margir eru bágstaddir þar efra og þurfa hjálpar með", sagði hann og fór
+út úr salnum.
+
+Mér varð litið út og sá að mennirnir vóru enn að bera inn gullið. En ég
+festi ekki hugann við það frekar.
+
+Mér skildist það á því sem Númi sagði, að hann mundi hafa verið flæmdur
+út úr mannfélaginu og að hann hefði lagt mikið í sölurnar fyrir
+eitthvert málefni. En hvaða málefni? Og hver var hann?
+
+Ég var alveg búinn að gleyma flóttatilraun okkar. Ég lá andvaka mestalla
+nóttina og var að brjóta heilann um Núma skipstjóra.
+
+Morguninn eftir kom Ned Land inn til mín og vakti mig. Hann staðnæmdist
+fyrir innan þröskuldinn, stakk höndunum í vasana og var alt annað en hýr
+á svipinn.
+
+"Það varð lítið úr þessu, í gær", sagði ég til að rjúfa þögnina.
+
+"Já, skipstjóra-þrælbeinið þurfti nauðsynlega að koma út í því ég ætlaði
+upp í bátinn", svaraði Ned.
+
+"Hann var að taka út peninga í gærkveld", sagði ég.
+
+Ned Land leit við mér gremjulega. Hann var ekki á því að taka gamni.
+
+Ég sagði honum frá öllu sem ég hafði séð og heyrt, kvöldið áður. En það
+hafði alls engin áhrif á hann.
+
+"Við verðum að reyna aftur í kvöld", sagði hann.
+
+"Í hvaða átt höldum við núna?" spurði ég.
+
+"Veit það ekki".
+
+"Jæja, við skulum athuga það um hádegið".
+
+Ned Land fór aftur inn til Konsæls. Þegar ég var klæddur, fór ég inn í
+salinn. Áttavitinn spáði ekki góðu. Sæfarinn stýrði í suður--landsuður.
+Við snérum baki við Evrópu!
+
+Ég beið með óþreyju eftir því, að leið skipsins yrði mörkuð á kortið.
+Klukkan hálf tólf vóru sökkviklefarnir tæmdir og Sæfaranum skaut upp að
+yfirborðinu. Ég flýtti mér upp á þilfar. Ned land var kominn þangað á
+undan mér.
+
+Við sáum hvergi til lands. Ekkert annað en endalausa hafbreiðuna og
+nokkur segl út við sjónhringinn. Ylgja var í sjóinn og skýjafar mikið á
+lofti. Það var stórviðri í aðsigi.
+
+Ned Land náði ekki upp í nefið á sér fyrir gremju. Þegar dró frá sólu
+rétt á eftir, leitaði hann landa með augunum, en varð einskis var.
+Næstráðandi notaði tækifærið til að taka sólarhæðina.
+
+Stundu síðar leit ég á kortið. Við vórum 100 mílur undan landi. Öll von
+um undankomu var úti að þessu sinni.
+
+Ned Land féll það þungt, en mér varð aftur hughægra, og fór nú að gefa
+mig við rannsóknum mínum í ró og næði, eins og áður.
+
+Númi skipstjóri kom inn til mín um kvöldið og spurði með mestu alúð,
+hvort mig langaði ekki til að vera með sér á útgöngu á mararbotni.
+
+"Þér hafið jafnan verið á þess konar ferðum að deginum. Langar yður ekki
+til að fara eina ferð að næturlagi?" sagði hann.
+
+Ég þektist það.
+
+"Ég skal segja yður það fyrir, að þetta verður löng og ströng ganga. Við
+förum upp á hátt fjall og vegirnir eru illa ruddir hér í djúpinu", bætti
+hann við og brosti.
+
+Ég kvaðst vera við öllu búinn. Svo fórum við niður að hafa fataskifti.
+Ég þóttist vita að við ættum að vera tveir einir, því Númi hafði ekki
+boðið félögum mínum að vera með í förinni.
+
+Það gekk fljótt að koma okkur í kafarafötin. Þéttiloftshylkin vóru
+bundin á bak okkur, en það leit út fyrir að þeir ætluðu að gleyma
+rafljóskerunum, og hafði ég orð á því við skipstjórann.
+
+"Við þurfum ekki á þeim að halda", sagði hann.
+
+Ég hélt að mér hefði misheyrst, en varð of seinn til að endurtaka
+spurninguna, því Númi var þá búinn að setja upp hjálminn. Mér var
+fenginn járnsleginn stafur í höndina. Að því búnu gengum við út á botn
+Atlantshafsins á hundrað og fimmtíu faðma dýpi.
+
+Klukkan var tólf um nóttina, þegar við lögðum af stað. Ljósin á
+Sæfaranum lýstu okkur á veg en hurfu brátt sýnum. Vórum við þá staddir í
+nyðamyrkri.
+
+Númi benti mér á rauðleitan depil í svo sem mílu fjarlægð. Þegar lengra
+dró varð hann bjartur sem eldur og bar svo mikla birtu um sjóinn, að vel
+var ratljóst.
+
+Mararbotninn var sléttur en fór hækkandi. Hallinn var þó svo lítill að
+við urðum hans varla varir. Við þrömmuðum áfram jafnt og þétt og
+stefndum á ljósdepilinn. Förin gekk þó heldur seint. Víða sukkum við
+niður í aurbleytu eða flæktumst í þangbeðjum, og innanum þetta var krökt
+af skelstönglum og hellusteinum.
+
+Ég heyrði yfir höfði mér einskonar snark, eða smelli, sem urðu stundum
+svo hvellir, að þeir líktust stöðugri skothríð. Þetta var stórfeld
+rigning, sem dundi á yfirborðinu. Var þetta, með öðru fleira merki þess,
+hve glögt hljóð heyrist gegnum vatn. Mér flaug í hug sem snöggvast, að
+nú mundi ég verða holdvotur í rigningunni. En svo hló ég að sjálfum mér.
+Ég hafði gleymt því í svipinn, að ég var staddur niðri í vatni í
+vatnsheldum kafarafötum.
+
+Eftir hálfrar stundar göngu urðu fyrir okkur klettar og urðir. Vóru
+allar gjótur fullar af blikdýrum, sæfjöðrum og öðrum óþektum skeldýrum,
+sem öll loguðu í maurildisglæringum, en steinarnir vóru þaktir sæurtum
+og íglum. Var heldur sleipt undir fæti sumstaðar og kom mér nú stafurinn
+í góðar þarfir. Þegar ég leit aftur, sá ég móta fyrir ljósinu á ljóskeri
+Sæfarans, en mjög ógreinilega sökum fjarlægðarinnar.
+
+Það vakti athygli mína, að grjóturðirnar, sem við fórum yfir, vóru
+einkennilega reglulega lagaðar. Sumstaðar sá ég langar glufur eða
+gjótur, sem lágu eitthvað út í myrkrið, svo hvergi sá fyrir endann á
+þeim. Ég varð líka var við, að eitthvað var alt af að brotna undir
+blýskónum mínum. Var brothljóðið líkast því, sem það væru þur bein. Ég
+laut niður og tók um einn af þessum hlutum. Kom þá í ljós að þetta var í
+raun og veru bein, og ég gat ekki betur séð en það væru mannsbein.
+
+Ljósið sem við stefndum á, fór alt af stækkandi, eftir því sem nær dró.
+Var það nú að sjá sem stórkostlegt bál, út við sjónhringinn. Ég fór nú
+að verða forvitinn, en var þó við öllu búinn. Ég var búinn að sjá og
+reyna svo margt furðulegt á þessum sæferðum. Skyldi vera mannabygð
+þarna, hugsaði ég með sjálfum mér. Ætli skipstjórinn eigi nú ekki vini
+þarna, sem hann ætlar að heimsækja, menn sem hafa verið reknir í útlegð
+og fundið griðastað þarna á mararbotni, menn sem hafa verið orðnir
+fullsaddir af lýgi, ranglæti og yfirdrepskap mannkynsins!
+
+Ekki var það óhugsandi. Ég var orðinn auðtrúa eftir öll þau undur og
+kraftaverk, sem ég hafði reynt af Núma skipstjóra. Það gat hugsast að
+hér væri bygð borg af vitrum mönnum og hugrökkum, sem þektu tökin á
+lögmálum náttúrunnar og skildu leyndardóma hennar.
+
+Það lýsti meir og meir umhverfis okkur. Skínandi birtu lagði upp af
+fjallstindi fram undan okkur, á að gizka 800 feta háum. Ég sá þó ekki
+ljósið sjálft, en birtan brotnaði í sjónum og barst til allra hliða.
+Ljóslindin sjálf, hver sem hún svo var, hlaut að vera hinum megin við
+fjallið, því sú hliðin, sem að okkur snéri var hulin skugga, en hnúkar
+og hamraskörð báru við ljóshafið hins vegar.
+
+Númi skálmaði áfram hratt og hiklaust, yfir urðir og ógöngur og hvað sem
+fyrir varð. Var auðséð, að hann hafði farið hér um áður og var kunnur
+öllum leiðum. Ég fylgdi eftir hiklaust og ósmeikur. Ég dáðist að Núma og
+hafði á honum tröllatrú; mér kom ekki einu sinni til hugar, að hann gæti
+farið afvega.
+
+Eftir klukkutíma göngu komum við að fjallsrótunum. Varð þar fyrir okkur
+einstigi eitt mjótt og ilt yfirferðar, en ekki mátti annan veg komast
+upp í fjallshlíðina. Til beggja hliða var trjáskógur mikill og
+hrikalegur. Ekki vóru það lifandi lauftré sem við sáum, heldur
+lauflausir og lífvana steingervingar sem mynduðu þennan mirkvið. Var
+hann líkur afarstórri kolanámu, sem enn hafði ekki orðið fyrir þrýstingi
+þungra jarðlaga. Trén stóðu á sterkum rótum í botninum, en kolsvartar
+greinarnar gnæfðu upp í skínandi sjóinn líkt og kliptar bréfmyndir,
+límdar á gluggarúðu að kvöldi dags. Gatan var gróin íglum og þara og
+þakin aragrúa af skeldýrum. Við gengum ýmist eða klifruðum yfir kletta
+og klungur, klofuðum yfir fallna trjástofna og tróðumst gegnum
+þaraflækjur, sem fléttaðar vóru milli trjágreinanna.
+
+Að baki okkur grilti ég klettaklungrin svört og hrikaleg, en fram undan
+glóði rauður ljósbjarminn og geislastafirnir stefndu í allar áttir, með
+undarlegum litbrigðum og ljósbroti. Hér og hvar losnuðu stórir steinar
+undan fótum okkar, og ultu ofan brekkuna með dynkjum og skruðningi, sem
+skriða félli. Til beggja handa lágu gjár og glufur kolsvartar og svo
+langar, að ekki sá fyrir endann. Sumstaðar urðu fyrir okkur bjartir
+gangar og greiðir stígar, eins og væru það vegir ruddir af manna
+völdum. Ég bjóst við að mæta sæbúum þessum þá og þegar.
+
+Númi hélt stöðugt áfram upp brekkuna og ég vildi ógjarna dragast aftur
+úr. Kom nú stafurinn í góðar þarfir, því mjó og tæp var gatan sumstaðar,
+en hengiflug að neðan. Furðu greitt gekk þó ferðin, og ekki fann ég til
+lofthræðslu. Stundum hljóp ég yfir hyldýpisgjár, sem mér hefði óað við
+uppi á þurlendinu, eða ég stiklaði yfir þær á völtum trjástofnum. Það
+var eins og ég yrði ekki var við hættuna, svo var hugur minn gagntekinn
+að hrikafegurð eyðimerkur þessarar. Á stöku stað slúttu klettarnir fram
+yfir undirstöðu sína, eins og þeir væru að leika sér að því, að bjóða
+jafnvægislögmálinu byrginn, og enn sá ég þar háa og hornótta steindranga
+gnæfa við himininn, svo hallfleytta og mjóa að neðan, sem væru þeir með
+öllu undanþegnir þyngdarlögmálinu.
+
+Þéttleiki vatnsins olli því, að mér var ótrúlega létt um allar
+hreifingar. Kafarafötin vóru ákaflega þung; ég hafði koparhjálm á höfði
+og þykka blýsóla undir iljunum; þó stiklaði ég eins og steingeit upp
+snarbrattar brekkur og fann ekki til þreytu eða mæði.
+
+Að liðnum tveim stundum frá því við fórum af stað, vórum við komnir út
+úr skóginum. Enn þá vóru hundrað faðmar eftir upp að fjallsgnýpunni.
+Mergð af fiskum þaut upp undan fótum okkar, eins og fuglar flýgi upp úr
+grasi. Hér og hvar vóru djúpar gjótur og glufur í klöppunum. Vóru þær
+fullar af alls konar dýrum og ófreskiskvikindum. Urguðu þau saman klóm
+og gripklumbum niðri í myrkrinu, svo ægilega, að hrollur fór um mig
+allan. Verra þótti mér þó þegar langar og hrikalegar griptengur lögðust
+þversum fyrir framan fætur mína, svo ég komst ekki áfram. Niðri í
+myrkrinu glóðu þúsund glyrnur, eins og í eld sæi. Það vóru augu
+risastórra kolkrabba og humra. Var að heyra urg og ískur eins og sargað
+væri saman járnum, þegar þeir jöpluðu skoltunum. Fleira var þar ferlegra
+dýra. Afarstórir krabbar hvíldu þar á bumbunni eins og fallbyssur á
+stálstöplum, og biðu eftir bráð, og ægilegir smokkfiskar teygðu angana í
+allar áttir eins og lifandi höggorma.
+
+Ég hafði séð margt og reynt og þó brast mig kjark meðal þessara ferlegu
+kvikinda, sem ógnuðu mér frá öllum hliðum. En Númi lét ekki þetta á sig
+fá. Hann hélt áfram hiklaust og óhræddur og ég var til neyddur að fylgja
+honum eftir.
+
+Við komumst upp á stall, breiðan og víðáttumikinn, og bar mér þar enn
+fyrir augu ávænt sjón. Það vóru rústir af byggingum,--verulegum
+mannvirkjum. Innan um þústir og þyrpingar gat að líta hús og hallir og
+háreist musteri, alt sígróið sæliljum, þönglum og þaragresi.
+
+Hvert var það undraland, sem hér hafði sokkið í sæ fyrir árdaga allrar
+sögu? Hvaða þjóð hafði átt þá fornaldarfrægð, sem hér var fallin í
+gleymsku og dá og Númi skipstjóri leyfði mér einum að líta?
+
+Mig langaði til að spyrja Núma um þetta. Það var komið að mér að svifta
+hjálminum af höfði mér, til þess að geta talað. En Númi gerði ekki annað
+en benda upp á fjallstindinn, eins og hann ætlaði að segja:
+
+"Höldum áfram! lengra, lengra!"
+
+Ég gerði mitt ítrasta til að hafa við Núma og eftir nokkra stund komumst
+við upp og stóðum á fjallstindinum.
+
+Þeim megin, sem við komum upp var fjallsgnýpan ekki nema 800 fet upp frá
+jafnsléttu. En hinum megin var hafið helmingi dýpra og mændi tindurinn
+tignarlega út yfir hyldýpið. Útsýn var glögg og geipivíð.
+
+Niður undan var slétta allstór og brann þar bál ógurlega mikið. Fjall
+þetta var eldfjall. Af tindinum var ekki lengra en sem svaraði sjötíu
+fetum niður að afarstórum eldgýg. Upp úr honum þeyttist glóandi gjall og
+hraunleðja, sem valt fram í logandi hringiðum og straumköstum, eins og
+fossandi eldflóð. Þessi heljarmikli kyndill bar svo mikla birtu, að
+allur mararbotninn var uppljómaður svo langt sem augað eygði.
+
+Og þarna niður undan tindinum vóru leyfarnar af stórri borg, sem lá í
+rústum á mararbotni, umturnuð og eyðilögð. Hrunin hús og musteri,
+brotnir bogar og raðir af föllnum steinsúlum. Þar gat að líta leyfar af
+stórkostlegri vatnsveitu, háreistu höfuðvígi, umkringdu mörgum musterum,
+hafnarveggjum, sem eitt sinn höfðu staðið fyrir brimróti hafsins og
+veitt vernd og skjól fjölda skipa. Enn mátti sjá löng og breið torg og
+stræti og umhverfis alt þetta stóra garða af hrundum borgarmúrum.
+
+Hvar var ég staddur og hver var þessi borg?
+
+Ég þreif í handlegginn á Núma til að láta hann skilja, að ég yrði að fá
+einhverja vitneskju um þetta.
+
+Hann tók upp stein, sem líktist krít, gekk að hellubjargi, sem var þar
+nærri og skrifaði á það að eins eitt orð--: "Atalanta".
+
+Það var nóg.--Mér flugu í hug gamlar grískar sagnir um borgina, sem
+hafið gleypti á einni svipstundu. Munnmælasögur fornar, sem margsinnis
+höfðu verið dæmdar markleysa ein.
+
+Þetta land, sem sögurnar sögðu frá, hafði þá verið til í raun og veru,
+og ég stóð nú á jörð þessa lands! Land þetta var afarstórt flæmi, vestur
+af Afríku og Evrópu. Það sökk í sæ, svo að eins hæstu fjöllin stóðu upp
+úr, þau sem nú eru kölluð Asoreyjar og Madeira.
+
+Í fulla klukkustund sátum við þarna og virtum fyrir okkur þessa fágætu
+sýn. Hraunflóðið magnaðist öðru hvoru og jók birtuna. Fjallið nötraði
+undir fótum okkar og dunur og dynkir bárust til eyrna okkar gegnum
+vatnið.
+
+Mér datt í hug hvort ekki mundi nú einhverntíma sá dagur koma, að ný
+náttúrubylting lyfti þessu landi upp aftur, og myndaði með því brú milli
+Evrópu og Ameríku, og drægi fram í dagsins ljós hin stórkostlegu, mörg
+þúsund ára gömlu mannvirki.
+
+Númi skipstjóri sleit upp úr þessum hugleiðingum mínum. Hann reis á
+fætur, rendi augunum í hinsta sinn yfir borgina sokknu og tók mig við
+hönd sér, til marks um það, að við skyldum halda af stað.
+
+Okkur gekk greiðlega ferðin niður fjallshlíðina. Þegar við vórum komnir
+gegnum skóginn, sáum við móta fyrir ljósinu á Sæfaranum, eins og
+ofurlítilli stjörnu í fjarska, og stefndum við á ljósið úr því. Þegar
+við loks komum heim í Sæfarann, var farið að elda aftur og móta fyrir
+dagrenning á yfirborði hafsins.
+
+
+
+
+VII.
+
+
+Við héldum áfram ferðinni næstu daga og stefndum í suður, eftir miðju
+Atlantshafinu. Ned Land var ergilegur sem von var, því á þessum slóðum
+var engin von til að við gætum komist frá skipinu. Land var hvergi í
+nánd, ekki svo mikið sem eyja eða hólmi nokkurs staðar.
+
+Við vórum þó ekki vonlausir um að Númi mundi sleppa okkur, þegar ferðin
+umhverfis hnöttinn væri á enda, ef við hétum því þá við drengskap okkar,
+að þegja yfir leyndarmáli hans. Mér datt í hug, hvort ég ætti að tala
+við Núma og stinga upp á þessu við hann. Það var að líkindum
+þýðingarlaust. Númi var svo oft búinn að láta það á sér heyra, að vegna
+þessa leyndarmáls væri hann til neyddur að halda okkur á skipinu áfram.
+Ég færði þetta í tal við Konsæl, en hann var engu ráðnari í því en ég,
+hvað gera skyldi. Okkur kom þó saman um það, að vekja ekki tortrygð Núma
+með því að brjóta upp á þessu við hann, það mundi verða
+árangurslaust,--bíða heldur og sjá hvernig skipaðist um atvik og
+ástæður.
+
+Því lengra sem suður dró, því fastar lagðist sá grunur í mig að mér
+mundi aldrei framar auðnast að sjá ættjörð mína og ástvini.
+
+Ég varð lítið var við Núma skipstjóra þessa dagana. Hann var
+niðursokkinn í störf sín og rannsóknir í klefa sínum, og þá sjaldan ég
+hitti hann í bókasalnum, var hann annars hugar og afskiftalaus.
+
+Sæfarinn hélt sig jafnaðarlega við yfirborðið, og var þar fátt á sveimi.
+Að eins einu sinni sáum við skip; þar á vóru hvalveiðamenn, og skutu
+þeir þegar út báti og reru áleiðis til okkar,--héldu auðsjáanlega að þar
+væri góð veiðibráð, sem við vórum. Númi skipstjóri vildi ekki eyða tíma
+og kröftum manna þessara að óþörfu og fór því í kaf með Sæfarann. Þetta
+var atvik, sem Ned Land lét ekki athugalaust fram fara. Ég held honum
+hafi gramist sárlega, að hvalveiðamennirnir skyldu ekki geta lagt til
+dauðs járnhvalinn okkar með skutlum sínum.
+
+Það bar við á þessum slóðum, að við hittum fyrir stóra hákarla. Flugu
+mér þá í hug ýmsar sögur um þá, sem ég svo sagði Konsæl. Það er ef til
+vill varasamt að trúa öllu, sem farmenn segja frá, en það er dagsatt að
+það sem hér fer á eftir er haft eftir sjómönnum: Í maga á stórum hákarli
+fanst einu sinni höfuð af amerískum vísundi og heill kálfur. Í öðrum
+fundust tvær hnísur og sjómaður í einkennisbúningi. Í þeim þriðja var
+hermaður með alvæpni og í þeim fjórða hestur með riddara og reiðtýgjum.
+Þetta er nú að vísu ekki sem trúlegast, en þó get ég ekki samkvæmt eigin
+eftirtekt sannað að það sé ósatt. Við fengumst sem sé ekki við
+hákarlaveiðar.
+
+Hinn 13. marz ákvað Númi skipstjóri að gera tilraun eina, sem mér þótti
+meir en lítið til koma.
+
+Við vórum staddir á 45. breiddarstigi og 37 stigi vestlægrar lengdar, á
+þeim stað, þar sem ameríska freigátan "Kongress" stikaði eitt sinn dýpið
+og hafði ekki botn með fimmtán þúsund eitt hundrað og fjörutíu metrum.
+
+Hér ætlaði nú Númi að reyna að komast til botns, og bjó ég mig undir að
+athuga nákvæmlega hvernig sú tilraun lánaðist. Gluggarnir á aðalsalnum
+vóru opnaðir og við nálguðumst hyldýpið.
+
+Það var ekkert viðlit að sökkva skipinu á þann hátt að fylla sjóklefana.
+Að vísu gat það þyngst svo mikið við það, að það sykki til botns. En þá
+var eftir að komast upp aftur, og var mikil tvísýna á því, hvort
+vélarnar mundu geta þrýst vatninu út aftur, undir því voðafargi, sem
+hlaut að hvíla á skipinu í þessum reginhyl.
+
+Númi lét halla hliðarspöðum skipsins í hálft horn og lét svo skrúfuna
+ganga með fullum hraða.
+
+Sæfarinn nötraði eins og þaninn strengur á fiðlu undir átökum vélarinnar
+og skrúfunnar, en áfram rann hann jafnt og stöðugt niður á við.
+
+Við Númi vórum staddir í aðalsalnum og athuguðum þrýstimælirinn. Við
+vórum komnir á sex þúsund metra dýpi,--langt niður fyrir neðstu takmörk
+sædýralífsins. Í þessu djúpi gat engin lifandi skepna haldist við. En
+Sæfarinn hélt áfram niður á við, dýpra og dýpra. Sjórinn umhverfis
+skipið var auður og aldauða, en aðdáanlega hreinn og tær.
+
+Einni klukkustund síðar vórum við komnir niður í þrettán þúsund metra
+dýpi og þó sást ekki enn til botns. Á fjórtán þúsund metra dýpi fór að
+grilla í klettanibbur niður undan okkur. En það gátu verið fjallatindar,
+eins háir og Mont-Blanc eða Himalaya, og gat því enn verið eftir
+óskaplegt dýpi.
+
+Sæfarinn hélt enn áfram og var þó þrýstingurinn orðinn voðalegur.
+Járnþynnurnar svignuðu og ískraði í samskeytunum, járnbitar og bindingar
+kýttust svo, að brakaði og tísti alt umhverfis.
+
+Við höfðum af að komast niður í sextán þúsund metra dýpi. Var þá
+þrístingurinn á skipinu orðinn sextán hundruð loftþyngdir, en það er
+sama sem þrjú þúsund og tvö hundruð pund á hvern fersentímeter á
+skipinu.
+
+Númi skipstjóri réð af að hætta tilrauninni.
+
+"Við skulum fara upp aftur", sagði hann, "það tjáir ekki að leggja
+skipið undir meira farg. Haldið yður fast!"
+
+Ég var ekki nógu fljótur að átta mig á því, hvað Númi meinti með þessari
+skipun, og vissi því ekki fyr af, en ég lá flatur á gólfinu.
+
+Skipstjórinn hafði fyrirskipað að stöðva vélina og snúa hliðarspöðunum
+svo, að röndin vissi upp. Sæfarinn flaug upp með feyknahraða, eins og
+laus lofbelgur, og risti sjóinn svo hvein við. Það var engin leið að
+gera neinar athuganir. Á örfáum mínútum rann hann þessa sextán þúsund
+metra leið á enda, flaug eins og kólfur upp úr yfirborði sjávar hátt í
+loft upp, féll svo aftur í hafið með voðalegum gusugangi og boðaföllum.
+
+Við héldum eftir þetta af stað suður á bóginn--alt af í suður. Þegar
+við komum á móts við suðurodda Ameríku hélt ég að Númi mundi beygja
+vestur fyrir, inn í Kyrrahafið og ljúka þar með við hringför sína um
+hnöttinn. En því var ekki að heilsa. Sæfarinn hélt stefnunni óbreyttri.
+Hver var svo tilgangur skipstjórans? Ætlaði hann að halda suður í
+heimskaut, suðurskautið! Það var óðs manns æði! En það var ekki á hann
+að ætla, Núma skipstjóra, fífldirfsku hans var alt ætlandi. Það var ekki
+furða þó Ned Land væri ekki hollur í hamsi.
+
+Ned hafði talað fátt upp á síðkastið; fálæti hans ágerðist svo, að varla
+var hægt að toga út úr honum orð. Ég sá að hann þoldi illa þetta
+varðhald og fyltist æ meir og meir hatri og lífsleiða. Þegar hann hitti
+Núma skipstjóra, brann honum eldur úr augum og ég var farinn að verða
+hræddur um, að í hart slægi milli þeirra bráðlega.
+
+Hinn 14. marz komu þeir Konsæll inn í herbergið mitt. Ég sá að Ned hafði
+eitthvert erindi og var talsvert niðri fyrir.
+
+"Hvað haldið þér að margir menn séu á Sæfaranum?" spurði hann.
+
+"Svei mér ef ég veit það", svaraði ég.
+
+"Það getur varla þurft marga menn, til að stjórna þessum hólk", sagði
+Ned.
+
+"Nei, til þess ætti ekki að þurfa nema svo sem tíu menn".
+
+"Og hvaða ástæða væri þá til að hafa fleiri?"
+
+Ég skildi fullvel hvað Ned Land fór, og hvesti á hann augun.
+
+"Hvaða ástæða!" endurtók ég. "Eftir því sem mér skilst, er Sæfarinn ekki
+einungis skip, heldur einnig heimili og griðastaður manna, sem hafa sagt
+sig úr lögum við mannfélagið, á líkan hátt og Númi skipstjóri".
+
+Þá tók Konsæll til máls:
+
+"Sæfarinn getur þó ekki rúmað nema vissa tölu manna. Gæti ekki
+húsbóndinn reiknað út, hvað þeir gætu verið flestir?"
+
+"Hvernig þá, Konsæll minn?"
+
+"Húsbóndinn þekkir burðarmagn skipsins, og getur því reiknað hve mikið
+loft það rúmar. Þegar svo við bætist að húsbóndinn veit hvað hver maður
+þarf mikið loft, og að loftið í skipinu verður að endurnýja einu sinni á
+sólarhring hverjum, þá . . . ."
+
+Konsæll talaði ekki út, en ég skildi hvað hann fór.
+
+"Já, þetta er auðvelt að reikna", svaraði ég. "En það er hætt við að
+útkoman verði ekki ábyggileg".
+
+"Það gerir ekkert til", sagði Ned Land. Hann vildi komast að einhverri
+niðurstöðu.
+
+"Jæja", svaraði ég, "einn maður eyðir um hverja klukkustund öllu því
+súrefni, sem felst í eitt hundrað lítrum af andrúmslofti, eða sama sem
+tvö þúsund og fjögur hundruð lítrum af lofti á sólarhring. Þá er eftir
+að finna, hve mörgum sinnum tvö þúsund og fjögur hundruð lítrar af lofti
+rúmast í Sæfaranum".
+
+"Einmitt rétt", sagði Konsæll og brosti út undir eyru. Konsæll hafði
+víst hugann meira á því, hve fljótur ég var að reikna, en hinu, hver
+útkoman yrði. En Ned Land sat hnípinn og óþreyjufullur.
+
+"Burðarmagn Sæfarans er fimtán hundruð smálestir", bætti ég við; "og
+hver smálest er eitt þúsund lítrar. Sæfarinn rúmar þá fimtán hundruð
+þúsund lítra af lofti, sem deilt með tveim þúsundum og fjórum hundruðum
+gerir . . . ."
+
+Ég flýtti mér að reikna út á pappírsblaði.
+
+". . . . . gerir sex hundruð tuttugu og fimm. Það er, með öðrum orðum,
+nægilegt loft í Sæfaranum fyrir sex hundruð tuttugu og fimm menn í
+tuttugu og fjórar klukkustundir."
+
+Ned Land hnykti við. "Sex hundruð tuttugu og fimm!" át hann eftir.
+
+"Já, en það er áreiðanlega ekki einn tíundi hluti þess mannfjölda hér á
+skipinu", sagði ég.
+
+"Þó svo sé. Það eru of margir móti þrem mönnum ei að síður", svaraði
+Ned.
+
+Ég ypti öxlum ósjálfrátt.
+
+"Þér verðið að vera þolinmóður, Ned".
+
+Ned anzaði engu, en hristi höfuðið og strauk hendinni um ennið.
+
+Ég kendi sárt í brjósti um Ned, og vildi feginn verða honum að liði. En
+hvað átti ég til bragðs að taka, eða öllur heldur, hvað gat ég
+gert?--Ekkert.
+
+Ned Land hafði engu öðru vanist, en sigla frjáls og frí um höfin og
+drasla í hvaladrápi. Nú var hann hneptur iðjulaus í þröngum klefa, og
+hafði ekki annað að gera en hugsa. Og hvað gat hann svo hugsað um, annað
+en það, hvernig hann gæti náð frelsi sínu aftur?
+
+En Númi stýrði stöðugt í suður og var því að svo stöddu engin undankomu
+von.
+
+Það vildi þó svo vel til, að þennan sama dag kom fyrir dálítill
+atburður, sem hresti skap Kanadamannsins, og rifjaði upp fyrir honum
+endurminningar glaðari daga.
+
+Um hádegisbilið flaut Sæfarinn í yfirborðinu. Hittum við þá fyrir
+hvalatorfu mikla, sem kom á móti okkur. Mér kom það ekki á óvart, því ég
+vissi að hvalirnir leituðu æ nær og nær heimskautunum, undan hóflausum
+ofsóknum hvalveiðamanna.
+
+Hvalirnir hafa að þessu leyti haft töluverða þýðingu í landfundasögu
+jarðarinnar. Við hvalaeltingar hafa fyrst Baskar og Astúrar og seinna
+Englendingar og Hollendingar ratað á lönd og staði, áður óþekta. Þá er
+sú saga til, að hvalveiðamenn, sem vóru að elta hval, komust svo langt
+norður, að ekki vóru nema 10 mílur eftir að norðurheimskautinu. Þetta
+getur verið lygi, en líklega reynist það samt satt þegar minst varir.
+
+Við sátum uppi á þiljum. Veður var fagurt og særinn spegilsléttur. Ned
+Land varð auðvitað fyrstur til að koma auga á hvalina, í nokkurra mílna
+fjarlægð.
+
+"Væri ég nú bara kominn á hvalveiðaskip!" hrópaði hann upp yfir sig.
+"Það vildi ég að . . . . . "
+
+Ned stappaði niður fótunum, svo glumdi í járnþynnunum, og jós úr sér
+formælingum yfir Núma og alt sem hann snerti.
+
+"Yður langar víst alt af á hvalaveiðar?" sagði ég.
+
+"Langar!" át hann eftir. "Það er eitt af því sem enginn getur gleymt,
+herra prófessor".
+
+"Hafið þér aldrei stundað veiðar hér í suðurhöfum?"
+
+Ned Land lét sem hann heyrði ekki til mín.
+
+"Sjáið þið, hvar þeir koma!" sagði hann. "Þeir vita sem er að ég get
+ekkert gert þeim".
+
+Ned Land var allur á nálum.
+
+"Eru hvalirnir hérna eins stórir og í norðurhöfunum?" spurði hann.
+
+"Naumast svo stórir".
+
+"Ég hefi séð hvali hundrað feta langa, herra prófessor. Og ég hefi
+jafnvel heyrt getið um, að þeir gætu orðið hundrað og fimmtíu feta
+langir".
+
+"Það held ég sé nú orðum aukið", svaraði ég. "Þessir hvalir, eins og
+líka búrhvelið, eru vanalega minni en sléttbakurinn".
+
+"Jæja", sagði Ned, "ég hefi nú samt heyrt að þeir væru sumir ákaflega
+stórir, jafnvel svo stórir, að menn sem hafa séð þá fljóta í
+vatnsskorpunni, þakta þangi og skeljum, hafa haldið að það væru eyjar,
+fárið á land á þeim, kveikt upp eld og . . . "
+
+"Og bygt á þeim hús", skaut Konsæll inn í.
+
+"Þvaður!" sagði Ned.
+
+"Þér trúið því þó víst ekki sjálfur?" sagði ég.
+
+"Það má trúa öllu um hvali", sagði Ned. "Það er fullyrt að þeir geti
+synt umhverfis hnöttinn á hálfum mánuði".
+
+"Það er ekki óhugsandi".
+
+"Þér vitið ef til vill ekki, prófessor góður, að á þeim tímum þegar
+jörðin var sköpuð, vóru hvalirnir miklu hraðsyndari en nú?"
+
+"Ónei, ekki vissi ég það, Ned minn. Hvernig stóð nú á því?"
+
+"Það skal ég segja yður, þá var sporðurinn á þeim eins og á öðrum
+fiskum, og blöðkurnar snéru upp og niður. En þegar Guð almáttugur veitti
+því eftirtekt, að þeir vóru alt of hraðsyndir, tók hann þá og snéri upp
+á sporðinn, og síðan hafa þeir verið svona".
+
+"Er það satt að hvalir geti hvolft skipum?" spurði Konsæll.
+
+"Því trúi ég tæplega", svaraði ég. "Það er þó sagt að árið 1820 hafi
+hvalur ráðist á skipið "Essex" og rekið það aftur á bak, með svo miklu
+afli, að það skreið nákvæmlega fjóra metra á sekúndunni, þar til sjórinn
+fossaði yfir þilfarið aftur á og skipinu hvolfdi".
+
+Ned leit á mig og kýmdi borginmannlega. Í svona umræðum lét hann ekki
+fara með sig í gönur.
+
+"Einu sinni sló hvalur svo óþyrmilega undir bátinn minn", sagði hann,
+"að við félagarnir, sem í honum vóru, hrukkum tólf álnir í loft upp. En
+sá hvalur hefir auðvitað verið eins og svolítill hvolpur í samanburði
+við hval prófessorsins".
+
+Konsæll réð sér ekki fyrir forvitni.
+
+"Verða hvalirnir gamlir?" spurði hann.
+
+"Þúsund ára", svaraði Ned viðstöðulaust.
+
+"Hvernig vitið þér það, Ned?"
+
+"Af því það er sagt svo".
+
+"Hvernig geta menn sagt um það?"
+
+"Af því menn vita það".
+
+Hvalirnir færðust nær, og var eins og Ned ætlaði að gleypa þá með
+augunum.
+
+"Sjáið þið!" sagði hann, "þeir eru fleiri en einn og fleiri en tveir.
+Þarna eru tíu, tuttugu, stór hópur. Ilt er nú að vera svona tjóðraður og
+ná ekki til þeirra".
+
+"Farið og talið um þetta við skipstjórann", sagði Konsæll.
+
+Ned Land lét ekki segja sér það tvisvar. Hann þaut eins og örskot niður
+í skipið til að leita að Núma. Eftir örstutta stund kom hann aftur og
+skipstjórinn með honum.
+
+"Á ég ekki að skutla einn handa yður?" spurði Ned, "svona til að gleyma
+ekki gamalli iðju".
+
+"Hvaða gagn er að því?" spurði skipstjórinn og leit yfir hvalatorfuna.
+"Hvers vegna drepa til gamans og að óþörfu? Ég veit það vel, að það eru
+sérréttindi, sem mennirnir hafa tekið sér; en ég kæri mig ekki um að
+hafa dráp til dægrastyttingar. En hvað sem um það er, þá er nóg búið að
+gera að hvaladrápi, meira en nóg. Hvalirnir eiga nógu marga meinlega
+óvini, þar sem eru búrhveli og sverðfiskar, svo ég held okkur sé sæmra
+að láta þá óáreitta".
+
+Ned Land varð súr á svipinn við þennan siðalærdóm. Að tala svona við
+veiðimann er að eyða orðum að óþörfu. Ned botnaði auðsjáanlega ekkert í
+því sem Númi sagði. Hann stakk höndunum í vasana og gekk á burt
+blístrandi.
+
+Númi virti fyrir sér hvalina um stund og snéri sér svo að mér.
+
+"Nú skuluð þér sjá, að ég hafði rétt fyrir mér, þegar ég sagði, að
+hvalirnir ættu nóga óvini. Sjáið þér svörtu deplana þarna suður frá?"
+
+"Já".
+
+"Það eru búrhveli, grimmar skepnur og skaðlegar, sem rétt er og
+nauðsynlegt að útrýma".
+
+Ned Land snéri sér við skjótlega og skipstjórinn tók eftir því.
+
+"En það er þarflaust að stofna lífi sínu í voða af þeirri ástæðu", sagði
+Númi. "Sæfarinn hefir trjónu, sem er fyllilega eins traust vopn og gott
+eins og skutull Ned Lands".
+
+Ned Land dró ekki dulur á tilfinningar sínar. Hve nær hafði annað eins
+heyrst! Hann ypti öxlum og spýtti út úr sér.
+
+Búrhvelin nálguðust óðfluga. Þau höfðu auðsjáanlega orðið vör við
+hvalina og bjuggust til atlögu. Það var fyrirsjáanlegt, hver endir mundi
+verða á þeim leik.
+
+Skíðishvalirnir höfðu engar verjur móti búrhvelunum. Þau vóru afar
+kjaftstór og höfðu 25 tennur í skoltinum.
+
+Númi hervæddi Sæfarann móti illhvelunum. Hann fór til stýrisins, en við
+félagarnir þrír settumst við gluggann í aðalsalnum. Að því búnu fór
+skrúfan að snúast og auka skriðinn á skipinu.
+
+Viðureignin var þegar hafin, er Sæfarinn kom inn í illhvelaþvöguna. Svo
+var að sjá fyrst í stað, sem búrarnir gæfu ekki mikinn gaum þessum nýja
+gesti, sem gekk þar ókvaddur að orustu. En það varð annað ofan á, þegar
+fram í sótti.
+
+Slík og þvílík aðsókn! Það kvað svo ramt að, að Ned Land var frá sér
+numinn. Númi skipstjóri beitti Sæfaranum eins og heljarmiklum skutli.
+Hann rann á hvalina og skifti skrokkunum í sundur í miðju, svo bútarnir
+sprikluðu lifandi í sjónum. Sporðaslögin dundu á Sæfaranum, en þess
+gætti ekki. Hann gekk á röðina og drap hvern búrann á fætur öðrum,
+snérist í hring, fór ýmist upp eða niður, ýmist aftur á bak eða áfram,
+svo hvalirnir gátu á engan veg flúið, en tættust í sundur fyrir
+stáltrjónu Sæfarans.
+
+Þessi blóðugi bardagi stóð yfir heila klukkustund. Stundum slóu sér
+saman tíu til tólf hvalir og ætluðu að mylja Sæfarann undir sér. Við
+sáum út um gluggana upp í gapandi ginin á þeim, alsett tönnum, og
+heiftþrungnar, rauðar glirnurnar. Ned Land réð sér ekki; hann jós yfir
+þá óbóta hrakyrðum, því ekki fékk hann annað að gert. Við fundum að þeir
+réðu á skipið, eins og soltnir hundar á hræ. En Sæfarinn varð ekki
+forviða. Þeir vóru eins og fis fyrir honum, þó þungir væru og
+stórvaxnir.
+
+Loks var þessi orusta á enda og við fórum upp að yfirborðinu. Hlerunum
+var skotið upp og við flýttum okkur upp á þilfarið.
+
+Sjórinn var þakinn sundurflettum skrokkum. Sterkasta púðursprenging
+hefði ekki tætt kjötþjósir hvalanna meir í sundur. Sjórinn var blóði
+litaður svo langt, sem til sást. Örfáir hvalir sáust á flótta út við
+sjónhringinn.
+
+Númi skipstjóri kom upp á þilfarið og snéri sér að Ned Land.
+
+"Jæja Ned Land, hvað segið þér nú?"
+
+"Mikið er að gert að vísu", sagði hann, "en verkið . . . . ."
+
+"Það eru skaðræðisskepnur, sem ég hefi drepið".
+
+"Ég vil heldur vera veiðimaður en slátrari", sagði Ned.
+
+"Þér viljið heldur drepa til gamans, en gagns".
+
+Ég var orðinn dauðhræddur um að þeim mundi lenda saman í illdeilum, út
+af þessu. En Ned sýndi nú, eins og áður, fyrirlitningu tóma. Hann var
+búinn að kalla Núma slátrara og þá var hann ánægður. Hann stakk höndunum
+í vasana, ofur rólega, snéri baki við Núma og fór niður í klefann sinn.
+
+
+
+
+VIII.
+
+
+Hinn 14. marz sáum við fyrst ís á floti. Út við sjónhringinn í suðri var
+hvítleitt belti og glampaði á það í sólskininu. Það var hafís. Fram úr
+þessu fórum við að sjá reglulega fjalljaka. Grænar gárur vóru í sumum
+þeirra, eins og eirgræna, en sumir vóru kristallsglærir. Jökunum
+fjölgaði eftir því sem lengra dró suður.
+
+Númi var stöðugt á þiljum uppi og athugaði leiðina gaumgæfilega. Við
+hittum fyrir ákaflega stóra fjalljaka, og fór þeim alt af fjölgandi. Var
+svo að sjá stundum, sem allar leiðir væru lokaðar. En alt af fann Númi
+eitthvert sund.
+
+Hinn 16. marz kl. 8. árdegis fórum við yfir heimskautsbauginn. Jakaísinn
+var nú orðinn svo mikill og þéttur, að lítt hugsandi var að komast
+lengra. Sumir jakarnir stóðu sjötíu og áttatíu metra upp úr sjónum. En
+alt af varð Núma eitthvað til. Alt af hélt hann áfram lengra og lengra,
+þó þröng væru sundin sumstaðar.
+
+Við vórum nú úr öllum efa um það, að Númi mundi ætla sér að komast alla
+leið að suðurheimskautinu.
+
+En brátt var öllum sundum lokað og ómögulegt að komast lengra áleiðis.
+Fram undan vóru hafþök af samfeldum ís og engin geil eða smuga sjáanleg.
+
+Númi var þó ekki alveg á því, að hætta við svo búið. Hann rendi
+Sæfaranum á ísinn hvað eftir annað, með svo miklu afli, að
+klakaflísarnar flugu í allar áttir og dundu niður á okkur eins og
+haglél. Stundum rendi hann skipinu upp á ísinn, svo hann brotnaði undan
+þyngslum þess. Ruddi hann sér braut dálítinn spotta á þennan hátt.
+Biksvört þoka lagðist yfir. Fylgdi henni ákafleg fannfergja og
+stormhviður af ýmsum áttum.
+
+Loksins eftir langt strit og erfitt sat Sæfarinn fastur í ísnum og
+mátti sig hvergi hræra. Það var 18. marz.
+
+Hvert sem litið var, var ekki annað að sjá en ís. Var hann ákaflega
+úfinn og ósléttur. Sumstaðar stóðu hundrað feta háar ísstrýtur upp úr
+breiðunni. Sumstaðar hólar og höfðar, þverhníptir íshamrar og afarstórar
+jakahyrnur. Sumstaðar vóru slétt svell og klakaþil, sem sendu geisla
+eins og spegilgler, ef til sólar sá. Dauðaþögn hvíldi yfir þessari
+ísauðn; lífsmörk sáust ekki.
+
+Ég stóð á þiljum og sá að vökin, sem Sæfarinn flaut í, var alt af að
+þrengjast og skarirnar að færast nær skipinu. Frostið var svo hart, að
+ekki var viðlit að halda vökinni þýðri til lengdar.
+
+Númi skipstjóri vatt sér að mér og tók mig tali.
+
+"Jæja, herra prófessor, hvernig lízt yður nú á?"
+
+"Mér lízt svo á, að við förum ekki lengra".
+
+"Því á ég bágt með að trúa. Ég ætlaði mér að komast að
+suðurheimskautinu".
+
+Það vissi ég vel að Númi var áræðinn, blátt áfram ofdirfskufullur. En
+hér var farartálmi, sem engin leið var til að yfirvinna.
+
+"Sæfarinn getur ef til vill flogið" sagði ég.
+
+"Nei", svaraði Númi, "en kafað getur hann".
+
+"Já, auðvitað".
+
+Mér flaug þegar í hug hvað Númi mundi ætla sér.
+
+"Já, við skiljum víst hvor annan", sagði Númi og brosti. "Hæstu jakarnir
+eru ekki yfir hundrað metra á hæð. Þeir standa því ekki öllu lengra
+niður en þrjú hundruð metra. Og hvaða tálmi er það fyrir Sæfarann!"
+
+"Sama sem enginn, herra skipstjóri".
+
+"Nei, en erfiðleikinn er innifalinn í því, að vera lengi í kafi, og geta
+ekki endurnýjað loftið í skipinu", svaraði Númi.
+
+"Loftklefarnir í Sæfaranum rúma mikið, svo það verður að líkindum
+nægjanlegt".
+
+"En þá er eftir að vita, hvort það er auður sjór við heimskautið. Ef til
+vill komumst við ekki upp og verðum að snúa aftur".
+
+"Heimskautið og kuldaskautið liggja ekki saman", sagði ég, "svo vel
+getur verið, að við finnum auðan sjó".
+
+"Það er einmitt það, sem ég hafði hugsað, hr. prófessor. Nú er um að
+gera, að nota tímann vel".
+
+Númi kallaði á næstráðandann og töluðust þeir við um hríð, á máli, sem
+ég skildi ekki eitt orð í.
+
+Ekki sá ég að næstráðanda brygði, hvort sem það nú kom til af því, að
+honum var áður kunn ætlun Núma, eða hinu, að honum óx ekki í augum
+áhættan.
+
+Þó var enginn eins skaprór og Konsæll. Þegar ég sagði honum að ætlun
+okkar væri, að komast til heimskautsins, varð honum ekki annað að orði
+en þetta: "Eins og húsbóndanum þóknast". Þar með var það mál útkljáð af
+hans hálfu.
+
+Ned Land tók þessu alt öðruvísi. Hann ypti öxlum og sagði í hálfkæringi:
+
+"Mér þykir mikið fyrir að heyra þetta, vegna yðar og þessa Núma
+skipstjóra".
+
+"Þér haldið ef til vill að við náum ekki heimskautinu?"
+
+"Það er mjög líklegt, að við komumst þangað, en þaðan aftur komumst við
+ekki".
+
+Ned hvarf til klefa síns, "til að valda ekki vandræðum" að hann sagði.
+
+Nú var tekið til að búa alt undir þessa glæfraför. Loftdælurnar vóru
+settar af stað og loftinu þjappað svo í klefana, sem unt var.
+
+Tólf skipverjar komu upp á þilfar, með haka og járnkarla og tóku að
+brjóta lagnaðarísinn frá skipinu. Var það auðgert, því ísinn var þunnur
+enn, þó 20 stiga frost væri á. Klukkan fjögur fóru allir niður í skipið.
+Hlerarnir vóru látnir aftur og festir ramlega með skrúfum. Sjó var
+hleypt inn í sökkviklefana og Sæfarinn seig niður í djúpið.
+
+Ég tók mér sæti við gluggann í aðalsalnum og Konsæll við hlið mér. Á
+þrjú hundruð metra dýpi komumst við niður úr ísnum, eins og Númi hafði
+fyrir sagt. En Sæfarinn fór ekki að halda í áttina fyr en hann var
+kominn niður í átta hundruð metra dýpi. Leiðin sem við áttum fyrir hendi
+að fara, var tvö hundruð og fimmtíu mílufjórðungar. Sæfarinn hélt af
+stað með tíu mílna hraða á vökunni. Við gátum því búist við að verða
+komnir til heimskautsins að liðnum tuttugu og fjórum klukkustundum, ef
+alt gengi vel.
+
+Ég var á fótum kl. fimm morguninn eftir og fór þegar út að glugganum. Ég
+varð þess var að Sæfarinn leitaði upp á við, hægt og gætilega, með því
+að dælt var sjó út úr sökkviklefunum. Hjá mér glæddist þegar von um, að
+nú mundum við hitta fyrir auðan sjó, en hún brást skjótlega. Snöggur
+kippur gaf til kynna, að skipið hefði rekist á ísinn. Ég hraðaði mér að
+þrýstimælinum. Við vórum staddir í fjögur hundruð metra dýpi. Ísinn var
+miklu þykkari hér. Fjögur hundruð og fimmtíu metra þykk hafíshella lá
+yfir okkur. Þetta var lítið gleðiefni.
+
+Sæfarinn reyndi fyrir sér hvað eftir annað þennan dag, en hitti jafnan
+ís fyrir. Stundum náði ísinn niður í sjö hundruð og fimmtíu metra dýpi.
+Þar var því ísinn níu hundruð metra þykkur,--eitt hundrað og fimmtíu
+metrar stóðu upp úr sjó.
+
+Svo liðu þessar tuttugu og fjórar klukkustundir, að ekki vænkaðist
+útlitið. Alt af varð ís fyrir okkur á fjögur til fimm hundruð metra
+dýpi. Enn var nægilegt andrúmsloft í skipinu. En hve lengi gat það enzt?
+
+Mér kom ekki dúr á auga næstu nótt. Ég var sí og æ að athuga
+þrýstimælirinn, og alt af var Sæfarinn að reyna fyrir sér. Klukkan þrjú
+um morguninn sá ég loks að Sæfarinn "rak sig ekki upp undir" fyr en á
+fimmtíu metra dýpi. Ísinn var að þynnast!
+
+Ég hafði ekki augun af þrýstimælinum. Undirborð íssins fláði upp á við,
+svo smátt og smátt grynkaði á skipinu. Við fórum svo nærri ísnum sem unt
+var. Ísinn glampaði og glitraði fagurlega í geislum rafljóssins og varð
+mun þynnri við hvern kílómeter, sem lengra dró.
+
+Loks kom Númi inn í salinn klukkan 6 um morguninn--þann 19. marz--og
+flutti mér fagnaðartíðindi:
+
+"Auður sjór!"
+
+Ég hraðaði mér upp á þilfar. Ísjakar vóru á reki til og frá umhverfis
+okkur, annars var autt haf á alla vegu, ýmist sægrænt eða dökkblátt á
+lit. Aragrúi fugla sveimaði í loftinu yfir okkur og út í frá. Hafísinn
+var langt að baki okkur og sá að eins móta fyrir honum við sjónhvörf í
+norðri.
+
+"Erum við nú komnir í heimskautið?" spurði ég.
+
+"Ég veit það ekki", svaraði skipstjórinn, "við sjáum til um hádegið".
+
+"Ef við verðum þá svo hepnir að sjá til sólar".
+
+"Það þarf ekki nema ofurlítinn geisla".
+
+Í suðri mótaði fyrir hæðum, nokkur hundruð metra háum. Það var
+auðsjáanlega land. Sæfarinn stefndi þangað. Við fórum hægt, af ótta
+fyrir skerjum. Að stundu liðinni náðum við ströndinni.
+
+Land þetta var eyja og fórum við í kring um hana á tveim stundum. Land
+var að sjá í suður frá eynni og mjótt sund á milli. Hve stórt það var
+gátum við ekki séð fyrir þokudumbungi.
+
+Sæfarinn lagðist að landi og varpaði akkerum. Sandur var upp frá
+ströndinni og klettafell fyrir ofan. Báti var skotið út og fórum við í
+hann fimm saman, Númi skipstjóri, Konsæll og ég og tveir skipverjar;
+þeir fluttu með sér mælingaáhöld. Ned Land lét ekki sjá sig. Klukkan var
+tíu þegar við létum að landi.
+
+Eftir nokkur áratog rendi báturinn upp í sandinn. Konsæll ætlaði að
+hlaupa í land, en ég hélt honum aftur.
+
+"Núma skipstjóra ber fyrstum manna að stíga fæti á land
+suðurheimskautsins", sagði ég.
+
+Númi stóð upp í bátnum og leit í kringum sig brosandi.
+
+"Hér hefir enginn áður komið", sagði hann, steig upp á hástokkinn og
+stökk á land. Við Konsæll hlupum á eftir honum.
+
+Fyrir ofan sandinn tók við brimsorfið stórgrýti, en illfærar hraunurðir,
+brunagrjót og gjall þegar lengra dró. Var ekki um að villast, að þar
+mundi vera eldgígur allskamt á burtu. Brennisteinssvælu lagði upp úr
+gjótum og glufum hér og hvar. Mátti af því ráða að jarðeldur sá, sem að
+líkindum hafði myndað landið, mundi ekki vera kulnaður með öllu. Af
+jurtagróðri sá ég þar ekki annað, en nokkrar óverulegar mosategundir á
+steinum í stöku stað og að eins eina tegund af þangi, sem brimið hafði
+kastað upp á ströndina.
+
+Hafið hlaut að vera mjög fiskisælt. Réði ég það af því, að alt var krökt
+af fugli. Þar vóru álkur, veiðibjöllur, fýlungar, endur og fjöldi annara
+fuglategunda. Alt úði og grúði í fugli, jörð loft og lögur, og alstaðar
+eilíft garg og kliður.
+
+Þoka var stöðugt svo mikil, að byrgði alla útsýn. Um hádegið vissum við
+ekki einu sinni í hverri átt sólar var að leita. Við gátum því ekki að
+þessu sinni vitað, hvort við vórum staddir í heimskautinu eða ekki, og
+olli það Núma skipstjóra mikillar gremju.
+
+"Við reynum aftur á morgun", sagði hann, þegar við snérum á leið til
+bátsins aftur. Snjór tók að falla úr þokunni, og varð brátt af
+hlaðkafald svo mikið, að varla sá handa skil.
+
+Daginn eftir var blind-bilur, og ekki fært upp á þilfar. Heyrði ég niður
+í salinn gargið í veiðibjöllunum og fleiri fuglum, sem hröktust fyrir
+ofviðrinu úti. Sæfarinn skreið í hægðum sínum suður með landi. Einu
+sinni sáum við bjarma af sól, niður við hafflöt í norðri, en ekki var
+birtan meiri en svo, að vel var ratljóst. Við færðumst suður um tíu
+mílur þann dag.
+
+Daginn eftir var stytt upp, og gátum við búist við að geta gert
+athuganir. Þokan var horfin og komið hreinviðri með tveggja stiga
+frosti.
+
+Við fórum á land klukkan um ellefu. Jarðvegur var samur hér, og þar sem
+við höfðum áður komið; urðir, klettar og hraun. Fuglar vóru hinir sömu,
+en auk þeirra var hér mikið um sel og önnur sæspendýr. Selir og
+rostungar lágu uppi á ströndinni og á ísjökum, sem flutu nærri landi.
+Ekki stygðust þeir þó við kæmum nær, en gláptu á okkur stórum augum og
+forvitnislegum.
+
+Við klifruðum upp á blágrýtisklett, skamt frá ströndinni og færðum
+þangað mælingaáhöldin. Við stóðum lengi og störðum í norður. Við vissum
+að sólin var komin upp; en niður við sjónhringinn var þokubakki, sem
+geislar hennar megnuðu ekki að rjúfa.
+
+Leið svo af hádegi að við sáum ekki til sólar, og þótti okkur nú illa
+áhorfast. Var nú útséð um að við gætum ákveðið jarðlegu staðarins þennan
+daginn. En daginn eftir var jafndægurt. Það var seinasti dagurinn, sem
+unt var að gera athuganir, því eftir það gekk sólin undir með öllu og
+kom ekki upp aftur fyr en að liðnum sex mánuðum.
+
+En við þessu mátti enginn gera, og urðum við að snúa aftur til skipsins
+við svo búið.
+
+Morguninn eftir var ég á fótum klukkan fimm og fór þá upp á þilfar. Þar
+var þá staddur Númi skipstjóri.
+
+"Hann er að létta til", sagði Númi. "Tilraunir okkar hljóta að lánast í
+dag. Við förum í land eftir morgunverð".
+
+Ég fór niður til að hitta Ned Land og telja hann á að vera með í
+förinni. Honum óx gremja og geðvonzka með hverjum degi, upp á síðkastið,
+og gat ég með engu móti fengið hann til að fara. Mér þótti vænt um það í
+aðra röndina, því uppi í fjörunni var krökt af sel og hefði víst veitt
+full erfitt að halda Ned Land frá óþörfum blóðsúthellingum.
+
+Við fórum á land að enduðum morgunverði. Sæfarinn hafði þokast einni
+mílu sunnar um nóttina og lá nú fram undan felli, fjögur til fimm
+hundruð metra háu. Tveir hásetar fóru með okkur og báru mælingaáhöldin,
+klukku, sjónauka og loftvog.
+
+Við lentum kl. níu. Var þá komið heiðskírt veður og síðustu
+skýbólstrarnir að hverfa niður í suðri. Við lögðum af stað upp á fellið,
+því þar ætluðum við að gera mælingarnar. En gangan var erfið upp þangað,
+eintómar urðir og skriður, brúnhvassar hraunhellur og afsleppir
+hnullungar á víxl. Við vórum tvær klukkustundir að komast upp á fellið.
+
+Loks komumst við upp á efstu hæðina. Var fagurt útsýni þaðan. Í suðurátt
+var að sjá yfir endalausar flatneskjur, sem nýfallin mjöllin lá yfir,
+hrein og bláhvít. Þegar langt dró suður hækkaði landið unz við tóku
+fjöll og firnindi, fannabungur og skriðjöklar, en kolsvartir tindar og
+drangar mændu upp úr jöklinum hér og hvar. Himininn var skafheiðríkur og
+sló rauðbleikri slíkju á blámann. Í norðri stóð sólin við sjónhring,
+eins og afarstór skygður eirskjöldur og snart neðri röndin hafsbrúnina.
+Nær landi var sjórinn dimmblár og spegilsléttur. Þar lá Sæfarinn eins og
+sofandi hvalur innan um drifhvíta hafísjaka. En yzt út við sjónhvörf
+sást samfeldur hafís, eins og tindóttur fjallgarður.
+
+Hið fyrsta sem við gerðum var að mæla hæðina með loftvoginni.
+
+Fjórðungi stundar fyrir hádegi var sólin hæst á lofti og varpaði daufum
+geislum út yfir þessa eyðimörku, sem enginn maður hafði áður fótum
+troðið.
+
+Númi skipstjóri horfði stöðugt á sólina gegnum sjónaukann, meðan hún var
+að ganga undir aftur. Væri sólin hálf gengin undir klukkan tólf, var það
+merki þess, að við værum í heimskautinu. Ég hélt á klukkunni og beið
+þess með óþreyju að vísirinn þokaðist á töluna tólf.
+
+"Hádegi!" kallaði ég.
+
+"Suðurheimskautið", svaraði Númi og fékk mér sjónaukann. Var þá réttur
+helmingur sólkringlunnar siginn í sjó.
+
+Ég lét sjónaukan síga og horfði hugfanginn út yfir víðáttuna, auða og
+kyrra, sem síðustu sólgeislarnir sendu skilnaðarkveðju um langan tíma.
+
+En ég hafði fleira í huga en hrikafegurð náttúrunnar. Sólsetrið við
+hafísinn minti mig á þjóðirnar fyrir norðan ísinn, í heimlöndunum gömlu
+og þektu. Ég dáðist að starfsþreki þeirra, fróðleiksfýsn og óþreytandi
+elju. Ég sá þá í anda senda skip til fjarlægra, óþektra staða.
+Hvalveiðar teigðu skipstjórana norður og suður. Vindar og straumar
+höfðu, á þeim tímum, þegar siglingalistin var á lágu stigi, hrakið menn
+til heimskautalandanna og orðið þeim svo að aldurtila. Svo komu
+leiðangrar, vel búnir að vistum og fararefnum, í þeim tilgangi einum að
+finna ný lönd. Margar hugprúðar hetjur höfðu barist við óblíðu
+náttúrunnar í þessum köldu löndum og látið lífið fyrir það að komast
+nokkrum skrefum lengra, en áður hafði verið farið. Og baráttan færðist
+breiddarstig af breiddarstigi, alt af lengra og lengra, meðan áratugir
+og aldir liðu fram. Og nú var ég staddur hér, á því takmarki, sem allir
+höfðu eftir kept. Og hingað var ég kominn fyrir hyggindi, fróðleik og
+hugdirfð eins einasta manns.
+
+Ég fékk hlýjan hug til þessa merkilega manns, og ég dáðist að honum. Mig
+langaði alt í einu til að segja honum frá því og tjá honum þakklæti mitt
+með handabandi. Ég snéri mér að Núma í því skyni. Hann var í þungum
+hugleiðingum, en rankaði við sér, þegar ég hreyfði mig. Hann leit á mig
+og var ánægjublandinn sigurhróssvipur í augnaráðinu. En það stóð ekki
+nema eitt augnablik. Á næstu sekúndu var kominn yfir hann sami
+kæruleysis og hörkusvipurinn, sem hann bar jafnan, svo kaldur og
+fráfælandi, að mér féllust orð og hendur.
+
+Ég þagði eins og steinn, en Númi benti í norður. Sólin var að hverfa og
+skuggar að teygja sig út yfir landið niður undan okkur. Það var kominn
+tími til að halda af stað til skipsins og fórum við því að feta okkur
+niður fjallshlíðina.
+
+
+
+
+IX.
+
+
+Klukkan sex morguninn eftir fórum við að búa okkur til burtferðar. Var
+þá hin langa heimskautsnótt að færast yfir og orðið hálfrökkvað.
+Stjörnur vóru að koma í ljós á himninum og skein hið fagra
+stjörnumerki, "Suðurkrossinn" skærast á miðju hálofti.
+
+Vindkulið var helkalt og 30 stiga frost á mælinum. Rekaísinn varð
+þéttari og þéttari og milli jakanna var að myndast dökkleitur
+lagnaðarís. Eftir lítinn tíma hlaut sjórinn að vera allagður og engin
+leið að komast að heimskautslandinu.
+
+Sökkviklefarnir vóru fyltir og seig Sæfarinn niður í þrjú hundruð metra
+dýpi. Skrúfan tók að snúast og skipið rann af stað í norðurátt. Um
+kvöldið vórum við komnir langa vegu inn undir hafþökin.
+
+Ég eyddi tímanum við lestur, því gluggarnir á salnum vóru byrgðir að
+utan. Var það gert til að fyrirbyggja að ísjakar rækjust í þá. En oft
+dvaldi hugur minn við þessa viðburðaríku heimskautsför og alt sem á
+dagana hafði drifið þessa fimm mánuði, sem við vórum búnir að vera
+neðansjávar. Við vórum búnir að fara sjö þúsund mílur og sjá margt afar
+merkilegt og fágætt. Ég hafði grætt mikinn og margvíslegan fróðleik á
+þessari ferð. Vakandi og sofandi sökti ég mér niður í nýstárlegar og
+furðulegar rannsóknir, sem hafið gaf mér tilefni til að stunda.
+
+Klukkan þrjú um nóttina vaknaði ég við snöggan kipp. Ég þaut upp í
+rúminu, horfði út í myrkrið og hlustaði, vissi ég þá ekki fyr til en ég
+fleygðist úr rúminu fram á mitt gólf. Sæfarinn hlaut að hafa rekist á
+eitthvað og hrokkið afturábak.
+
+Ég klæddi mig í snatri og skreiddist meðfram þilinu inn í aðalsalinn.
+Þar var bjart inni. Ýms húsgögn lágu þar á víð og dreif um gólfið, en
+til allrar hamingju vóru dýrustu myndastytturnar og borðin, með merkustu
+gersemunum svo vel fest, að þau hafði ekki sakað. Veggmyndirnar á
+bakborða héngu langt út frá þiljunum að neðanverðu. Sæfarinn lá á
+stjórnborðshlið og hreyfðist ekki heldur en jarðfastur klettur.
+
+Framan úr skipinu var að heyra þrusk mikið og mannamál. Ég ætlaði að
+fara út úr salnum, en þá komu þeir Konsæll og Ned Land í flasið á mér.
+
+"Hvað er um að vera?" spurði ég.
+
+"Ég ætlaði einmitt að fara að spyrja húsbóndann að því sama", svaraði
+Konsæll.
+
+"Það fór eins og mig grunaði", sagði Ned Land. "Sæfarinn hefir rent upp
+á grynningar og liggur svo illa sem hugsast getur".
+
+"Vitið þið hvort við erum ofansjávar?" spurði ég.
+
+"Nei", svaraði Konsæll.
+
+"Við skulum fara og vita hvers við verðum vísari!"
+
+Ég skundaði þangað sem þrýstimælirinn var, og varð ekki lítið forviða
+þegar ég sá að við vórum staddir á þrjú hundruð og sextíu metra dýpi.
+
+"Hvernig í ósköpunum stendur á þessu!" varð mér að orði.
+
+"Við skulum fara og spyrja skipstjórann", sagði Konsæll.
+
+"Það er nú svo, en hvar er skipstjórinn?" spurði Ned Land.
+
+"Komið þið með mér!"
+
+Við fórum út úr salnum og inn í bókasafnsklefann. Hann var mannlaus.
+Datt mér þá í hug að Númi mundi náttúrlega vera við stýrið. Við kusum
+heldur að bíða en fara þangað og snérum því aftur inn í salinn.
+
+Ned Land brann í skinninu. Ég lofaði honum að rausa og geysa, eins og
+hann vildi og svaraði engu. Ég sat og hlustaði stundarkorn þangað til
+Númi alt í einu vatt sér inn úr dyrunum. Það var óvanalegur asi á honum
+og lét sem hann sæi okkur ekki, en fór að athuga þrýstimælirinn og
+áttavitann. Þegar hann var búinn að því, snéri ég mér að honum og spurði
+hvað fyrir hefði komið.
+
+"Óhappa slys", svaraði hann.
+
+"Eru mikil brögð að því?"
+
+"Um það er ekki full vissa fengin enn".
+
+"Hefir skipið laskast?"
+
+"Já".
+
+"Hvernig vildi það til".
+
+"Því valda ófyrirsjáanleg atvik. Jafnvægislögmálið fylgir sínum kreddum
+og má ekki fyrir því gera".
+
+Ég skildi ekki enn hvað hann fór.
+
+"Hver eru þau óhappaatvik, sem þér talið um?" spurði ég.
+
+Númi mælti: "Þegar straumar mæða lengi á stórum fjalljökum, þá eyðast
+þeir að neðan, eins fer ef þeir berast út í hlýjan sjó, þá bráðnar utan
+af þeim hlutanum sem í kafi er. Fer þá svo að lokum að þeir steypast
+kollhnýs. Það er svona atvik, sem við höfum orðið fyrir nú. Fjalljaki
+hefur kolloltið og lent á skipshliðinni annari. Skipið hefir hrokkið
+fyrir, byltst til og orðið ofan á nokkrum hluta jakans."
+
+"Mætti ekki létta skipið með því að tæma sökkviklefana?" spurði ég.
+
+"Það er einmitt verið að því núna", svaraði skipstjórinn. "Sæfarinn er
+að lyftast upp, eins og þið sjáið á þrýstimælinum. En jakinn lyftist
+líka að sama skapi, svo við erum engu nær fyr en ef svo vill til, að
+hann rekst á eitthvað".
+
+Það fór eins og Númi hafði sagt. Áttum við nú á hættu að jakinn bærist
+með skipinu upp undir fastaísinn og molaði það þar.
+
+Þegar þessu hafði farið fram um hríð, kom alt í einu önnur hreyfing á
+Sæfarann. Hann var að rétta við. Veggmyndirnar lögðust smátt og smátt að
+þilunum. Við stóðum þegjandi og biðum þess sem verða vildi. Liðu svo tíu
+mínútur. Þá var Sæfarinn kominn á réttan kjöl.
+
+"Við erum á réttum kili", sagði ég.
+
+Númi samsinti því og gekk á dyr.
+
+"En erum við á floti?" spurði ég.
+
+"Það hlýtur að vera", svaraði skipstjórinn. "Það er verið að létta á
+sökkviklefunum og Sæfarinn er því á uppgaungu".
+
+Rétt eftir að Númi var farinn út stöðvaðist skipið. Var það hyggilegt af
+Núma að láta ekki berast hærra upp, því ella gátum við átt á hættu að
+rekast upp undir fastaísinn. En það varð hann að forðast.
+
+"Er okkur borgið?" spurði Konsæll.
+
+"Já", svaraði ég. "Lánið var með okkur í þetta sinn og mátti ekki miklu
+muna, að við yrðum innibyrgðir og köfnuðum í loftleysi."
+
+"Það er nú svo", sagði Ned Land.
+
+Í þessu var hlerunum skotið frá gluggunum og lagði inn birtu utan að.
+Sæfarinn var á floti. En í tíu metra fjarlægð frá báðum borðum vóru
+þverhníptir, gljáandi ísveggir, sömuleiðis fyrir ofan skipið og neðan.
+Jakinn sem við flúðum undan hafði rekist á fastaísinn og við vórum
+komnir inn í geil eða göng, þrjátíu metra á hæð og breidd. Var nú ekki
+annað fyrir en komast út úr göngunum, aftur á bak eða áfram, síga nokkur
+hundruð metra niður í djúpið og halda svo ferðinni áfram.
+
+Ljósið í salnum var slökt, en inn um gluggana lagði svo sterka birtu, að
+full-ljóst var eftir sem áður. Birta þessi stafaði frá ljóskerum
+Sæfarans, en magnaðist margfaldlega af geislabrotinu í ísnum. Hver
+ójafna, sprunga og nibba í ísnum ljómaði í ótal litbrygðum eins og
+kristalsgler væri. Það var eins og við værum staddir í afarstórum helli,
+alsettum bláum, rauðum og grænum gimsteinum, sem skáru í augun af
+ljósmagni og litbrygðum.
+
+Þessi sjón var svo fögur og tíguleg að Ned Land varð hrifinn af henni,
+hvað þá við hinir. En á þessu varð skjót breyting. Konsæll hljóðaði upp
+yfir sig og við tókum ósjálfrátt höndunum fyrir augun.
+
+Sæfarinn var lagður af stað og skreið hratt. Öll þessi ógnamergð
+ljósgeisla og lita var komin á hreifingu. Var því líkast sem dynjandi
+eldregn flýgi fyrir gluggann, og stungu geislarnir augun eins og
+nálaroddar.
+
+Hlerunum var skotið fyrir gluggana og gátum við þá tekið hendurnar frá
+augunum, en sviðatilkenning höfðum við í sjáaldrinu lengi á eftir.
+
+Klukkan fimm um morguninn urðum við varir við snöggan kipp. Gátum við
+þess til, að framstafn skipsins hefði rekist í ísnibbu, og mundi það
+hæglega geta sneitt fyrir hana. En brátt varð ég þess var, að skipið
+skreið aftur á bak.
+
+"Við förum aftur á bak!" sagði Konsæll.
+
+"Já", svaraði ég. "Göngin hafa verið byrgð í þennan endann. Við verðum
+að leita útgöngu annarsstaðar".
+
+Ég var í mikilli geðshræringu, en reyndi að dylja hana fyrir félögum
+mínum. Mér eirði ekki að sitja lengur. Ég fór inn í bókaklefann, þaðan
+inn í salinn og svo inn í bókaklefann aftur, tók bók og fór að blaða í
+henni, en las ekki stakt orð.
+
+Konsæll kom inn til mín.
+
+"Er það skemtileg bók, sem húsbóndinn er að lesa núna?" spurði hann.
+
+"Já, mjög skemtileg", svaraði ég.
+
+"Mér datt það í hug. Það er víst 'Um leyndardóma undirdjúpanna'".
+
+Bókin mín! Ég skelti aftur bókinni og gekk inn í salinn.
+
+Ég beið með óþreyju þess sem verða vildi og var alt af annað veifið að
+athuga mælingaverkfærin. Á þrýstimælinum sá ég að við vórum alt af í
+þrjú hundruð metra dýpi, og áttavitinn sýndi að við héldum í suður; en
+skriðstikan mældi 5 sæmílna hraða á klukkustundinni. Það var hratt farið
+í svo þröngum farvegi. En Númi skipstjóri varð að hafa hraðann á, því
+hver mínúta var dýrmæt.
+
+Þegar klukkan var gengin tuttugu og fimm mínútur í níu, rakst skipið á
+að nýju. Og nú var það skuturinn sem mætti fyrirstöðunni.
+
+Ég fölnaði af ótta, og förunautar mínir spruttu upp og staðnæmdust hjá
+mér. Ég tók í höndina á Konsæl.
+
+Í sömu svifum kom Númi skipstjóri inn úr dyrunum.
+
+"Við erum innibyrgðir", sagði hann.
+
+Mér varð litið framan í Núma. Hann var að sjá jafn skaprór og hann átti
+vanda til. Hann staðnæmdist á miðju gólfinu, brá handleggjunum í kross á
+brjóstinu og var hugsi um hríð.
+
+Sæfarinn hreyfðist ekki.
+
+Loks tók Númi til máls, jafn stillilega og vant var:
+
+"Það verður líklega út úr, að við köfnum hérna".
+
+"Er þéttiloftið komið að þrotum?" spurði ég.
+
+"Við höfum enn nægilegt loft í fjörutíu og átta klukkustundir".
+
+"Er engin von um að fram úr rakni fyrir okkur, fyrir þann tíma?"
+
+"Við verðum að reyna að brjótast gegnum ísinn. Sæfarinn er nú að
+leggjast á botninn á þessum göngum. Svo sendi ég nokkra menn út til að
+grenslast eftir hve ísinn er þykkur og hvar tiltækilegast muni að leita
+útgöngu".
+
+Að svo mæltu fór Númi. Sæfarinn seig niður á við hægt og hægt og náði
+loks botni á þrjú hundruð og fimmtíu metra dýpi.
+
+"Við erum í miklum vanda staddir", sagði ég.
+
+"Svo er víst", svaraði Ned Land, "og er nú sízt tími til ill-lynda og
+nöldurs. Ég get beitt íshöggi engu síður en skutli, og vil nú bjóða Núma
+skipstjóra liðveizlu mína".
+
+Við fylgdum Núma þangað, sem skipverjar vóru að fara í kafarafötin. Boði
+hans var vel tekið, og sá ég ekki að hann væri seinni að búa sig, en
+hver hinna.
+
+Meðan þessu fór fram, hafði hlerunum verið skotið frá gluggunum á
+salnum. Gátum við Konsæll því séð, hverju fram fór umhverfis skipið. Að
+vörmu spori komu tíu menn út úr skipinu og gengu út á ísinn. Mátti sjá
+hvar þeir fóru, Númi skipstjóri og Ned Land, því þeir vóru öðrum miklu
+meiri á vöxt.
+
+Áður byrjað væri að brjóta ísinn, var hann kannaður rækilega með löngum
+ísnöfrum. Fyrst var borað í hliðarstálin til beggja handa, og náði
+nafarinn 15 metra inn í ísinn, en komst þó ekki í gegn. Þótti þá
+vonlaust, að reyna frekar í þá átt. Þá var borað niður í botninn. Þar
+reyndist ísinn að vera tíu metra þykkur. Var nú ekki annað fyrir, en
+höggva þar gat á ísinn, svo stórt, að Sæfarinn kæmist niður um það. En
+til þess að það gæti tekist, varð að höggva upp sex þúsund og fimm
+hundruð teningsmetra af ís.
+
+Var nú umsvifalaust tekið að brjóta ísinn. Númi markaði fyrir um svo
+stóran blett, sem svaraði ummáli skipsins. Þegar farið var að höggva
+ísinn, kom í ljós einkennilegt fyrirbrygði, sem varð mikill hægðarauki
+við vinnuna. Klakaflísarnar, sem losnuðu, vóru léttari en vatnið, og
+leituðu því upp á við jafnharðan og staðnæmdust upp við ísþekjuna í
+göngum þessum. Varð hún því að sama skapi þykkari, sem gólfið varð
+þynnra.
+
+Eftir tvær klukkustundir kom Ned Land inn í salinn aftur, og var þá
+all-dasaður orðinn. Tók þá við nýr flokkur manna af hinum, og vórum við
+Konsæll í þeirra hóp. Þeim flokki stýrði næstráðandi skipsins.
+
+Mér þótti sjórinn kaldur fyrst í stað, en mér hitnaði brátt af erfiðinu.
+Var mér þó furðu hægt um hreyfingar allar, þrátt fyrir þrjátíu
+loftþyngda þrýsting, sem hvíldi á okkur.
+
+Þegar ég kom inn í skipið aftur, að liðnum tveim stundum, til að hvílast
+og matast, fann ég talsverðan mun á því, hve loftið í skipinu var verra
+en það loft, sem við höfðum andað að okkur við vinnuna. Í herbergjum
+skipsins hafði ekki verið skift um loft í fjörutíu og átta
+klukkustundir, og var það því orðið talsvert mengað af kolsýru.
+
+Fór svo fram um tólf stundir, að flokkarnir skiftust á um að brjóta
+ísinn. Var þá dældin orðin einn meter á dýpt. Með sama áframhaldi þurfti
+enn að vinna í fimm nætur og fjóra daga, til þess að ljúka verkinu.
+
+Fimm nætur og fjóra daga! Það vóru illar horfur. Og nú áttum við ekki
+meira loft eftir en svo, að vart mundi endast í tvo sólarhringa.
+
+"Já, og ekki nóg með það", sagði Ned Land, þegar ég hafði orð á þessu
+við hann, "þó við höfum af að komast niður úr ísnum, erum við engu
+bættari, fyr en við komumst út úr ísnum og náum lofti í auðum sjó".
+
+Ástæður okkar vóru óneitanlega slæmar, en við vórum samhuga um það
+allir, að duga eftir mætti fram á síðustu stund.
+
+Um nóttina var dældin enn dýpkuð um einn meter. En þegar ég byrjaði að
+vinna morguninn eftir, veitti ég því eftirtekt, að ísgeilin, sem við
+vórum í, var að þrengjast. Hliðarnar færðust nær. Ennþá einn háskinn á
+ferðinni! Það var ekki um að villast, sjórinn umhverfis okkur var að
+frjósa, og hlaut sá endir á því að verða, að frostið kreisti Sæfarann
+saman í heljargreipum sínum.
+
+Þegar ég kom inn í skipið aftur, vakti ég máls á þessu við Núma
+skipstjóra. En kjarkur þessa manns var óbilandi.
+
+"Ég veit það", sagði hann. "En við því er ekki annað að gera, en vinna
+hraðar en frostið,--verða á undan því".
+
+Þann dag vann ég marga tíma af mesta kappi. Vinnan hélt við hugrekki
+mínu, og svo var annað, sem hvatti mig til vinnunnar. Loftið í Sæfaranum
+var orðið æði þungt og þrungið af óheilnæmi, en við vinnuna höfðum við
+hreint loft, sem tekið var úr loftforða skipsins og látið í lofthylkin,
+sem við bárum á bakinu.
+
+Um kvöldið vórum við enn komnir einum meter dýpra. En loftið í Sæfaranum
+var nú orðið svo fult af kolsýru, að Númi varð að opna einn
+þéttiloftsklefann og hleypa hreinu lofti út í skipið.
+
+Daginn eftir tók ég til starfa að nýju. Var nú ísinn kominn svo nærri
+til beggja hliða og að ofan, að mér duldist ekki að hann mundi læsa sig
+utan um skipið áður en við gætum bjargað því. Ég var að því kominn að
+láta hugfallast. Til hvers var að strita lengur, fyrst svo átti að fara
+hvort sem var, að þetta steingerða vatn kreisti úr okkur lífið! Það var
+því líkast sem óargadýr væri að leggja skoltana utan um okkur.
+
+Í sama bili gekk Númi hjá mér. Ég benti með hendinni á ísinn. Á
+stjórnborða hafði ísinn þokast nær um fjóra metra. Númi skildi hvað ég
+átti við og benti mér að koma með sér. Snérum við inn í skipið aftur,
+fórum úr kafarafötunum og gengum inn í aðalsalinn.
+
+"Við verðum að finna eitthvert úrræði, prófessor góður; ella er úti um
+okkur".
+
+"Já, en hvað á það að vera?"
+
+"Ég vildi að Sæfarinn væri sterkari en ísinn!" sagði Númi. "Þá mundi
+hann geta sprengt ísinn, eins og ís sprengir stein, og við þyrftum
+ekkert fyrir að hafa".
+
+"Nei færum við að reyna það, þá yrði Sæfarinn að járnklessu".
+
+"Já, satt er það. Við verðum að hamla frostinu að ná okkur. Það er ekki
+einungis til hliðanna, sem ísinn færist nær, heldur einnig til beggja
+enda".
+
+"Hve mikið loft er eftir?"
+
+"Ekki meira en svo, að leyfarnar þrjóta í fyrramálið", svaraði Númi
+dræmt og leit til mín.
+
+Mér spratt kaldur sviti í enni. Var þó þetta engin nýjung, því ég vissi
+vel að svona hlaut að fara. Nú vóru liðnir fimm sólarhringar síðan
+hreint loft var tekið seinast.
+
+Ég leit á Núma og sá að hann var annars hugar. Það var að sjá sem honum
+hefði hugkvæmst eitthvað, sem hann var að velta fyrir sér.
+
+Eftir nokkra þögn mælti Númi; "Það er ekki mikill sjór umhverfis okkur.
+Ef heitu vatni væri dælt út úr skipinu, ætti það að geta hamlað upp á
+móti frostinu".
+
+"Það ættum við að reyna".
+
+"Komið þér með mér".
+
+Númi fór með mig inn í matreiðsluklefann. Þar vóru stór og margvísleg
+eimingaráhöld, sem höfð vóru til að ná neyzluvatni úr sjónum. Eimíkerin
+vóru fylt vatni og hleypt gegnum þau sterkum rafmagnsstraumi. Hitnaði þá
+vatnið svo að segja á augabragði og mátti þegar í stað dæla því út
+sjóðheitu.
+
+Að liðnum þrem stundum sýndi mælirinn utan á skipinu sex stiga frost.
+Það var einu stigi minna en þegar tilraunin byrjaði. Enn liðu tvær
+stundir, og var þá frostið ekki orðið meira en fjögur stig.
+
+Þegar leið á nóttina var frostið orðið að eins eitt stig. Hærra var ekki
+unt að komast. En þetta dugði, því saltvatn þarf tveggja stiga kulda til
+að frjósa. Var því nú afstýrt að við frysum inni á þennan hátt.
+
+Að kvöldi hins næsta dags var búið að höggva svo mikinn ís, að þróin var
+orðin sex metra djúp. Þá vóru eftir fjórir metrar,--sama sem fjörutíu og
+átta klukkustunda vinna.
+
+Loftið í skipinu varð nú ekki endurnýjað oftar. Það sem til var af
+óspiltu lofti, varð að treina handa þeim, sem unnu að klakahögginu.
+Loftið var því nær banvænt orðið.
+
+Ég varð altekinn af þróttleysi og doða, sem ætlaði að gera út af við
+mig. Klukkan þrjú um daginn elnaði ógleði mín og sóttu á mig geispar svo
+tíðir og langir, að við sjálft lá að kjálkarnir gengju úr eðlilegum
+skorðum. Því næst kom yfir mig doðamók, svo nærri lá að ég misti
+meðvitundina. En ég átti hauk í horni þar sem Konsæll var. Hann hélt í
+höndina á mér og reyndi á allan hátt að hughreysta mig og var hann þó
+jafn illa haldinn og ég.
+
+Þegar svona var orðið ástatt í skipinu má geta nærri að við urðum fegnir
+að komast út til vinnunnar. Okkur stóð á sama þó verkið væri erfitt, þó
+við yrðum yfirkomnir af þreytu. Við gátum dregið andann meðan stóð á
+vinnunni, og það var aðalatriðið.
+
+Þegar þessi dagur var á enda vóru eftir að eins tveir metrar milli lífs
+og dauða. En loftið var á förum.
+
+Það var óttaleg nótt sem í hönd fór, og næsti dagur þó enn verri. Ég
+kvaldist af höfuðverk og svima og reikaði eins og drukkinn maður, þegar
+ég stóð upp.
+
+En Númi skipstjóri lét ekki hugfallast af stritinu og þrautunum, sem
+hann átti sömu hlutdeild í og við.
+
+Hann einn réði betur fram úr vandræðunum en við allir hinir. Hann afréð
+að gera tilraun til að bjarga okkur á auðveldari hátt en íshöggið var.
+Þróin sem búið var að höggva, var á stærð við Sæfarann að innanmáli og í
+botninum var ísinn að eins einn meter á þykt. Númi lét nú bora göt
+gegnum ísinn til og frá. Að því loknu skipaði hann að lyfta Sæfaranum
+þaðan sem hann lá og sökkva honum niður í þróna. Þegar skipverjar vóru
+komnir inn í skipið, var hlerunum lokað vandlega og vatni hleypt inn í
+sökkviklefana. Klefarnir rúmuðu eitt hundrað teningsmetra af sjó. Við
+það varð skipið tvö þúsund tíufjórðungavættum þyngra en áður.
+
+Við biðum óþreyjufullir úrslitanna.
+
+Þrátt fyrir suðið í eyrum mér, heyrði ég glögt ísinn bresta undan
+kjölnum á Sæfaranum. Alt í einu brast hann allur sundur með braki miklu,
+og skipið sökk eins og steinn í djúpið.
+
+"Við erum komnir niður úr", sagði Konsæll.
+
+Ég kom ekki upp orði, en tók í höndina á Konsæl fast og alúðlega.
+
+Sæfarinn féll eins og steinn í lausu lofti, sökum vatnsþyngslanna, sem í
+honum vóru.
+
+Dælurnar vóru settar af stað á augabragði til að þrýsta út sjónum úr
+skipinu. Dró því brátt úr fallhraðanum og eftir stutta stund mátti sjá á
+þrýstimælinum að skipið var farið að leita upp á við aftur. Var nú vélin
+sett af stað og haldið áfram norðureftir með fylsta hraða.
+
+En nú var eftir að vita hve langt var norður úr ísnum. Lengur en einn
+dag enn var óhugsandi að nokkur maður í skipinu héldi lífi.
+
+Ég var hættur að vita hvað tímanum leið. Ég vissi það eitt, að ég var
+kominn fram í andarslitrin og hlaut að deyja.
+
+Skyndilega lifnaði yfir mér aftur og ég teigaði að mér hreint loft.
+Vórum við komnir út úr ísnum og upp á yfirborðið?
+
+Nei, ekki var því að heilsa. En Ned Land og Konsæll höfðu fundið ögn af
+lofti í einu kafarahylkinu og létu mig anda því að mér, í stað þess að
+neyta þess sjálfir.
+
+Ég ætlaði að ýta því frá mér, en þeir héldu á mér höndunum meðan ég var
+að svelgja hreina loftið.
+
+Mér varð litið á klukkuna. Hún var ellefu. Það var liðið nær hádegi,
+hinn 28. marz. Ég fann að skipið hristist ákaft af átökum vélarinnar.
+
+Eftir þrýstimælinum að dæma vórum við ekki nema tuttugu fet fyrir neðan
+yfirborð sjávar. Ísinn var orðinn tiltölulega þunnur og ekki óhugsandi
+að takast mætti að brjótast upp úr honum. Að minsta kosti ætlaði Númi að
+gera tilraun til þess. Sæfarinn lagðist skáhallur, svo stafninn vissi
+upp á móti ísnum. Til að ná þeirri aðstöðu þurfti ekki annað en fylla
+sökkviklefa aftur í skipinu. Svo rann hann undir ísinn og beitti
+stáltrjónunni. Gekk svo um hríð og brotnaði ísinn að mun í hverri
+atrennu. Loks rann hann í gegnum ísinn og upp á skörina, sem þegar
+brast undan þunga skipsins.
+
+Þiljuhlerunum var hrundið upp í einni svipan og hreint loft lagði niður
+í skipið.
+
+
+
+
+X.
+
+
+Hvernig ég komst upp á þilfar veit ég ekki. Ned Land og Konsæll hafa að
+líkindum hjálpað mér upp; en ég andaði að mér hreinu lofti--og það var
+mér öllu öðru dýrmætara. Menn sem setið hafa í svelti um langan tíma,
+verða að gæta varúðar, þegar þeir fá aftur nægan mat. En þess þurftum
+við ekki. Við svelgdum loftið svo mikið sem þörfin krafði.
+
+"Hér er gott að koma. Hér er nóg af blessuðu loftinu", sagði Konsæll.
+
+Ned Land, sagði ekkert, en hann gapti svo ákaflega, að það hefði gert
+hvern meðalhákarl skelkaðan. Þvílík lungu! Þau sogugu og kvæstu, eins og
+stærsti smiðjubelgur.
+
+Við náðum okkur aftur furðu fljótt og ég flýtti mér að þakka félögum
+mínum fyrir umönnun þeirra á mér. Ég er viss um að án þeirra aðstoðar
+hefði ég ekki haldið lífinu.
+
+Eftir nokkra töf fór Sæfarinn aftur í kaf og hélt áfram ferðinni
+norðureftir. Við stefndum á suðurodda Ameríku. En hvert var ferðinni
+heitið? Hvort ætlaði hann að beygja vestur fyrir Ameríku, út í
+eyðivíðáttu Kyrrahafsins, eða austur í Atlantshafið, meðfram ströndum
+Evrópu eða Ameríku?
+
+Það var vafamál, sem skifti miklu.
+
+Ég bjóst við að Númi mundi stýra í vestur og ljúka svo hringför sinni
+umhverfis hnöttinn. En sú ætlun brást. Hann beygði til austurs og hélt
+norður með ströndum Ameríku.
+
+Hinn 16. dag aprílmánaðar höfðum við landsýn. Vórum við þá fjórar mílur
+undan Marteinseyjum.
+
+Ned Land fór að hyggja á flótta að nýju. En við vórum of langt frá
+löndum enn sem komið var.
+
+Við félagarnir höfðum langa samræðu um flóttaundirbúninginn. Kom þá Ned
+Land fram með uppástungu, sem mér var í meira lagi um geð. Hann sagði að
+nú ætti ég að fara og hitta Núma skipstjóra að máli tafarlaust, og fá að
+vita fyrir víst, hvort hann ætlaði sér að halda okkur á skipinu
+framvegis. Þetta þótti mér ekki hyggilega ráðið og líklegra til að
+spilla ráðagerð okkar. Ég vænti einskis góðs af Núma, og taldi okkur
+verða mundi vandara ráða, ef hann fengi nokkurn grun um þessa
+fyrirætlun. Auk þess var Númi orðinn óvanalega einrænn og fálátur, upp
+á síðkastið. Það var svo að sjá sem hann forðaðist mig, enda varð hann
+sjaldan á vegi mínum. Áður var hann vanur að rannsaka með mér ýmsar
+nýjungar, sem fyrir okkur bar í ríki sævarins og fræða mig um hitt og
+annað. En nú var hann alveg hættur því og kom því nær aldrei inn í
+salinn.
+
+Mér var óskiljanlegt af hverju þetta stafaði. Það gat verið að honum
+mislíkaði vist okkar á Sæfaranum. En ekki gat ég samt trúað honum til að
+gefa okkur lausa.
+
+Tuttugasta apríl vórum við í fjórtán hundruð metra dýpi. Mararbotninn
+var ósléttur mjög og stórgrýttur. Vóru víða gjár og gjótur milli
+klettanna, svo djúpar að ekki sá til botns. Á klettunum uxu afar stórir
+þönglar og þarategundir ýmsar.
+
+Við félagarnir sátum út við gluggann og athuguðum það sem fyrir augun
+bar. Barst þá talið að sædýrum ýmsum, sem verða hvert öðru að bráð,
+eftir stærð og færleik.
+
+Ned Land var ekki ætíð samdóma okkur Konsæl og lagði hann lítinn trúnað
+á sögur, sem sagðar eru um stóra kolkrabba.
+
+"Ég hefi sjálfur séð kolkrabba draga stórt hafskip í kaf", sagði Konsæll
+í mestu einlægni.
+
+"Það er svo", sagði Ned Land. "Hvar skeði það nú?--ef ég má spyrja".
+
+"Í St. Maló", svaraði Konsæll.
+
+"Á höfninni?" spurði Ned háðslega.
+
+"Nei í kirkjunni".
+
+"Hvað á þetta að þýða?"
+
+"Jú-ójú,--þar er málverk, sem sýnir þetta mjög greinilega".
+
+Þá hló Ned Land og skaut svo málinu undir minn úrskurð. Ég kannaðist við
+það, að mynd þessi væri að vísu hugarburður; en því hélt ég fram, að
+kolkrabbar gætu orðið afar stórvaxnir.
+
+Vórum við að skeggræða um þetta fram og aftur og gættum ekki að hverju
+fram fór, þar til Konsæll kallaði til okkar alt í einu. Varð okkur litið
+út um gluggann og sáum við þá óvænta sjón. Það var skrímsl, afar stórt
+og svo hræðilegt, að það hefði vel getað átt heima í kynlegustu
+lygasögu.
+
+Þetta var kolkrabbi, sjálfsagt átta metra langur. Hann synti aftur á bak
+í sömu átt og Sæfarinn og jafn hratt. Hann hafði átta anga alsetta
+sogskálum og var hver um sig tvöfalt lengri en skrokkurinn. Goggurinn
+var afar stór og sterklegur og svipaður arnarnefi í lögun. Hann skifti
+litum í sífellu, var ýmist stálgrár eða móbrúnn.
+
+Fyrir tilviljun höfðum við rekist á eina af þessum skepnum, sem við
+vórum að tala um. Þótti mér bera vel í veiði og ætlaði ekki að láta
+tækifærið ónotað. Tók ég því ritblý í snatri og fór að draga mynd af
+dýrinu.
+
+En brátt komu fleiri kolkrabbar í ljós. Urðu þeir sjö talsins á stuttum
+tíma, stjórnborðsmegin. Þeir fylgdust með skipinu og hnitmiðuðu hraðann
+svo nákvæmlega við ferð skipsins, eins og væru þeir fastir við það.
+Hefði vel mátt draga mynd af þeim með því móti, að líma gagnsæjan pappír
+á rúðuna og gera merkilínur á hann. Að vísu skreið Sæfarinn heldur hægt.
+
+Í einni svipan stöðvaðist skipið og varð af harður kippur, svo gnast í
+öllum samskeytum.
+
+"Höfum við rekist á sker?" spurði ég.
+
+"Hvort sem það er eða ekki, þá erum við á floti enn", svaraði Ned Land.
+
+Sæfarinn var á floti.--Það var satt. En hann lá kyr. Að vörmu spori kom
+Númi inn og næstráðandi með honum.
+
+Ég hafði ekki séð hann áður jafn svipþungan og nú. Hann heilsaði
+ekki,--hefir ef til vill ekki tekið eftir okkur--en gekk rakleiðis að
+glugganum, athugaði kolkrabbana um stund og sagði svo nokkur orð við
+næstráðandann.
+
+Næstráðandi fór þegar út. Nokkru síðar var gluggunum lokað og rafljósið
+tendrað.
+
+Ég gekk til Núma.
+
+"Laglegt kolkrabbasafn þetta", sagði ég.
+
+"Já, hr. náttúrufræðingur", svaraði hann, "og við verðum að berjast við
+þá".
+
+"Berjast", át ég eftir. Mér var ekki ljóst hvað Númi átti við.
+
+"Já, ég ímynda mér að eitt af þessum dýrum hafi gripið um skrúfuspaðana
+og haldi þeim föstum. Þess vegna komumst við ekki áfram".
+
+"Hvað er við því að gera?"
+
+"Við verðum að fara upp að yfirborðinu og ráðast á þá með vopnum og
+bareflum".
+
+"Og skutli, ef þér viljið þyggja lið af mér", sagði Ned Land.
+
+"Það þygg ég gjarna", svaraði Númi.
+
+Að svo mæltu fórum við til stigans, sem farið var eftir upp á þiljur.
+Þar vóru fyrir tíu menn vopnaðir. Höfðu sumir íshögg og barefli af ýmsu
+tagi. Við Konsæll fengum okkur sitt höggvopnið hvor, en Ned Land hafði
+skutulinn.
+
+Sæfarinn fór upp að yfirborðinu. Skipverji einn, sem efstur stóð í
+stiganum fór að losa um skrúfurnar, sem þiljuhlerunum var fest með. En
+áður hann fengi lokið því verki, var hlerunum svift upp af afli miklu.
+Kolkrabbi einn hafði sogið sig fastan við hlerann og tekið svo snögt
+viðbragð.
+
+Rétt í sömu svipan kom angi og fálmaði niður um hleragatið. Númi var
+fljótur til og hjó í sundur angann svo hann valt niður stigann og
+engdist viðbjóðslega á gólfinu.
+
+Skipverjar ruddust fast og sóttu upp stigann. Komu þá niður tveir angar,
+vöfðust utan um einn hásetann og sveifluðu honum upp um hleragatið.
+
+Númi hljóðaði upp yfir sig og rann upp stigann eins og kólfi væri
+skotið. Við hinir fórum þegar á hæla honum.
+
+Kolkrabbinn hélt manninum hátt upp og kramdi hann með sogskálunum.
+Maðurinn braust um af megni og kallaði á hjálp, en gat engri vörn við
+komið.
+
+Númi sótti þegar að dýrinu og hjó af því einn angann. Næstráðandi átti í
+höggi við annan kolkrabba, sem hafði sogið sig fastan við skipið. Gengu
+skipverjar vel fram og drógu ekki af sér. Við Konsæll beittum íshöggunum
+en Ned Land skutlinum. Lögðum við vopnunum hvað eftir annað á kaf í
+grænleitar þjósir skrímslanna. Lagði af þeim megnan óþef, ekki óáþekkur
+moskuslykt.
+
+Ég hélt um eitt skeið að manninum væri borgið. Þá var búið að höggva af
+dýrinu alla angana nema þann, sem hélt manninum. En þá sendi dýrið yfir
+okkur voðamikla gusu af svörtum legi, sem blindaði okkur alveg í
+svipinn. Þegar við gátum neytt augnanna aftur var það horfið í djúpið
+með manninn.
+
+Eftir þetta sóttum við að ófreskjunum hálfu ákafar en áður. Höfðu dýrin
+þá læst sig á skipið tíu eða tólf saman, bæði á súðirnar og þilfarið.
+Varð skipið á svipstundu atað blóði og svörtum legi, en afhögnir limir
+engdust eins og höggormar til og frá um þilfarið. Ned Land beitti
+skutlinum af miklu kappi og hiltist til að leggja dýrin í augun. Þá
+vildi svo til að kolkrabbi sló einum anganum á hann, svo hann féll
+fyrir.
+
+Ég skundaði til og ætlaði að hjálpa Ned Land, en Númi varð fyrri til.
+Keyrði hann höggvopnið upp í ginið á dýrinu og var þá Ned borgið. Spratt
+hann á fætur og tvíhenti skutulinn á dýrið svo stóð í hjarta.
+
+Þessi bardagi stóð yfir í einn stundarfjórðung, og fanst okkur það þó
+ærið langur tími. Fór svo að lokum að kolkrabbarnir fóru á flótta, þeir
+sem svo vóru færir. Vóru flestir illa útleiknir, særðir og sundurtættir.
+
+Númi var allur ataður blóði eftir viðureignina. Stóð hann lengi á
+þilfarinu og horfði út á hafið, sem lukti nú yfir einn af félögum hans,
+og hrundu honum tár af augum.
+
+Eftir það sá ég ekki Núma í nokkra daga. Hann lokaði sig inni í klefa
+sínum og var ekki mönnum sinnandi.
+
+Sæfarinn sveimaði til og frá um þessar sömu slóðir þá dagana. Loks
+héldum við áfram ferðinni norðureftir og nálguðumst strendur
+Norður-Ameríku. En við fórum langt frá landi og veður vóru hörð um
+þessar mundir, þó það bitnaði lítið á okkur.
+
+Dag einn kom Ned Land inn til mín.
+
+"Þetta verður að hafa einhvern enda", sagði hann. "Númi stýrir nú í
+norður. Ég er búinn að fá nóg af Suðurskautinu og ætla ekki að vera með
+til Norðurskautsins".
+
+"Hvað eigum við að gera, Ned Land?"
+
+"Þér verðið að tala við skipstjórann. Að öðrum kosti ætla ég að gera
+það. Við nálgumst Ameríku,--erum komnir í námunda við Kanada, ættland
+mitt. Ég vil komast héðan hvað sem það kostar".
+
+Ned Land var þrotin þolinmæðin. Hann gat ekki unað þessari æfi lengur.
+Ég var líka orðinn annars hugar, en ég var fyrir sjö mánuðum. Allan
+þennan tíma hafði ég verið einangraður frá viðskiftum við aðra menn og
+vissi ekki hverju fram fór í heiminum. Númi var orðinn gjörbreyttur.
+Áður var hann mér til ánægju og aðstoðar í rannsóknum mínum, en nú var
+því með öllu lokið.
+
+Það þurfti flæmskan mann, eins og Konsæl, til að una svona æfi til
+lengdar.
+
+"Þér viljið þá að ég spyrji hann, hvað hann ætlar sér fyrir með okkur?"
+sagði ég.
+
+"Já".
+
+"En ég hitti hann sjaldan. Hann forðast að verða á vegi mínum".
+
+"Því meiri ástæða er til að reyna að komast að einhverri niðurstöðu í
+þessu".
+
+"Ég skal reyna, Ned".
+
+"Hve nær?"
+
+"Þegar ég hitti hann".
+
+"Viljið þér að ég nái í hann?"
+
+"Nei, látið mig einan um það. Á morgun . . . ."
+
+"Nei, í dag", sagði Ned með áherzlu.
+
+"Þá það. Ég skal finna hann í dag".
+
+Ned Land fór út, og ég einsetti mér að koma þessari fyrirætlan í
+framkvæmd þegar í stað.
+
+Ég gekk að skipstjóraklefanum og hleraði. Númi var inni. Ég barði að
+dyrum.--Enginn anzaði. Ég barði aftur og lauk svo upp hurðinni. Númi var
+þar og laut fram yfir skrifborðið. Hann hafði að líkindum ekki heyrt til
+mín. Þegar ég gekk til hans, rétti hann úr sér og leit við mér
+reiðulega.
+
+"Hvað viljið þér?" spurði hann.
+
+"Mig langar að tala við yður nokkur orð".
+
+"Ég er vant við látinn; ég er að vinna".
+
+Þetta vóru ekki glæsilegar viðtökur, en ég hugsaði mér að gefast ekki
+upp fyr en í fulla hnefana.
+
+"Það er mikilsvarðandi málefni, sem ég ber fyrir brjósti, hr.
+skipstjóri".
+
+"Það er svo", svaraði Númi háðslega. "Hafið þér dottið ofan á eitthvert
+hugvitsráð? Eða hafið þér komist að einhverju leyndarmáli í ríki
+hafsins, sem mér er ókunnugt?"
+
+Ég var í vafa um, hvernig ég ætti að hefja máls á erindinu. En áður ég
+fengi sagt nokkuð tók Númi aftur til máls og benti um leið á
+handritabunka, sem lá á borðinu fyrir framan hann:
+
+"Hérna eru ritverk mín. Í þeim er öllu lýst, sem fyrir mig hefir borið á
+sæferðum, það sem snertir náttúru hafsins og þeirra dýra, sem það
+byggja. Ég held þeim áfram væntanlega langan tíma enn og bæti mörgu við.
+Ég ætla líka að skrifa æfisögu mína".
+
+Númi hallaði sér aftur í stólnum og horfði í heim fram stundarkorn. Ég
+lagði við hlustirnar.--Ætlaði hann að fara að segja mér æfisögu sína?
+
+"Það var í indverska stríðinu", sagði hann. "Þá var ég ungur; þá átti ég
+fagrar vonir; þá gat ég borið traust til mannanna.
+
+Ojá,--ekki var ég þó gamall, þegar gremja og hrygð fóru að sverfa að
+mér. Ég hafði lengi horft á þjóð mína þjakaða og hrakta. Alt stóð í
+stað, sem til umbóta mátti horfa, en heimska og sérdrægni sátu á
+valdastóli. Margra alda menning okkar var fótum troðin og alþýða manna
+kúguð. Sérdrægir og óhófsgjarnir valdhafar læstu klónum í þjóðina og
+sugu úr henni blóð og merg. En hefndin kom--hlaut að koma. Það var ég,
+sem fyrstur hóf merkið og fylkti þjóð minni til orustu gegn kúgun og
+ófrelsi. En það var að eins hefndin,--endaslepp hefnd!"
+
+Númi stóð upp og gekk um gólf í ákafa. Það fór hrollur um mig, þegar ég
+hugsaði til þess hve Indverjum hafði blætt meðan uppreisnin stóð yfir.
+Hve margar þúsundir þeirra höfðu verið myrtar og svívirtar á allan hátt,
+svo flestum mentuðum þjóðum ofbauð. Og þessi maður, Númi skipstjóri, var
+þá indverski konungssonurinn, sem stýrði uppreisninni.
+
+Númi staðnæmdist fyrir framan mig.
+
+"Það varð alt árangurslaust", sagði hann með skjálfandi rómi. "Og hvar
+er sú þjóð stödd, sem fargað hefir frelsi sínu. Hún er svift öllum
+skilyrðum fyrir því að vera þjóð og geta tekið eðlilegum framförum!
+Kúgun er verri en dauði. Það er réttur og skylda hvers manns að fórna
+lífi sínu fyrir frelsið.--En ranglætið er réttinum yfirsterkara".
+
+Númi þagnaði og settist aftur á stólinn. Ég reyndi að tengja saman það
+sem honum var nú ríkast í hug og það, sem mér bjó í brjósti.
+
+"Þegar þessum handritum yðar er lokið,--hvað verður þá um þau?"
+
+"Þau verða látin í lokað hylki, sem ekki getur sokkið og sá maður, sem
+lengst lifir á skipinu fleygir því í sjóinn".
+
+"Það væri mjög undir tilviljun lagt", sagði ég, "og ekki gott að vita í
+hvaða höndum það lenti. Þér gætuð ráðstafað því á tryggilegri hátt. Ef
+þér létuð mig fá það og . . . . . . . ".
+
+"Það geri ég aldrei", svaraði Númi.
+
+"Ef þér létuð okkur lausa", bætti ég við.
+
+"Léti ykkur lausa!"
+
+"Já, það er um það, sem ég ætlaði að tala við yður", svaraði ég. "Nú
+erum við búnir að vera hérna á skipinu í sjö mánuði. Ég og félagar mínir
+verða að fá að vita, hvort það er ætlun yðar að halda okkur hér á
+skipinu framvegis".
+
+"Hr. Aronnax, ég hefi sagt yður það fyrir sjö mánuðum, að hver sem kemur
+á Sæfarann, verður að vera þar upp frá því".
+
+"Það er þá blátt áfram þrælkun".
+
+"Kallið það hvað sem yður þóknast".
+
+"En þrælnum er þó heimilt að taka sér frelsi, ef hann getur".
+
+"Hefi ég bannað yður það? Held ég yður í fjötrum?"
+
+Númi stóð með krosslagðar hendur og hvesti á mig augun.
+
+"Hr. skipstjóri", sagði ég. "Þér hafið vakið hjá okkur hlýjan hug til
+yðar. Við höfum orðið hrifnir af snilli yðar og hughreysti. Þér hafið
+bannað okkur að auðsýna yður þá samhygð, sem alt háleitt og fagurt
+skapar í brjóstum manna. Þér hafið valdið fáleikum milli okkar, sem
+gerir okkur lífið gleðisnautt. Þér talið um frelsi. Þér hafið barist
+fyrir frelsi, og hafið öðlast að sjálfur, en neitið okkur um það. Hvað
+haldið þér að verði úr þessu? Ég hefi með höndum vísindalegar
+rannsóknir, sem ég get unan við nokkurn tíma enn. En hvað haldið þér að
+verði úr félaga mínum, Ned Land? Hann hlýtur að leggja hatur á yður".
+
+Númi stóð upp úr sæti sínu.
+
+"Mér stendur svo hjartanlega á sama hvað Ned Land hugsar eða ályktar",
+sagði Númi. "Ég gerði það ekki að gamni mínu að taka ykkur á skipið.
+Þetta er í fyrsta sinn, sem þér talið við mig um þetta mál, hr.
+prófessor, það verður líka að vera í síðasta sinn".
+
+Ég fór út úr klefanum í þungu skapi og skýrði félögum mínum frá því, sem
+okkur Núma fór á milli.
+
+"Nú vitum við hvað í vændum er", sagði Ned Land. "Við verðum að flýja,
+hve nær sem færi gefst".
+
+
+
+
+XI.
+
+
+Þegar komið var norður undir Long-Island, breytti Sæfarinn stefnu og
+stýrði í landsuður. Ned Land varð óður og uppvægur, en við þessu máttum
+við ekki gera. Við fórum þvert yfir Atlantshafið á skömmum tíma. Fengum
+við landsýn af Írlandi og Englandi og stefndum inn í Ermarsund.
+
+Við flutum í yfirborðinu hinn 1. júní. Ég var staddur í aðalsalnum; kom
+þá svo mikill hvellur, að ég þaut upp á þilfar til að grenslast eftir
+hvað um væri að vera. Ned Land og Konsæll vóru komnir þangað á undan
+mér.
+
+"Hvaða hvellur var þetta?" spurði ég.
+
+"Fallbyssuskot", svaraði Ned Land og benti á skip, í svo sem mílu
+fjarlægð, sem stefndi á okkur.
+
+"Þetta er herskip, það þori ég að veðja um", sagði Ned Land.
+
+"Það vildi ég að hamingjan gæfi að það kæmi og gæti skotið í kaf þennan
+bölvaðan Sæfara".
+
+"Hverrar þjóðar er skipið?" spurði ég.
+
+Ned Land hleypti brúnum og hvesti sjónina af fremsta megni. "Ég get ekki
+sagt um það, það hefir ekki uppi fána. En eftir reiðanum að dæma er
+þetta herskip".
+
+Við stóðum í stundarfjórðung og athuguðum skipið. Það færðist nær smátt
+og smátt. En ekki var unt að segja með vissu, hvort það hafði tekið
+eftir Sæfaranum; því síður hvort menn þar höfðu rétta hugmynd um eðli
+hans.
+
+Eftir nokkra stund fullyrti Ned Land, að þetta væri bryndreki með
+vígtrjónu og þrennum þilförum. Þykkan kolamökk lagði upp um reykháfinn.
+Ekki dró það fána á stöng og ekki var unt að sjá litina í toppveifunni.
+
+"Komi það einum mílufjórðungi nær, þá steypi ég mér í sjóinn", sagði Ned
+Land. "Ég ræð ykkur til að fylgja mér eftir".
+
+Ég ætlaði að svara þessu, en þá gaus hvítur reykjarmökkur út úr
+framstafni skipsins og þungur hlutur skall á sjónum skamt fyrir aftan
+Sæfarann, svo gusurnar gengu hátt í loft upp. Rétt á eftir heyrðist
+snarpur hvellur.
+
+"Þeir skjóta á okkur!" kallaði ég.
+
+"Þetta eru menn að mínu skapi", sagði Ned Land.
+
+"Með leyfi húsbóndans . . . . . . já já", sagði Konsæll og hristi af sér
+sjóinn, sem ný kúla jós yfir hann. "Ég ætlaði að fara að segja, að nú
+þættust þeir vera að skjóta á náhvelið alræmda".
+
+"Þeim ætti að vera vorkunnarlaust að sjá okkur", sagði ég.
+
+"Það hafa þeir gert að líkindum", svaraði Ned Land.
+
+Mér flaug nýtt í hug. Nú var að líkindum orðið lýðum kunnugt, hvers
+eðlis þetta náhveli var. Eftir viðureignina við "Abraham Línkoln" hafði
+Farragút komist að raun um, að þetta var neðansjávarskip, miklu
+hættulegra en nokkurt yfirnáttúrlegt sjóskrímsl og nú vóru skip á sveimi
+um öll höf, til að reyna að eyðileggja þessa morðvél.
+
+Og Sæfarinn var sannkölluð morðvél, þegar Númi beitti honum í hefnda
+skyni, og var full ástæða til að halda, að hann gerði það. Það hafði
+hann gert í Indlandshafinu kvöldið góða, þegar við vórum lokaðir inni í
+klefanum. Af þeirri ástæðu hafði hásetinn sem særðist á höfðinu, látið
+lífið. Að minsta kosti mæltu allar líkur með því. Það var deginum
+ljósara að á þessu skipi, sem nú var í nánd, átti Númi ramma óvini, sem
+ekki hlífðu okkur og sem Númi mundi við engu hlífa.
+
+Skothríðin jókst ákaft; en kúlurnar lentu í sjónum og hittu ekki
+Sæfarann. Okkur furðaði á því að Númi kom ekki upp. Var þó skothriðin
+orðin allhættuleg Sæfaranum, því herskipið var komið mjög nærri okkur.
+
+"Við verðum eitthvað til bragðs að taka", sagði Ned Land. "Ég geri
+vísbendingu. Ættu þeir þá að geta skilið, að hér er við heiðursmenn að
+eiga".
+
+Ned Land tók upp vasaklút og ætlaði að veifa honum. En í sama vetfangi
+var honum slengt flötum á þilfarið, af afli miklu.
+
+"Afhrakið yðar!" þrumaði skipstjórinn. "Þér eigið skilið að ég bindi
+yður framan á stafnfleyginn, áður en ég kaffæri þetta skip".
+
+Á sama augnabliki skall kúla á þilfarinu, en hrökk af járninu langt út í
+sjó. Skipstjórinn ypti öxlum.
+
+"Það er ykkur sjálfum verst", heyrði ég hann segja.
+
+Svo vék hann sér að okkur og sagði:
+
+"Viðureignin er hafin, herrar mínir. Farið þið niður!"
+
+"Ætlið þér að greiða atlögu?" spurði ég.
+
+Númi kinkaði kolli til samþykkis.
+
+"Gerið það ekki", sagði ég í bænarrómi.
+
+"Fyrir tilviljun hafið þér orðið margs vísari", sagði hann. "Farið þér
+niður".
+
+Við áttum ekki annars úrkosti en hlýða skipstjóranum. Áður en ég fór
+niður sá ég nokkra skipverja skipa sér um Núma og horfðu þeir á skipið
+með reiðulegum svip og látbragði; en kúlurnar dundu á Sæfaranum og
+umhverfis hann.
+
+Þegar ég var kominn niður í klefann minn fór Sæfarinn af stað og skreið
+út úr skotmáli. En það fór eins og mig grunaði, að herskipið elti hann.
+Þegar klukkan var orðin fjögur um daginn eirði ég ekki kyrsetunni
+lengur. Ég fór út í miðskipsganginn. Hlerarnir vóru opnir og ég hætti
+mér upp á þilfar. Númi var að ganga um gólf á þilfarinu og gaf gætur að
+herskipinu annað veifið. Það var nú í einnar mílu fjarlægð og leit út
+fyrir að Númi væri á báðum áttum, hvort hann ætti að granda því eða
+ekki. Ég gerði enn eina tilraun til að miðla málum. En ekki var ég fyr
+búinn að opna munninn en Númi kom rakleitt til mín og staðnæmdist fyrir
+framan mig. Svipur hans var svo breyttur, sem væri hann orðinn ári eldri
+en að morgni þessa dags. Hatur og heift skein úr augum hans, þegar hann
+tók til máls.
+
+"Rétturinn er á mína hlið. Þarna er kúgarinn, hann sem hefir svift mig
+öllu sem ég elskaði: Föðurlandi og frændum, konu og börnum. Ég hata
+hann!"
+
+Ég leit í síðasta sinn til herskipsins feiga, sem sótti nú svo ákaft
+eftir Sæfaranum, og fór svo niður til félaga minna.
+
+"Við skulum flýja héðan!" sagði ég.
+
+"Hvaða skip er þetta?" spurði Ned Land.
+
+"Ég veit það ekki. En hitt er víst, að það verður sokkið niður á
+mararbotn áður þessi dagur er allur. Og af tvennu illu er betra að
+farast með því, en taka hér þátt í hryðjuverki, sem við vitum ekki
+hversu réttmætt er".
+
+"Ég er á sama máli", sagði Ned Land. "En við verðum víst að bíða með það
+til næturinnar".
+
+Leið svo af dagurinn og nóttin færðist yfir. Alt var með kyrð og spekt á
+Sæfaranum. Hann hélt áfram með jöfnum hraða, alt af í sömu átt, og
+ruggaði þægilega í öldufallinu.
+
+Við ráðgerðum að flýja þegar herskipið væri komið svo nærri, að við
+gætum látið heyra eða sjá til okkar. Tungl var í fyllingu og glaðbjart
+úti. Gerði það okkur hægra fyrir að flýja. Lítil líkindi vóru til þess,
+að við gætum varið herskipið fyrir áhlaupi Sæfarans, þó við kæmumst út
+á það. En við ætluðum að gera alt sem í okkar valdi stóð, til að koma í
+veg fyrir manntjón. Hvað eftir annað héldum við að stundin væri komin.
+Sæfarinn lét herskipið komast mjög nærri, en fór þá jafnan undan aftur.
+
+Liðu svo nokkrar klukkustundir af nóttinni, að ekkert bar til tíðinda.
+Við biðum albúnir að grípa hvert tækifæri, sem byðist. Ned Land ætlaði
+að fleygja sér í sjóinn, en ég fékk hann ofan af því. Ég gerði ráð
+fyrir, að Sæfarinn yrði ofansjávar, þegar hann réði á herskipið og þá
+mundi okkur helzt verða undankomu auðið.
+
+Klukkan þrjú um nóttina fór ég upp á þilfar. Númi stóð þar enn og horfði
+stöðugt á herskipið.
+
+Kyrð og friður hvíldi yfir náttúrunni. Himininn var heiður og hafið
+spegilslétt. Herskipið fór eftir ljósinu á Sæfaranum og var nú tæp hálf
+míla á milli skipanna. Ég sá ljóskerið á frammastrinu og
+hliðarljósin,--grænt og rautt. Á herskipinu var kynt svo ákaft undir
+kötlunum, að eldbjarma lagði upp um reykháfinn og brá birtu á reiðann.
+Fylgdi því ákaflega þykkur reykur og neistaflug.
+
+Ég stóð á þilfarinu þangað til klukkan fimm um morguninn. Skipið
+nálgaðist óðum. Hóf það skothríðina á ný, þegar fór að birta af degi.
+
+Næstráðandi kom nú upp á þilfar og nokkrir menn með honum. Tóku þeir upp
+handriðið, sem var utan með þilfarinu. Turninum sem ljóskerið var í, var
+hleypt niður í skipið. Sömuleiðis þeim, sem var yfir stýrishjólinu og
+byrgt yfir opin vandlega. Var þá skipið orðið alveg ójöfnulaust að utan.
+Ég fór niður í aðalsalinn. Það var farið að birta. Morgunroðinn brotnaði
+í bárugjálpinu og sendi öðru hvoru rauðann bjarma inn um gluggann til
+okkar. Þetta var 2. júní,--dagur sem mér líður aldrei úr minni. Sæfarinn
+hægði skriðinn. Þóttist ég nú vita að stundin væri komin. Skothríðin
+jókst ákaft. Kúlurnar ristu sjóinn svo hvein við.
+
+"Nú skulum við leggja af stað!" sagði ég.
+
+Við gengum gegnum bókasafnsklefann og út í ganginn; en þegar við komum
+að stiganum var hlerunum skelt aftur. Ned Land ætlaði að ryðjast á
+hlerann og hrynda honum upp, en ég aftraði honum frá því. Ég heyrði hvin
+neðan úr skipinu, sem ég kannaðist vel við. Það var verið að fylla
+sökkviklefana, og Sæfarinn seig nokkra metra niður í sjóinn. Við urðum
+of seinir fyrir! Sæfarinn fór í kaf til þess að leggja að skipinu sem
+næst kjölnum, því þar var það ekki brynvarið. Við vórum inniluktir að
+nýju, og neyddir til að vera sjónarvottar að þeim ægilega hildarleik,
+sem nú var fyrir hendi. Ég skundaði inn í klefann minn aftur. Ég varð
+alveg utan við mig,--vissi ekki í þennan heim né annan um stund og hefði
+víst hvorki heyrt né skilið, þó annarhvor félaga minna hefði talað til
+mín. Sæfarinn herti skriðinn. Hugsanir mínar og eftirtekt beindust allar
+að því, að athuga hreyfingar skipsins og atferli. Sæfarinn nötraði fyrir
+átökum válarinnar og ég bjóst við árekstri þá og þegar. Aldrei hefi ég
+lifað jafn kvíðvænlega og hryllilega stund eins og þessa.
+
+Ég rak upp hljóð, ósjálfrátt! Ég varð var við kipp, tiltölulega hægan
+þó. Ég heyrði að stáltrjóna Sæfarans murði í sundur tré og járn og hvað
+sem fyrir varð. Sæfarinn gekk í gegnum skipið, eins og saumnál í gegn um
+klæði. Ég spratt upp í otboði og þaut inn í aðalsalinn. Númi var þar
+fyrir. Í sömu andránni var hlerunum skotið frá gluggunum og ljósin slökt
+í salnum. Mér varð ósjálfrátt litið út um gluggann. Ég sá eitthvert
+dökkleitt ferlíki vera að sökkva, svo sem tíu metra frá Sæfaranum. Á því
+var stór glompa, sem sjórinn beljaði inn um með miklum hávaða. Svo komu
+raðir af súðgluggum og fallbyssuopum og síðast blasti við þilfarið
+alskipað lifandi verum, sem börðust við dauðann. Gagntekinn af skelfingu
+skundaði ég aftur inn í herbergi mitt.
+
+
+
+
+XII.
+
+
+Það var dimt og þögult á Sæfaranum fyrst í stað eftir þetta. Ferðinni
+var haldið áfram. En hvort var haldið í suður eða norður? Ég vissi það
+ekki og hirti ekki um að vita það. Mig hrylti við Núma skipstjóra.
+Hversu mikinn órétt sem hann hafði orðið að þola af öðrum mönnum, þá var
+rangt af honum að hefna sín á þennan hátt. Enda þótt ég ætti engan þátt
+í þessu verki, hafði ég þó verið sjónarvottur að því, sem gerðist og það
+var meir en nóg. Ljósi var brugðið upp aftur í skipinu, þegar liðið var
+nær hádegi. Reyndi ég þá að hressa mig upp og fór því inn í salinn. Þar
+var mannlaust. Ég leit á mælingaverkfærin. Sæfarinn stýrði í norður, með
+7 sæmílna hraða á klukkustundinni, og var ýmist upp við yfirborð, eða í
+10 metra dýpi. Við vórum komnir út úr Ermarsundi og fórum norður með
+Írlandsströndum. Mér kom ekki dúr á auga næstu nótt. Ég lagðist fyrir að
+vísu, en endurminningar nýafstaðinna viðburða vóru mér svo ríkar í hug,
+að ég varð andvaka. Sæfarinn hélt í hægðum sínum norður Atlantshafið
+næstu daga á eftir. Niðdimm þoka var yfir hve nær sem við litum til
+veðurs. Var nú ferðinni heitið til Norðurskautsins? Eða til Spitzbergen?
+Eða til Nowaja Semlja? Það var ekki á að ætla. Tíminn leið, en ég
+fylgdist ekki með í tímatalinu. Ég var hættur að hafa hugmynd um, hvort
+heldur var kvöld eða morgun, nótt eða dagur. Mér fanst eitthvað ógeðfelt
+við alt, sem í kringum mig var. Ég var hneptur undir yfirráð og
+hugsunarhátt óskyldrar, hálfsiðaðrar þjóðar, sem ég gat ekki haft
+samneyti við í hugsun eða athöfnum. Ég veit ekki með vissu hve langan
+tíma þessi ferð hefir tekið; líklega hálfan mánuð eða þrjár vikur. Það
+er ekki unt að segja hvar þetta hefði lent, hefði ekki komið fyrir
+óvæntur atburður, sem batt á þetta endahnútinn. Núma skipstjóra sá ég
+ekki allan þennan tíma; ekki heldur næstráðanda né neinn af skipverjum.
+Við vorum allajafnan í kafi. Þegar við komum upp úr til þess að skifta
+um loft, vóru hlerarnir opnaðir með vélaútbúnaði. Ekki vissi ég heldur
+hvar við vórum staddir, því leiðin var ekki mörkuð á kortið. Ned Land
+var orðinn svo úrvinda af leiðindum, að ekki var hægt að fá út úr honum
+orð. Jafnvel Konsæll fór ekki varhluta af ógleði þeirri, sem á okkur
+hvíldi. Við félagarnir vórum hættir að hafa afskifti hver af öðrum. Við
+sátum hver í sínu horni fullir örvæntingar. Þetta gat ekki gengið svona
+til lengdar. Eina nótt svaf ég fram á morgun,--ég veit ekki hvaða dag
+það var. Þegar ég vaknaði stóð Ned Land við hvílustokkinn og laut yfir
+mig.
+
+"Nú verðum við að flýja", hvíslaði hann.
+
+"Hve nær?" spurði ég og þaut upp í rúminu.
+
+"Í nótt, þeir eru hættir að hafa gætur á okkur. Eruð þér tilbúinn?".
+
+"Já; hvar erum við staddir?"
+
+"Það sér til lands,--ég tók eftir því áðan,--í svo sem tveggja mílna
+fjarlægð á bakborða".
+
+"Hvaða land ætli það sé?"
+
+"Það veit ég ekki, enda skiftir það engu. Héðan verðum við að komast".
+
+"Já".
+
+"Það er úfinn sjór og talsverður stormur", sagði Ned Land. "En þó
+slarkfært. Ég hefi laumað nokkrum vistum upp í bátinn og fáeinum
+vatnsflöskum".
+
+"Það er ágætt".
+
+Ned Land gekk út að svo mæltu. Þegar ég var kominn í fötin fór ég upp á
+þilfar. Skipið ruggaði svo ákaft, að ég átti fult í fangi með að
+standa. Hvassviðri var á og ljótt útlit í lofti. Ég grilti land gegnum
+þokubræluna. Nú urðum við að láta til skarar skríða; það mátti ekki
+dragast lengur. Mér var farið að leiðast og líða illa á Sæfaranum og
+vildi öllu til hætta, að komast á burt sem fyrst. Ég fór aftur niður í
+salinn. Mig hálf-langaði að sjá Núma skipstjóra einu sinni enn og kveið
+þó fyrir því í aðra röndina. Hvað átti ég að segja við hann? Gat ég
+dulið skap mitt fyrir honum? Nei, það var hyggilegra að finna hann
+ekki,--reyna að gleyma honum. Mér fanst dagurinn--að líkindum sá
+síðasti, sem ég átti eftir að lifa á Sæfaranum,--vera hræðilega lengi að
+líða. Ég var einn allan daginn, því félagar mínir vöruðust að koma inn
+til mín, til þess að vekja ekki grun um áform okkar. Miðdegisverð
+borðaði ég ekki fyr en kl. 6 og var þá svo lystarlaus, að ég varð að
+neyða ofan í mig nokkrum munnbitum, til þess að halda kröftum. Klukkan
+hálf sjö kom Ned Land inn til mín.
+
+"Við sjáumst ekki aftur fyrir flóttann", sagði hann. "Tunglið verður
+ekki komið upp kl. 10; við verðum að láta myrkrið skýla okkur. Þá skuluð
+þér koma upp í bátinn. Við bíðum yðar þar".
+
+Ned Land fór út, en ég gekk inn í salinn, til þess að athuga
+mælingaáhöldin. Við vórum á fimmtíu metra dýpi og fórum með fullum hraða
+í norður-landnorður. Ég rendi augunum yfir salinn í síðasta sinn og
+virti fyrir mér öll listaverkin, sem hann hafði að geyma og hin fágætu
+náttúruundur og aðrar vísindagersemar, sem ekki lá annað fyrir en týnast
+í hafinu ásamt manni þeim, sem þeim hafði safnað. Hryggur í huga snéri
+ég til dyra og fór inn í herbergið mitt. Ég hafði fataskifti og fór í
+skjólgóðan klæðnað, tók saman öll ritverk mín og stakk þeim inn á mig.
+Ég hafði ákafan hjartslátt og fann að ég mundi ekki geta dulið
+geðshræringar mínar fyrir Núma skipstjóra, ef ég hitti hann. Svo lagðist
+ég fyrir í rúmið og reyndi að sefa skap mitt. Tókst það vonum framar, en
+hugur minn hvarflaði frá einu til annars og vakti upp endurminningar frá
+veru minni á skipinu, um ýmsa atburði illa og góða, sem þar höfðu komið
+fyrir. Mér fór smátt og smátt að finnast meira um Núma skipstjóra. Hann
+var þó indverskur þjóðhöfðingi, hvað sem öðru leið. Enda þótt það í
+sjálfu sér væri engin afsökun, gat það þó meðfram verið orsök þess, að
+hann beitti valdi sínu svona, til að koma fram miskunnarlausum hefndum.
+Hin djúpsæja og víðtæka speki hans, þrek og hugrekki, hófu hann í áliti
+mínu hátt upp yfir aðra almenna indverjahöfðingja, yfir þjóð hans alla,
+jafnvel yfir alt mannkynið. Hann var yfirmenskur afburðasnillingur.
+
+Klukkan sló hálf tíu.--Ég fann til þyngsla í höfðinu og tók um það báðum
+höndum, lét aftur augun og reyndi að beina hugsuninni að einhverju
+lítilvægu efni. Nú var að eins hálftími eftir--hálftími, sem ætlaði að
+firra mig vitinu. Á þessu augnabliki bárust forte-píanóhljómar að eyrum
+mér innan úr salnum. Það vóru stórfeldir samhljómar innan um hrærigraut
+af lónum, sem skáru hver annan. Svo jafnaðist lagið smátt og smátt og
+leið eins og hægur draumur. Það var eins og í því lægi sárasta sorg, sem
+í brjósti getur búið, eins og hyldýpi harma og hugarangurs, og dó svo út
+hægt og blíðlega í viðkvæmu, sármjúku samræmi. Svo kom hressandi lag,
+stuttur, magnþrunginn hergönguslagur. Það var sem hnífi væri stungið í
+brjóstið á mér, Númi skipstjóri var í salnum! En gegnum salinn varð ég
+að fara, til þess að komast út. Ég hlaut að hitta hann og mátti búast
+við að hann tæki mig tali. Útlit mitt og jafnvel eitt einasta orð af
+vörum mínum gat komið upp um mig, og þá var öll von úti. Klukkan sló
+tíu. Ég varð að fara. Ég opnaði hurðina með mestu hægð og virtist þó
+verða af því hræðilegur hávaði. Ég læddist fram eftir ganginum og
+staðnæmdist í öðru hvoru spori til að jafna mig. Loks komst ég að
+saldyrunum og opnaði þar. Þar var myrkur inni. Skipstjóraklefinn var
+andspænis og hurðin hnigin á gátt. Lagði ljósskímu um gættina inn í
+salinn. Ég læddist á tánum gegnum salinn og gægðist inn í klefa
+skipstjórans. Gegnt dyrunum var stór mynd, að líkindum af konu hans og
+barni. Sjálfur sat hann við skrifborðið, niðursokkinn í störf sín.
+Dyrnar að bókaklefanum stóðu opnar. Þar fór ég í gegn og út í ganginn í
+áttina til bátsins. Ég skundaði upp stigann og tróð mér upp um opið í
+þilfarinu til félaga minna.
+
+"Af stað! Undir eins!" sagði Ned Land.
+
+Hlerinn var lagður yfir þilfarsopið og festur vandlega með skrúfum.
+Hleraopið í botninum á bátnum sömuleiðis. Ned Land fór að losa um
+skrúfurnar, sem tengdu bátinn við skipið. Þá heyrðist alt í einu þrusk
+mikið neðan úr skipinu, köll og mannamál. Vóru skipverjar orðnir áskynja
+um flótta okkar? Ned Land fékk mér hníf í hendina. Hann hætti að skrúfa
+um stund. Ég varð þess brátt vísari, að þessi gauragangur stóð ekki í
+sambandi við flóttatilraun okkar. Réð ég það af orði einu, sem nefnt var
+hvað eftir annað. Það var ekki úr óþektu máli, því ég skildi það vel.
+Röstin! var sagt. Mér er sem ég heyri það enn í dag. Röst--einmitt á
+þessu augnabliki, þegar við vórum að losa bálhornið okkar frá Sæfaranum.
+Við vórum komnir inn í röst, og gat það naumast annarsstaðar verið en
+við Lófótinn. Fyrir vangá--eða jafnvel af ásettu ráði--var Sæfarinn
+kominn inn í röstina. Hann fór að snúast í harðri hringiðu og færðist
+smátt og smátt inn að henni miðri. Báturinn fylgdist með--fyrst í stað.
+Skipið sveiflaðist með fleygiferð og við stóðum, á öndinni af ótta.
+
+Boðaföllin beljuðu með þrumandi hávaða.
+
+"Við verðum að vera þar sem við erum komnir", sagði Ned Land og fór að
+skrúfa á aftur rærnar, sem hann var búinn að losa. En í því kvað við hár
+brestur. Síðustu skrúfurnar hrukku sundur og báturinn þeyttist eins og
+steinn úr slöngu út í hringiðuna. Ég steyptist á höfuðið niður í bátinn
+og féll í öngvit.
+
+Ég veit ekki hverju fram fór eftir þetta, hvernig báturinn komst út úr
+röstinni og hvernig við náðum landi. En þegar ég raknaði við aftur, lá
+ég í rúmi í kofa fiskimanns eins við Lófótinn. Ned Land og Konsæll stóðu
+við hvílustokkinn. Eftir lítinn tíma var ég kominn til Parísar.
+
+
+
+
+XIII.
+
+
+Svona er nú sagan um þessa merkilegu ferð. Ætli nokkur maður leggi
+trúnað á hana? Ég get ekkert um það sagt, enda gildir mig það einu. Ég
+hefi sagt frá viðburðunum eins og ég hefi reynt þá, og hvergi hallað
+réttu máli. Og nú þekki ég hafið. Ég hefi farið á tæpum tíu mánuðum
+umhverfis hnöttinn neðansjávar og séð öll undur og stórmerki, sem falin
+eru í skauti hafsins. En hvað er orðið af Sæfaranum? Hefir hann losnað
+úr heljargreipum rastarinnar? Er Númi skipstjóri enn á lífi? Hafa ekki
+blóðfórnirnar sefað enn að fullu hefndarþorsta hans? Ætli öldurnar skoli
+ekki eitt sinn handritasafni hans á land, svo vitneskja fáist um þennan
+merkilega mann og æfiferil hans? Ég vona að svo fari. Ég vona að
+undraskipið sem gert hefir undirdjúpin að alfaravegi, hafi komist
+klaklaust út úr ægisvelg rastarinnar, sem svo mörg skip önnur hafa
+farist í. Ég vona að Númi lifi enn í þessum nýju heimkynnum sínum,
+úthöfunum, og haldi þar áfram að rannsaka "leyndardóma undirdjúpanna".
+En þá hefir enginn átt kost á að rannsaka eins vel og Númi skipstjóri og
+ég.
+
+
+
+
+
+End of the Project Gutenberg EBook of Sæfarinn, by Jules Verne
+
+*** END OF THIS PROJECT GUTENBERG EBOOK SÆFARINN ***
+
+***** This file should be named 17025-8.txt or 17025-8.zip *****
+This and all associated files of various formats will be found in:
+ https://www.gutenberg.org/1/7/0/2/17025/
+
+Produced by Jeroen Hellingman, Jóhannes Birgir Jensson and
+the Online Distributed Proofreading Team at
+https://www.pgdp.net
+
+
+Updated editions will replace the previous one--the old editions
+will be renamed.
+
+Creating the works from public domain print editions means that no
+one owns a United States copyright in these works, so the Foundation
+(and you!) can copy and distribute it in the United States without
+permission and without paying copyright royalties. Special rules,
+set forth in the General Terms of Use part of this license, apply to
+copying and distributing Project Gutenberg-tm electronic works to
+protect the PROJECT GUTENBERG-tm concept and trademark. Project
+Gutenberg is a registered trademark, and may not be used if you
+charge for the eBooks, unless you receive specific permission. If you
+do not charge anything for copies of this eBook, complying with the
+rules is very easy. You may use this eBook for nearly any purpose
+such as creation of derivative works, reports, performances and
+research. They may be modified and printed and given away--you may do
+practically ANYTHING with public domain eBooks. Redistribution is
+subject to the trademark license, especially commercial
+redistribution.
+
+
+
+*** START: FULL LICENSE ***
+
+THE FULL PROJECT GUTENBERG LICENSE
+PLEASE READ THIS BEFORE YOU DISTRIBUTE OR USE THIS WORK
+
+To protect the Project Gutenberg-tm mission of promoting the free
+distribution of electronic works, by using or distributing this work
+(or any other work associated in any way with the phrase "Project
+Gutenberg"), you agree to comply with all the terms of the Full Project
+Gutenberg-tm License (available with this file or online at
+https://gutenberg.org/license).
+
+
+Section 1. General Terms of Use and Redistributing Project Gutenberg-tm
+electronic works
+
+1.A. By reading or using any part of this Project Gutenberg-tm
+electronic work, you indicate that you have read, understand, agree to
+and accept all the terms of this license and intellectual property
+(trademark/copyright) agreement. If you do not agree to abide by all
+the terms of this agreement, you must cease using and return or destroy
+all copies of Project Gutenberg-tm electronic works in your possession.
+If you paid a fee for obtaining a copy of or access to a Project
+Gutenberg-tm electronic work and you do not agree to be bound by the
+terms of this agreement, you may obtain a refund from the person or
+entity to whom you paid the fee as set forth in paragraph 1.E.8.
+
+1.B. "Project Gutenberg" is a registered trademark. It may only be
+used on or associated in any way with an electronic work by people who
+agree to be bound by the terms of this agreement. There are a few
+things that you can do with most Project Gutenberg-tm electronic works
+even without complying with the full terms of this agreement. See
+paragraph 1.C below. There are a lot of things you can do with Project
+Gutenberg-tm electronic works if you follow the terms of this agreement
+and help preserve free future access to Project Gutenberg-tm electronic
+works. See paragraph 1.E below.
+
+1.C. The Project Gutenberg Literary Archive Foundation ("the Foundation"
+or PGLAF), owns a compilation copyright in the collection of Project
+Gutenberg-tm electronic works. Nearly all the individual works in the
+collection are in the public domain in the United States. If an
+individual work is in the public domain in the United States and you are
+located in the United States, we do not claim a right to prevent you from
+copying, distributing, performing, displaying or creating derivative
+works based on the work as long as all references to Project Gutenberg
+are removed. Of course, we hope that you will support the Project
+Gutenberg-tm mission of promoting free access to electronic works by
+freely sharing Project Gutenberg-tm works in compliance with the terms of
+this agreement for keeping the Project Gutenberg-tm name associated with
+the work. You can easily comply with the terms of this agreement by
+keeping this work in the same format with its attached full Project
+Gutenberg-tm License when you share it without charge with others.
+
+1.D. The copyright laws of the place where you are located also govern
+what you can do with this work. Copyright laws in most countries are in
+a constant state of change. If you are outside the United States, check
+the laws of your country in addition to the terms of this agreement
+before downloading, copying, displaying, performing, distributing or
+creating derivative works based on this work or any other Project
+Gutenberg-tm work. The Foundation makes no representations concerning
+the copyright status of any work in any country outside the United
+States.
+
+1.E. Unless you have removed all references to Project Gutenberg:
+
+1.E.1. The following sentence, with active links to, or other immediate
+access to, the full Project Gutenberg-tm License must appear prominently
+whenever any copy of a Project Gutenberg-tm work (any work on which the
+phrase "Project Gutenberg" appears, or with which the phrase "Project
+Gutenberg" is associated) is accessed, displayed, performed, viewed,
+copied or distributed:
+
+This eBook is for the use of anyone anywhere at no cost and with
+almost no restrictions whatsoever. You may copy it, give it away or
+re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included
+with this eBook or online at www.gutenberg.org
+
+1.E.2. If an individual Project Gutenberg-tm electronic work is derived
+from the public domain (does not contain a notice indicating that it is
+posted with permission of the copyright holder), the work can be copied
+and distributed to anyone in the United States without paying any fees
+or charges. If you are redistributing or providing access to a work
+with the phrase "Project Gutenberg" associated with or appearing on the
+work, you must comply either with the requirements of paragraphs 1.E.1
+through 1.E.7 or obtain permission for the use of the work and the
+Project Gutenberg-tm trademark as set forth in paragraphs 1.E.8 or
+1.E.9.
+
+1.E.3. If an individual Project Gutenberg-tm electronic work is posted
+with the permission of the copyright holder, your use and distribution
+must comply with both paragraphs 1.E.1 through 1.E.7 and any additional
+terms imposed by the copyright holder. Additional terms will be linked
+to the Project Gutenberg-tm License for all works posted with the
+permission of the copyright holder found at the beginning of this work.
+
+1.E.4. Do not unlink or detach or remove the full Project Gutenberg-tm
+License terms from this work, or any files containing a part of this
+work or any other work associated with Project Gutenberg-tm.
+
+1.E.5. Do not copy, display, perform, distribute or redistribute this
+electronic work, or any part of this electronic work, without
+prominently displaying the sentence set forth in paragraph 1.E.1 with
+active links or immediate access to the full terms of the Project
+Gutenberg-tm License.
+
+1.E.6. You may convert to and distribute this work in any binary,
+compressed, marked up, nonproprietary or proprietary form, including any
+word processing or hypertext form. However, if you provide access to or
+distribute copies of a Project Gutenberg-tm work in a format other than
+"Plain Vanilla ASCII" or other format used in the official version
+posted on the official Project Gutenberg-tm web site (www.gutenberg.org),
+you must, at no additional cost, fee or expense to the user, provide a
+copy, a means of exporting a copy, or a means of obtaining a copy upon
+request, of the work in its original "Plain Vanilla ASCII" or other
+form. Any alternate format must include the full Project Gutenberg-tm
+License as specified in paragraph 1.E.1.
+
+1.E.7. Do not charge a fee for access to, viewing, displaying,
+performing, copying or distributing any Project Gutenberg-tm works
+unless you comply with paragraph 1.E.8 or 1.E.9.
+
+1.E.8. You may charge a reasonable fee for copies of or providing
+access to or distributing Project Gutenberg-tm electronic works provided
+that
+
+- You pay a royalty fee of 20% of the gross profits you derive from
+ the use of Project Gutenberg-tm works calculated using the method
+ you already use to calculate your applicable taxes. The fee is
+ owed to the owner of the Project Gutenberg-tm trademark, but he
+ has agreed to donate royalties under this paragraph to the
+ Project Gutenberg Literary Archive Foundation. Royalty payments
+ must be paid within 60 days following each date on which you
+ prepare (or are legally required to prepare) your periodic tax
+ returns. Royalty payments should be clearly marked as such and
+ sent to the Project Gutenberg Literary Archive Foundation at the
+ address specified in Section 4, "Information about donations to
+ the Project Gutenberg Literary Archive Foundation."
+
+- You provide a full refund of any money paid by a user who notifies
+ you in writing (or by e-mail) within 30 days of receipt that s/he
+ does not agree to the terms of the full Project Gutenberg-tm
+ License. You must require such a user to return or
+ destroy all copies of the works possessed in a physical medium
+ and discontinue all use of and all access to other copies of
+ Project Gutenberg-tm works.
+
+- You provide, in accordance with paragraph 1.F.3, a full refund of any
+ money paid for a work or a replacement copy, if a defect in the
+ electronic work is discovered and reported to you within 90 days
+ of receipt of the work.
+
+- You comply with all other terms of this agreement for free
+ distribution of Project Gutenberg-tm works.
+
+1.E.9. If you wish to charge a fee or distribute a Project Gutenberg-tm
+electronic work or group of works on different terms than are set
+forth in this agreement, you must obtain permission in writing from
+both the Project Gutenberg Literary Archive Foundation and Michael
+Hart, the owner of the Project Gutenberg-tm trademark. Contact the
+Foundation as set forth in Section 3 below.
+
+1.F.
+
+1.F.1. Project Gutenberg volunteers and employees expend considerable
+effort to identify, do copyright research on, transcribe and proofread
+public domain works in creating the Project Gutenberg-tm
+collection. Despite these efforts, Project Gutenberg-tm electronic
+works, and the medium on which they may be stored, may contain
+"Defects," such as, but not limited to, incomplete, inaccurate or
+corrupt data, transcription errors, a copyright or other intellectual
+property infringement, a defective or damaged disk or other medium, a
+computer virus, or computer codes that damage or cannot be read by
+your equipment.
+
+1.F.2. LIMITED WARRANTY, DISCLAIMER OF DAMAGES - Except for the "Right
+of Replacement or Refund" described in paragraph 1.F.3, the Project
+Gutenberg Literary Archive Foundation, the owner of the Project
+Gutenberg-tm trademark, and any other party distributing a Project
+Gutenberg-tm electronic work under this agreement, disclaim all
+liability to you for damages, costs and expenses, including legal
+fees. YOU AGREE THAT YOU HAVE NO REMEDIES FOR NEGLIGENCE, STRICT
+LIABILITY, BREACH OF WARRANTY OR BREACH OF CONTRACT EXCEPT THOSE
+PROVIDED IN PARAGRAPH F3. YOU AGREE THAT THE FOUNDATION, THE
+TRADEMARK OWNER, AND ANY DISTRIBUTOR UNDER THIS AGREEMENT WILL NOT BE
+LIABLE TO YOU FOR ACTUAL, DIRECT, INDIRECT, CONSEQUENTIAL, PUNITIVE OR
+INCIDENTAL DAMAGES EVEN IF YOU GIVE NOTICE OF THE POSSIBILITY OF SUCH
+DAMAGE.
+
+1.F.3. LIMITED RIGHT OF REPLACEMENT OR REFUND - If you discover a
+defect in this electronic work within 90 days of receiving it, you can
+receive a refund of the money (if any) you paid for it by sending a
+written explanation to the person you received the work from. If you
+received the work on a physical medium, you must return the medium with
+your written explanation. The person or entity that provided you with
+the defective work may elect to provide a replacement copy in lieu of a
+refund. If you received the work electronically, the person or entity
+providing it to you may choose to give you a second opportunity to
+receive the work electronically in lieu of a refund. If the second copy
+is also defective, you may demand a refund in writing without further
+opportunities to fix the problem.
+
+1.F.4. Except for the limited right of replacement or refund set forth
+in paragraph 1.F.3, this work is provided to you 'AS-IS' WITH NO OTHER
+WARRANTIES OF ANY KIND, EXPRESS OR IMPLIED, INCLUDING BUT NOT LIMITED TO
+WARRANTIES OF MERCHANTIBILITY OR FITNESS FOR ANY PURPOSE.
+
+1.F.5. Some states do not allow disclaimers of certain implied
+warranties or the exclusion or limitation of certain types of damages.
+If any disclaimer or limitation set forth in this agreement violates the
+law of the state applicable to this agreement, the agreement shall be
+interpreted to make the maximum disclaimer or limitation permitted by
+the applicable state law. The invalidity or unenforceability of any
+provision of this agreement shall not void the remaining provisions.
+
+1.F.6. INDEMNITY - You agree to indemnify and hold the Foundation, the
+trademark owner, any agent or employee of the Foundation, anyone
+providing copies of Project Gutenberg-tm electronic works in accordance
+with this agreement, and any volunteers associated with the production,
+promotion and distribution of Project Gutenberg-tm electronic works,
+harmless from all liability, costs and expenses, including legal fees,
+that arise directly or indirectly from any of the following which you do
+or cause to occur: (a) distribution of this or any Project Gutenberg-tm
+work, (b) alteration, modification, or additions or deletions to any
+Project Gutenberg-tm work, and (c) any Defect you cause.
+
+
+Section 2. Information about the Mission of Project Gutenberg-tm
+
+Project Gutenberg-tm is synonymous with the free distribution of
+electronic works in formats readable by the widest variety of computers
+including obsolete, old, middle-aged and new computers. It exists
+because of the efforts of hundreds of volunteers and donations from
+people in all walks of life.
+
+Volunteers and financial support to provide volunteers with the
+assistance they need, is critical to reaching Project Gutenberg-tm's
+goals and ensuring that the Project Gutenberg-tm collection will
+remain freely available for generations to come. In 2001, the Project
+Gutenberg Literary Archive Foundation was created to provide a secure
+and permanent future for Project Gutenberg-tm and future generations.
+To learn more about the Project Gutenberg Literary Archive Foundation
+and how your efforts and donations can help, see Sections 3 and 4
+and the Foundation web page at https://www.pglaf.org.
+
+
+Section 3. Information about the Project Gutenberg Literary Archive
+Foundation
+
+The Project Gutenberg Literary Archive Foundation is a non profit
+501(c)(3) educational corporation organized under the laws of the
+state of Mississippi and granted tax exempt status by the Internal
+Revenue Service. The Foundation's EIN or federal tax identification
+number is 64-6221541. Its 501(c)(3) letter is posted at
+https://pglaf.org/fundraising. Contributions to the Project Gutenberg
+Literary Archive Foundation are tax deductible to the full extent
+permitted by U.S. federal laws and your state's laws.
+
+The Foundation's principal office is located at 4557 Melan Dr. S.
+Fairbanks, AK, 99712., but its volunteers and employees are scattered
+throughout numerous locations. Its business office is located at
+809 North 1500 West, Salt Lake City, UT 84116, (801) 596-1887, email
+business@pglaf.org. Email contact links and up to date contact
+information can be found at the Foundation's web site and official
+page at https://pglaf.org
+
+For additional contact information:
+ Dr. Gregory B. Newby
+ Chief Executive and Director
+ gbnewby@pglaf.org
+
+
+Section 4. Information about Donations to the Project Gutenberg
+Literary Archive Foundation
+
+Project Gutenberg-tm depends upon and cannot survive without wide
+spread public support and donations to carry out its mission of
+increasing the number of public domain and licensed works that can be
+freely distributed in machine readable form accessible by the widest
+array of equipment including outdated equipment. Many small donations
+($1 to $5,000) are particularly important to maintaining tax exempt
+status with the IRS.
+
+The Foundation is committed to complying with the laws regulating
+charities and charitable donations in all 50 states of the United
+States. Compliance requirements are not uniform and it takes a
+considerable effort, much paperwork and many fees to meet and keep up
+with these requirements. We do not solicit donations in locations
+where we have not received written confirmation of compliance. To
+SEND DONATIONS or determine the status of compliance for any
+particular state visit https://pglaf.org
+
+While we cannot and do not solicit contributions from states where we
+have not met the solicitation requirements, we know of no prohibition
+against accepting unsolicited donations from donors in such states who
+approach us with offers to donate.
+
+International donations are gratefully accepted, but we cannot make
+any statements concerning tax treatment of donations received from
+outside the United States. U.S. laws alone swamp our small staff.
+
+Please check the Project Gutenberg Web pages for current donation
+methods and addresses. Donations are accepted in a number of other
+ways including including checks, online payments and credit card
+donations. To donate, please visit: https://pglaf.org/donate
+
+
+Section 5. General Information About Project Gutenberg-tm electronic
+works.
+
+Professor Michael S. Hart was the originator of the Project Gutenberg-tm
+concept of a library of electronic works that could be freely shared
+with anyone. For thirty years, he produced and distributed Project
+Gutenberg-tm eBooks with only a loose network of volunteer support.
+
+
+Project Gutenberg-tm eBooks are often created from several printed
+editions, all of which are confirmed as Public Domain in the U.S.
+unless a copyright notice is included. Thus, we do not necessarily
+keep eBooks in compliance with any particular paper edition.
+
+
+Most people start at our Web site which has the main PG search facility:
+
+ https://www.gutenberg.org
+
+This Web site includes information about Project Gutenberg-tm,
+including how to make donations to the Project Gutenberg Literary
+Archive Foundation, how to help produce our new eBooks, and how to
+subscribe to our email newsletter to hear about new eBooks.