summaryrefslogtreecommitdiff
path: root/16846-8.txt
diff options
context:
space:
mode:
Diffstat (limited to '16846-8.txt')
-rw-r--r--16846-8.txt860
1 files changed, 860 insertions, 0 deletions
diff --git a/16846-8.txt b/16846-8.txt
new file mode 100644
index 0000000..48a44f6
--- /dev/null
+++ b/16846-8.txt
@@ -0,0 +1,860 @@
+The Project Gutenberg EBook of Mjallhvít, by Anonymous
+
+This eBook is for the use of anyone anywhere at no cost and with
+almost no restrictions whatsoever. You may copy it, give it away or
+re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included
+with this eBook or online at www.gutenberg.org
+
+
+Title: Mjallhvít
+ Æfintýri handa börnum
+
+Author: Anonymous
+
+Translator: M. Grímsson
+
+Release Date: October 10, 2005 [EBook #16846]
+
+Language: Icelandic
+
+Character set encoding: ISO-8859-1
+
+*** START OF THIS PROJECT GUTENBERG EBOOK MJALLHVÍT ***
+
+
+
+
+Produced by Jóhannes Birgir Jensson and the Project
+Gutenberg Online Distributed Proofreading Team
+
+
+
+
+
+
+MJALLHVÍT.
+
+
+ÆFINTÝRI HANDA BÖRNUM,
+
+MEÐ 17 MYNDUM.
+
+
+[Illustration]
+
+
+M. GRÍMSSON
+
+hefur íslenzkað.
+
+
+KAUPMANNAHÖFN.
+
+Á kostnað E. Jónssonar.--Prentað hjá Louis Klein.
+1852.
+
+ * * * * *
+
+Það var einu sinni um hávetur í ákafri snjókomu, að drottning nokkur sat
+við gluggann í höllinni sinni, og var að sauma. En gluggagrindin var úr
+hrafnsvörtu "íbenholti"[1]. Henni varð þá litið út um gluggann á
+mjöllina, sem hlóðst niður í gluggatóptina, og sem var svo drifthvít að
+það var undur. Hún stakk sig þá á nálinni í fingurinn, svo að það hrutu
+niður fá-einir blóðdropar á gluggakistuna. En þegar hún sá, hversu hið
+rauða var fagurt hjá drifthvítri mjöllinni, þá hugsaði hún með sjálfri
+sjer: "Það vildi jeg að jeg ætti mjer svo lítið barn, eins hvítt og
+mjöll, eins rautt og blóð, og eins svart og gluggagrindin sú arna."
+
+[Footnote 1: Eins konar trje.]
+
+[Illustration]
+
+Skömmu síðar eignaðist drottningin ofur-litla dóttur, sem var eins
+hörundsbjört og mjöll, eins fagurrjóð og blóð, og eins hrafnsvört á hár
+eins og "íbenholt". Af þessu var hún kölluð _Mjallhvít_. En stuttu
+eptir fæðingu hennar andaðist drottningin, móðir hennar.
+
+Árið eptir tók konungurinn sjer aðra drottningu. Það var dáindis fríð
+kona, en ákaflega drambsöm. Hún gat ekki vitað það, að neinn kvennmaður
+væri sjer fríðari.
+
+Þessi nýja drottning átti sjer fáránlegan spegil, sem hún var vön að
+skoða sig í, og segja:
+
+[Illustration]
+
+
+ "Spegill, spegill, herm þú: hver
+ hjer á landi fríðust er!"
+
+
+Og af því að hún vissi, að spegillinn fór aldrei með ósannindi, þá
+var hún ánægð, þegar hann sagði:
+
+
+ "Frú mín, drottning, fegri þjer
+ finnst ei nein á landi hjer!"
+
+
+En Mjallhvít konungsdóttir óx upp og varð einatt fríðari, og þegar hún
+var orðin 7 ára gömul, þá bar hún af öllum konum, og var miklu fríðari
+en drottningin, stjúpa hennar. Þá var það einu sinni sem optar, að
+drottningin gekk að speglinum og mælti:
+
+
+ "Spegill, spegill, herm þú: hver
+ hjer á landi fríðust er!"
+
+
+Þá svaraði spegillinn, og sagði:
+
+
+ "Frú mín, drottning, fríð sem engill þú er,
+ en af þjer samt hún Mjallhvít í fríðleika ber!"
+
+
+Þegar drottning heyrði þetta, þá varð henni bilt mjög við, og fölnaði
+upp af öfund og reiði. Upp frá þeirri stundu gat hún aldrei litið
+Mjallhvít rjettu auga; svo var henni illa við barnið. Öfund og drambsemi
+lögðust nú svo þungt á hina vondu konu, að hún ætlaði að sálast, og
+hafði engan stundlegan frið, hvorki dag nje nótt. Hún kallaði þá loks
+fyrir sig einn af veiðimönnum konungs og sagði: "Far þú með hana
+Mjallhvít litlu langt út á skóg; því jeg get ekki horft á hana framar.
+Þar skalt þú drepa hana, og færa mjer úr henni lifur og lungu til merkis
+um, að þú hafir gjört eins og jeg sagði þjer."
+
+[Illustration]
+
+Veiðimaðurinn fór þá á stað með Mjallhvít, og þegar hann kom út á
+skóginn, dróg hann sverð sitt úr sliðrum, og ætlaði að reka hana í gegn
+með því. Hún fjell þá á knje fyrir honum, spennti greipar, leit á hann,
+biðjandi vonaraugum og sagði: "Æ, góði vin, gef þú mjer líf; jeg skal þá
+hlaupa út á skóg og aldrei koma heim aptur í ríkið." Veiðimaðurinn komst
+þá við, kenndi í brjósti um hana og sagði: "Hlauptu þá undir eins burtu
+hjeðan, vesalingur!" Villudýrin verða ekki lengi að rífa hana í sig,
+hugsaði hann, og þó fannst honum, eins og að það væri velt steini frá
+hjartanu á sjer, að þurfa ekki að drepa hana sjálfur.
+
+Í sama bili kom þar að ungur villigöltur hlaupandi, sem veiðimaðurinn
+drap. Hann tók úr honum lifrina og lungun og færði drottningu þau til
+sannindamerkis um það, hversu vel hann hefði framkvæmt boð hennar.
+
+[Illustration]
+
+Eldamaður drottningar varð nú þegar að matreiða lifrina og lungun, og
+hin vonda drottning borðaði þau í þeirri trú, að það væri lifur og lungu
+Mjallhvítar. Hún var svo viss um þetta, að hún hirti alls ekki um að
+leita frjetta hjá töfraspeglinum sínum; því hún þóttist viss um, að nú
+væri hún fríðasta konan á landinu. Veiðimanninum gaf hún ærna peninga
+fyrir handarvikið, og til þess að þegja yfir ódæðisverkinu.
+
+En nú er að segja frá Mjallhvít, þar sem hún var alein úti á skóginum.
+Hjarta hennar var fullt af angist og kvíða; því hún sá sjer engrar
+bjargar von, vesalingur. Hún fór þá að hlaupa, og hljóp í dauðans ofboði
+yfir hvað sem fyrir varð, eggjagrjót og urðir. Villudýrin hlupu fram hjá
+henni og allt í kring um hana, en gjörðu henni ekkert mein. Hún hljóp
+sem fætur toguðu þangað til um kveldið; þá sá hún ofurlítið hús, og inn
+í það fór hún til þess að hvíla sig.
+
+Inni í húsinu var allt lítið, en svo snoturt og þrifalegt, að það var
+hin mesta snilld. Þar stóð borð með drifthvítum dúki á og sjö diskum.
+Við hvern disk lá ofur-lítill spónn, hnífur og gaffall, og sitt
+vínstaupið stóð hjá hverjum þeirra. Við vegginn stóðu sjö dálítil rúm,
+hvert við hliðina á öðru, og voru sængurklæðin öll saman mjallhvít.
+
+[Illustration]
+
+Af því að Mjallhvít var nú orðin bæði þyrst og svöng, þá borðaði hún
+sinn munnbitann af hverjum diski, og drakk sinn dropann úr hverju
+staupi; því hún vildi ekki taka allt frá neinum einum. Þegar hún var
+búin að þessu, lagði hún sig upp í það rúmið, sem næst henni stóð, og
+ætlaði að hvíla sig; því hún var ákaflega göngumóð og lúin. En rúmið var
+henni ekki mátulegt, svo hún reyndi hið næsta, og fór það eins. Síðan
+reyndi hún hvert að öðru, og loksins var hið sjöunda rúmið mátulega
+stórt fyrir hana. Hún lagðist þá niður í það, las kveldbænirnar sínar og
+sofnaði.
+
+Þegar dimmt var orðið komu þeir heim, sem húsið áttu, en það voru sjö
+dvergar, sem lifðu af því, að grafa upp úr fjöllunum gull og silfur.
+
+Dvergarnir kveiktu sjö ofur-lítil ljós, og þegar birti í húsinu, sáu
+þeir undir eins, að þar hafði einhver komið ókunnugur; því þar var ekki
+allt í þeirri röð og reglu, sem þeir áttu von á. Hinn fyrsti sagði:
+"Hver hefur sezt á stólinn minn?" Hinn annar: "Hver hefur borðað af
+diskinum mínum?" Hinn þriðji: "Hver hefur bitið í brauðið mitt?" Hinn
+fjórði: "Hver hefur smakkað á suflinu mínu?" Hinn fimmti: "Hver hefur
+farið með gaffalinn minn?" Hinn sjötti: "Hver hefur skorið með hnífnum
+mínum?" Hinn sjöundi: "Hver hefur sopið á staupinu mínu?"
+
+Þá leit hinn fyrsti við, og sá að rúmið sitt var bælt. "Hver hefur lagzt
+í rúmið mitt?" segir hann. Þá spruttu upp allir dvergarnir, og litu hver
+á sitt rúm og sögðu hver fyrir sig: "Sko, einhver hefur farið upp í mitt
+rúm og bælt það niður!" En þegar hinn sjöundi gætti í sitt rúm, sá hann
+Mjallhvít liggja þar og sofa. Hann kallaði þá á lagsmenn sína, og er
+þeir sáu hvað um var að vera, þá hljóðuðu þeir upp yfir sig af undran og
+gleði. Þeir komu með öll sjö litlu ljósin, og skoðuðu Mjallhvít í krók
+og í kring. "Nei, nei,"--sögðu þeir--"en hvað það er fallegt barnið að
+tarna!" Og litlu dvergarnir hoppuðu upp af gleði, en vöruðust þó að
+vekja Mjallhvít, og ljetu hana sofa í næði í litla rúminu. Hinn sjöundi
+dvergur svaf um nóttina hjá lagsmönnum sínum, eina stund hjá hverjum--og
+þá var nóttin á enda.
+
+Þegar Mjallhvít vaknaði morguninn eptir, þá varð henni kynlega við,
+þegar hún sá alla sjö litlu dvergana. En þeir voru ósköp góðir við hana
+og sögðu: "Hvað heitir þú?"--"Jeg heiti Mjallhvít."--Þá spurðu
+dvergarnir hana að, hvernig hún hefði þangað komizt, en Mjallhvít sagði
+þeim allt eins og var, um vondu stjúpuna, og veiðimanninn, sem gaf henni
+lífið. Hún sagði þeim frá því, hvað hún hefði hlaupið langan, langan
+veg, þangað til að hún hefði á endanum fundið húsið.
+
+Þá sögðu dvergarnir: "Ef þú vilt verða bústýran okkar, búa um rúmin
+okkar, sauma, þvo og prjóna, og halda öllu hreinu og fáguðu, sem í
+húsinu er, þá mátt þú vera hjá okkur, og þig skal ekki bresta neitt."
+
+Mjallhvít gekk að þessum kostum, og tók undir eins til starfa.
+Dvergarnir fóru á hverjum morgni í bítið út í fjöllin að grafa upp gull
+og silfur. En þegar þeir komu heim á kveldin, þá varð allt að vera í
+sinni rjettu röð og reglu heima fyrir. Á daginn var Mjallhvít jafnan ein
+heima. Þess vegna sögðu dvergarnir við hana: "Varaðu þig á henni stjúpu
+þinni; hún kemst bráðum að hvar þú ert; þú mátt þess vegna aldrei
+nokkurn tíma hleypa neinum manni inn fyrir dyrnar, þegar þú ert alein
+heima."
+
+Nú víkur sögunni heim aptur í konungsríkið, þar sem hin vonda drottning
+þóttist hafa borðað lifur og lungu Mjallhvítar. Henni kom ekki annað í
+hug, en að nú væri hún þó lang-fríðust allra kvenna á landinu, svo það
+var í gleði sinni að hún gekk einu sinni til spegilsins, og sagði:
+
+[Illustration]
+
+
+ "Spegill, spegill, herm þú: hver
+ hjer á landi fríðust er!"
+
+
+Þá svaraði spegillinn:
+
+
+ "Frú mín, drottning, fríðust ert þú,
+ fríðari öllum, sem hjer eru nú;
+ en Mjallhvít, sem fór yfir fjöllin þau sjö,
+ og fæðist nú upp hjá þeim dvergunum sjö,
+ er þúsund-falt fríðari en þú!"
+
+
+Við þessa óvæntu fregn brá drottningu heldur en ekki í brún; því hún sá
+nú, að veiðimaðurinn hafði prettað sig, og að Mjallhvít var enn á lífi.
+Og þegar hún vissi nú, hvar hún var niður komin, þá hugsaði hún ekki um
+neitt annað en það, hvernig hún fengi ráðið hana af dögum; því nú hafði
+hún engan frið í sínum beinum fyrir öfund og reiði yfir því, að hún var
+ekki fríðust allra á landinu. En til þess að áformið mistækist nú ekki,
+rjeði hún af, að vinna að því með eigin hendi. Þetta var samt enginn
+hægðarleikur; því nú mátti enginn maður vita af. Eptir langa umhugsan
+rjeði drottning það af á endanum að lita sig í framan, afmynda sig, og
+taka á sig gerfi gamallar sölukerlingar. Í þessum ham var engum lifandi
+manni unnt að þekkja hana, og svona kom hún til dvergabæjarins.
+Mjallhvít var þá ein heima, þegar kerling barði að dyrum, og sagði:
+
+[Illustration]
+
+"Góðan varning! gott verð!" Mjallhvít lauk upp glugganum, leit út og
+sagði: "Sæl og blessuð, kona góð! Hvað hafið þjer á boðstólum?"--"Góðan
+varning, fallegan varning!" segir kerling. "Jeg hef allavega lit
+mittisbönd." Síðan tók hún upp grænt silkiband og sýndi henni. Þá
+hugsaði Mjallhvít með sjálfri sjer: "Þessari konu má jeg án efa lofa
+inn; hún er ráðvönd og siðsöm, og hefur ekkert íllt í huga." Hún lauk þá
+upp bæjardyrunum og keypti græna silkibandið.--"Bíddu við, barnið
+gott!"--segir kerlingin--"hvernig fer mittisbandið á þjer. Komdu, jeg
+skal láta það á þig, eins og það á að vera."--Mjallhvít fór þá í
+grannleysi til hennar og ljet hana binda um sig nýja bandinu fallega. En
+kerling var þá eigi handsein og reyrði svo fast að Mjallhvít, að hún
+náði ekki andanum, og datt eins og dauð niður. "Nú er fríðleikinn þinn
+farinn", sagði kerling, og skundaði heim til sín. Skömmu eptir komu
+dvergarnir heim, og urðu þá hræddir mjög, er þeir fundu sína ástkæru
+Mjallhvít örenda á gólfinu.
+
+[Illustration]
+
+Þeir tóku hana upp og sáu þegar, að hún var mikils til
+ofstrengd um mittið. þeir sprettu af henni klæðunum og skáru á
+mittisbandið, og raknaði þá Mjallhvít brátt við aptur. En þegar
+dvergarnir heyrðu hvernig á stóð, sögðu þeir: "Hin gamla sölukona hefur
+engin önnur verið en drottningin, stjúpa þín. Varaðu þig, Mjallhvít, og
+lofaðu engum lifandi manni inn til þín, þegar þú ert ein heima."
+
+En þegar hin vonda kona var heim komin, gekk hún að speglinum, hróðug
+mjög í huga, og segir:
+
+
+ "Spegill, spegill, herm þú: hver
+ hjer á landi fríðust er!"
+
+
+Þá svaraði spegillinn, og sagði:
+
+
+ "Frú mín drottning, fríðust ert þú,
+ fríðari öllum sem hjer eru nú;
+ en Mjallhvít, sem fór yfir fjöllin þau sjö,
+ og fæðist nú upp hjá þeim dvergunum sjö,
+ er þúsund-falt fríðari en þú!"
+
+
+Þegar drottningin heyrði þetta, þá varð hún svo reið, að þá lá við að
+hún fjelli í ómegin; því hún sá, að Mjallhvít var enn á lífi. Hún fór þá
+aptur að hugsa sjer upp ráð til þess, að stytta henni aldur, og bjó nú
+til svo baneitraða hárgreiðu, að hver sem greiddi sjer með henni varð að
+deyja. Síðan tók hún að nýju á sig gerfi gamallar konu, en allt öðruvísi
+en hið fyrra skiptið, og gekk til dvergabæjarins í skóginum. Þar barði
+hún að dyrum og sagði:
+
+[Illustration]
+
+"Góðan varning, gott verð!" Mjallhvít leit út um gluggann og mælti: "Jeg
+má ekki lofa neinum lifandi manni inn í bæinn." Þá segir kerling: "Sko,
+eru þetta ekki fallegar hárgreiður?" og um leið sýndi hún henni eitruðu
+greiðuna.
+
+Mjallhvít leizt svo vel á greiðuna, að hún lauk upp bæjarhurðinni, og
+keypti hana. Þá segir kerling: "Má jeg ekki greiða þjer, barnið gott?"
+Mjallhvít komu engin svik í hug, og kerling var þegar farin að greiða
+henni. Fjell hún þá undir eins dauð niður; því svo var eitrið í
+greiðunni magnað. "Nú vona jeg að það verði bið á því, að þú lifnir við
+aptur," sagði kerling, og skundaði heim til sín. En það vildi svo vel
+til, að dvergarnir komu þá heim í sömu svifunum. Þegar þeir sáu hvernig
+komið var, grunaði þá undir eins, að það mundi vera af völdum hinnar
+vondu drottningar. Þeir leituðu á Mjallhvít, og fundu loksins eitruðu
+greiðuna í hári hennar því drottning hafði látið hana vera þar kyrra
+til þess ab eitrið úr henni neytti sín betur. Þeir tóku greiðuna burtu,
+og raknaði Mjallhvít þá bráðum við aptur. Þegar hún var komin til
+sjálfrar sín, sagði hún dvergunum upp alla sögu, en þeir áminntu hana
+enn, og bönnuðu henni strengilega að ljúka bænum upp fyrir nokkrum, sem
+þangað kæmi á daginn.
+
+Þegar drottningin kom heim, gekk hún fyrir spegilinn, hróðug í huga, og
+segir:
+
+[Illustration]
+
+
+ "Spegill, spegill, herm þú: hver
+ hjer á landi fríðust er!"
+
+
+Þá svaraði spegillinn og sagði:
+
+
+ "Frú mín, drottning, fríðust ert þú,
+ fríðari öllum, sem hjer eru nú;
+ en Mjallhvít, sem fór yfir fjöllin þau sjö,
+ og fæðist nú upp hjá þeim dvergunum sjö,
+ er þúsund-falt fríðari en þú!"
+
+
+Þegar drottning heyrði það ætlaði hún að rifna af reiði og illsku, og
+sagði með heiptarhuga: "Mjallhvít skal deyja, hvað sem hver segir, og
+hvað sem það kostar!" Síðan gekk hún inn í afhús eitt, sem enginn kom
+inn í nema hún, og bjó þar til ógnarlega eitrað epli. Það var harla
+fagurt á að líta, og girnilegt mjög að borða; en það var baneitrað
+öðrumegin. Þegar eplið var til búið, þá breytti drottning andlitslit
+sínum og andlitslagi, og bjó sig eins og bóndakonu. Þannig út búin fór
+hún á stað, og gekk til dvergabæjarins. Þar barði hún að dyrum.
+Mjallhvít leit út um gluggann og segir: "Jeg má ekki leyfa neinum manni
+að koma hjer inn fyrir dyr; því dvergarnir hafa harðlega bannað það."
+
+"Það er öldungis rjett gjört, barnið gott!"--segir kerling.--"Margur er
+maðurinn, og hver veit nema hingað kæmi einhver óráðvandur, sem ætlaði
+að gjöra þjer eitthvað íllt. En þjer er óhætt að lofa mjer að koma inn
+til þín; því jeg ætla ekki að gjöra þjer neitt íllt."
+
+"Dvergarnir hafa bannað mjer það, og jeg leyfi engum inn, hversu fallega
+sem hann talar," segir Mjallhvít.
+
+[Illustration]
+
+"Þá það!" segir kerling. "Við erum eins góðir vinir fyrir það, þó jeg
+fái ekki að koma inn til þín í bæinn. Jeg er ekki hrædd um, að eplin
+min gangi ekki út, þó þú kaupir þau ekki. En, heyrðu, þarna er eitt
+epli, sem jeg ætla að gefa þjer."--"Nei, jeg vil það ekki," segir
+Mjallhvít.--"Ha, ha! þú ert þó aldrei hrædd um að það sje óætt eða
+eitrað, vænti jeg," segir kerling. "Sko, jeg ætla þá sjálf að borða
+helminginn af því, svo þú getir ímyndað þjer, hvort hinn helmingurinn
+muni vera nokkurt óæti." En eplið var svo kænlega til búið, að það var
+ekki nema hálft eitrað.
+
+Mjallhvít gat nú ekki staðið það af sjer að borða hinn fagurrauða
+eplishelming, þegar hún sá, að kerlingin hikaði sjálf ekki við að borða
+hinn helminginn af því. Hún tók við því og beit í það, en óðar en hún
+var búin að renna niður fyrsta munnbitanum, hreif eitrið á hana, svo að
+hún datt niður á gólfið eins og dauð. Þá var hinni vondu konu skemmt, og
+hún sagði: "Nú þykir mjer gaman að vita, hvenær þú raknar við aptur."
+Síðan skundaði hún heim aptur í ríkið sitt, gekk fyrir spegilinn til
+þess að svala gleði sinni, og sagði hróðug í huga:
+
+
+ "Spegill, spegill, herm þú: hver
+ hjer á landi fríðust er!"
+
+
+Þá svaraði spegillinn:
+
+
+ "Frú mín, drottning, fegri þjer
+ finnst ei nein á landi hjer!"
+
+
+Nú var hin vonda kona ánægð; hún var svo ánægð með sjálfri sjer, sem
+slíkri konu er framast unnt að vera. En þegar dvergarnir komu heim til
+sín um kveldið, þá fundu þeir Mjallhvít örenda á gólfinu.
+
+[Illustration]
+
+Þeir hófu hana á lopt, leituðu á henni að eitri, leystu af henni
+mittisbandið, þvoðu hana alla upp, greiddu hár hennar, og reyndu allt,
+sem þeim datt í hug, en það var allt saman til einskis. Mjallhvít
+raknaði ekki við; því hún var dáin. Þá lögðu dvergarnir hana til,
+settust allir sjö niður hjá líkinu og grjetu yfir því í samfleytta þrjá
+daga. Þá ætluðu þeir að jarða Mjallhvít. En hún leit svo vel út, og
+hafði enn tapað sjer svo lítið, að það var ekki annað sjáanlegt, en að
+hún svæfi. "Það er ógjörningur að leggja hana Mjallhvít, svona fríða og
+fallega, niður í hið dimma skaut jarðarinnar" sögðu dvergarnir. Þeir
+ljetu þá smíða utan um hana gagnsæa krystalls-líkkistu. Þar lögðu þeir
+Mjallhvít í, rituðu nafn hennar og það, að hún væri konungsdóttir, með
+gullstöfum á kistulokið. Síðan settu þeir kistuna út á fjallið, og gættu
+hennar. Fuglarnir komu þar og að, og syrgðu hina fríðu mey, fyrst uglan,
+svo hrafninn og seinast dúfan.
+
+[Illustration]
+
+Mjallhvít lá nú lengi, lengi í kistunni og rotnaði ekki, heldur leit
+hún allt af svo út, eins og hún væri lifandi og svæfi. Hún var enn hvít
+eins og mjöll, rauð eins og blóð, og svört eins og "íbenholt." Þá bar
+svo til einu sinni, að konungssonur nokkur, sem þar var á dýraveiðum í
+skóginum, kom til dvergabæjarins, og bað um næturgistingu.
+
+Konungssonurinn sá þá kistuna á fjallinu og Mjallhvít þar í, og hann las
+gullletrið á lokinu. Þá sagði hann við dvergana: "Látið mig fá kistuna
+með henni Mjallhvít í; jeg skal borga hana eins og upp á er sett."--En
+dvergarnir sögðu: "Vjer látum hana ekki fyrir allt gull og gersemar
+heimsins."--Þá sagði konungssonurinn: "Gefið mjer hana þá; því jeg get
+ekki lifað án hennar Mjallhvítar. Jeg ætla að fara með hana eins og
+dýrmætasta hlutinn í eigu minni." Þegar dvergarnir heyrðu þetta,
+aumkuðust þeir yfir hann og gáfu honum krystalls-líkkistuna með
+Mjallhvít í. Konungssonurinn varð þá svo feginn, að hann hoppaði upp af
+gleði, og ljet menn sína bera hana burtu þaðan á herðunum. En það vildi
+svo til, þegar þeir báru kistuna niður af fjallinu, að
+þeim skrikaði fótur, og við hristinginn, sem þá kom á kistuna, hrökk
+eplisbitinn upp úr hálsinum á Mjallhvít; því hún hafði aldrei rennt
+honum niður. Mjallhvít lifnaði þá undir eins við aptur, og settist upp í
+kistunni.
+
+[Illustration]
+
+Þá sagði hún: "Guð hjálpi mjer! hvar er jeg?" En konungssonurinn rjeði
+sjer varla fyrir gleði og segir: "Þú ert hjá mjer!" Síðan sagði hann
+henni upp alla söguna, eins og dvergarnir höfðu sagt honum hana, og
+mælti: "Jeg elska þig meira en allt annað i heiminum; kom þú nú heim með
+mjer í ríkið mitt, og svo skalt þú verða konan mín."
+
+Mjallhvít fjekk nú bráðum góðan þokka á konungssyninum, og síðan var
+allt búið undir brúðkaup þeirra.
+
+Meðal þeirra, sem boðnir voru til brúðkaupsins, var drottningin, stjúpa
+Mjallhvítar. Þegar hún var búin að búa sig svo vel sem hún gat, og hlaða
+utan á sig gulli og gimsteinum, þá gekk hún fyrir spegilinn og mælti:
+
+[Illustration]
+
+
+ "Spegill, spegill, herm þú: hver
+ hjer à landi fríðust er!"
+
+
+Þá svaraði spegillinn:
+
+
+ "Frú mín, drottning, fríð eins og engill þú er,
+ en af þjer samt í fríðleika hin unga drottning ber!"
+
+
+Þegar drottningin heyrði þetta, varð hún öldungis hamslaus af hræðslu og
+bræði, og var komin á fremsta hlunn með að hætta að fara til
+brúðkaupsins. En öfundin rak hana áfram, og hún gat ekki á sjer setið,
+að sjá þó þessa nýju drottningu. En þegar hún kom inn í veizlusalinn,
+var hún nærri því liðin í óvit af ótta; því hún sá, að hin unga
+drottning var engin önnur en Mjallhvít.--En þar stóðu járnskór á
+eldinum, og þegar þeir voru orðnir hvítglóandi, þá varð hin gamla
+drottning að setja þá upp, og dansa á þeim, þangað til hún datt dauð
+niður. Það voru launin, sem hún fjekk fyrir alla meðferðina á Mjallhvít.
+
+[Illustration]
+
+
+
+
+
+
+
+End of the Project Gutenberg EBook of Mjallhvít, by Anonymous
+
+*** END OF THIS PROJECT GUTENBERG EBOOK MJALLHVÍT ***
+
+***** This file should be named 16846-8.txt or 16846-8.zip *****
+This and all associated files of various formats will be found in:
+ https://www.gutenberg.org/1/6/8/4/16846/
+
+Produced by Jóhannes Birgir Jensson and the Project
+Gutenberg Online Distributed Proofreading Team
+
+
+Updated editions will replace the previous one--the old editions
+will be renamed.
+
+Creating the works from public domain print editions means that no
+one owns a United States copyright in these works, so the Foundation
+(and you!) can copy and distribute it in the United States without
+permission and without paying copyright royalties. Special rules,
+set forth in the General Terms of Use part of this license, apply to
+copying and distributing Project Gutenberg-tm electronic works to
+protect the PROJECT GUTENBERG-tm concept and trademark. Project
+Gutenberg is a registered trademark, and may not be used if you
+charge for the eBooks, unless you receive specific permission. If you
+do not charge anything for copies of this eBook, complying with the
+rules is very easy. You may use this eBook for nearly any purpose
+such as creation of derivative works, reports, performances and
+research. They may be modified and printed and given away--you may do
+practically ANYTHING with public domain eBooks. Redistribution is
+subject to the trademark license, especially commercial
+redistribution.
+
+
+
+*** START: FULL LICENSE ***
+
+THE FULL PROJECT GUTENBERG LICENSE
+PLEASE READ THIS BEFORE YOU DISTRIBUTE OR USE THIS WORK
+
+To protect the Project Gutenberg-tm mission of promoting the free
+distribution of electronic works, by using or distributing this work
+(or any other work associated in any way with the phrase "Project
+Gutenberg"), you agree to comply with all the terms of the Full Project
+Gutenberg-tm License (available with this file or online at
+https://gutenberg.org/license).
+
+
+Section 1. General Terms of Use and Redistributing Project Gutenberg-tm
+electronic works
+
+1.A. By reading or using any part of this Project Gutenberg-tm
+electronic work, you indicate that you have read, understand, agree to
+and accept all the terms of this license and intellectual property
+(trademark/copyright) agreement. If you do not agree to abide by all
+the terms of this agreement, you must cease using and return or destroy
+all copies of Project Gutenberg-tm electronic works in your possession.
+If you paid a fee for obtaining a copy of or access to a Project
+Gutenberg-tm electronic work and you do not agree to be bound by the
+terms of this agreement, you may obtain a refund from the person or
+entity to whom you paid the fee as set forth in paragraph 1.E.8.
+
+1.B. "Project Gutenberg" is a registered trademark. It may only be
+used on or associated in any way with an electronic work by people who
+agree to be bound by the terms of this agreement. There are a few
+things that you can do with most Project Gutenberg-tm electronic works
+even without complying with the full terms of this agreement. See
+paragraph 1.C below. There are a lot of things you can do with Project
+Gutenberg-tm electronic works if you follow the terms of this agreement
+and help preserve free future access to Project Gutenberg-tm electronic
+works. See paragraph 1.E below.
+
+1.C. The Project Gutenberg Literary Archive Foundation ("the Foundation"
+or PGLAF), owns a compilation copyright in the collection of Project
+Gutenberg-tm electronic works. Nearly all the individual works in the
+collection are in the public domain in the United States. If an
+individual work is in the public domain in the United States and you are
+located in the United States, we do not claim a right to prevent you from
+copying, distributing, performing, displaying or creating derivative
+works based on the work as long as all references to Project Gutenberg
+are removed. Of course, we hope that you will support the Project
+Gutenberg-tm mission of promoting free access to electronic works by
+freely sharing Project Gutenberg-tm works in compliance with the terms of
+this agreement for keeping the Project Gutenberg-tm name associated with
+the work. You can easily comply with the terms of this agreement by
+keeping this work in the same format with its attached full Project
+Gutenberg-tm License when you share it without charge with others.
+
+1.D. The copyright laws of the place where you are located also govern
+what you can do with this work. Copyright laws in most countries are in
+a constant state of change. If you are outside the United States, check
+the laws of your country in addition to the terms of this agreement
+before downloading, copying, displaying, performing, distributing or
+creating derivative works based on this work or any other Project
+Gutenberg-tm work. The Foundation makes no representations concerning
+the copyright status of any work in any country outside the United
+States.
+
+1.E. Unless you have removed all references to Project Gutenberg:
+
+1.E.1. The following sentence, with active links to, or other immediate
+access to, the full Project Gutenberg-tm License must appear prominently
+whenever any copy of a Project Gutenberg-tm work (any work on which the
+phrase "Project Gutenberg" appears, or with which the phrase "Project
+Gutenberg" is associated) is accessed, displayed, performed, viewed,
+copied or distributed:
+
+This eBook is for the use of anyone anywhere at no cost and with
+almost no restrictions whatsoever. You may copy it, give it away or
+re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included
+with this eBook or online at www.gutenberg.org
+
+1.E.2. If an individual Project Gutenberg-tm electronic work is derived
+from the public domain (does not contain a notice indicating that it is
+posted with permission of the copyright holder), the work can be copied
+and distributed to anyone in the United States without paying any fees
+or charges. If you are redistributing or providing access to a work
+with the phrase "Project Gutenberg" associated with or appearing on the
+work, you must comply either with the requirements of paragraphs 1.E.1
+through 1.E.7 or obtain permission for the use of the work and the
+Project Gutenberg-tm trademark as set forth in paragraphs 1.E.8 or
+1.E.9.
+
+1.E.3. If an individual Project Gutenberg-tm electronic work is posted
+with the permission of the copyright holder, your use and distribution
+must comply with both paragraphs 1.E.1 through 1.E.7 and any additional
+terms imposed by the copyright holder. Additional terms will be linked
+to the Project Gutenberg-tm License for all works posted with the
+permission of the copyright holder found at the beginning of this work.
+
+1.E.4. Do not unlink or detach or remove the full Project Gutenberg-tm
+License terms from this work, or any files containing a part of this
+work or any other work associated with Project Gutenberg-tm.
+
+1.E.5. Do not copy, display, perform, distribute or redistribute this
+electronic work, or any part of this electronic work, without
+prominently displaying the sentence set forth in paragraph 1.E.1 with
+active links or immediate access to the full terms of the Project
+Gutenberg-tm License.
+
+1.E.6. You may convert to and distribute this work in any binary,
+compressed, marked up, nonproprietary or proprietary form, including any
+word processing or hypertext form. However, if you provide access to or
+distribute copies of a Project Gutenberg-tm work in a format other than
+"Plain Vanilla ASCII" or other format used in the official version
+posted on the official Project Gutenberg-tm web site (www.gutenberg.org),
+you must, at no additional cost, fee or expense to the user, provide a
+copy, a means of exporting a copy, or a means of obtaining a copy upon
+request, of the work in its original "Plain Vanilla ASCII" or other
+form. Any alternate format must include the full Project Gutenberg-tm
+License as specified in paragraph 1.E.1.
+
+1.E.7. Do not charge a fee for access to, viewing, displaying,
+performing, copying or distributing any Project Gutenberg-tm works
+unless you comply with paragraph 1.E.8 or 1.E.9.
+
+1.E.8. You may charge a reasonable fee for copies of or providing
+access to or distributing Project Gutenberg-tm electronic works provided
+that
+
+- You pay a royalty fee of 20% of the gross profits you derive from
+ the use of Project Gutenberg-tm works calculated using the method
+ you already use to calculate your applicable taxes. The fee is
+ owed to the owner of the Project Gutenberg-tm trademark, but he
+ has agreed to donate royalties under this paragraph to the
+ Project Gutenberg Literary Archive Foundation. Royalty payments
+ must be paid within 60 days following each date on which you
+ prepare (or are legally required to prepare) your periodic tax
+ returns. Royalty payments should be clearly marked as such and
+ sent to the Project Gutenberg Literary Archive Foundation at the
+ address specified in Section 4, "Information about donations to
+ the Project Gutenberg Literary Archive Foundation."
+
+- You provide a full refund of any money paid by a user who notifies
+ you in writing (or by e-mail) within 30 days of receipt that s/he
+ does not agree to the terms of the full Project Gutenberg-tm
+ License. You must require such a user to return or
+ destroy all copies of the works possessed in a physical medium
+ and discontinue all use of and all access to other copies of
+ Project Gutenberg-tm works.
+
+- You provide, in accordance with paragraph 1.F.3, a full refund of any
+ money paid for a work or a replacement copy, if a defect in the
+ electronic work is discovered and reported to you within 90 days
+ of receipt of the work.
+
+- You comply with all other terms of this agreement for free
+ distribution of Project Gutenberg-tm works.
+
+1.E.9. If you wish to charge a fee or distribute a Project Gutenberg-tm
+electronic work or group of works on different terms than are set
+forth in this agreement, you must obtain permission in writing from
+both the Project Gutenberg Literary Archive Foundation and Michael
+Hart, the owner of the Project Gutenberg-tm trademark. Contact the
+Foundation as set forth in Section 3 below.
+
+1.F.
+
+1.F.1. Project Gutenberg volunteers and employees expend considerable
+effort to identify, do copyright research on, transcribe and proofread
+public domain works in creating the Project Gutenberg-tm
+collection. Despite these efforts, Project Gutenberg-tm electronic
+works, and the medium on which they may be stored, may contain
+"Defects," such as, but not limited to, incomplete, inaccurate or
+corrupt data, transcription errors, a copyright or other intellectual
+property infringement, a defective or damaged disk or other medium, a
+computer virus, or computer codes that damage or cannot be read by
+your equipment.
+
+1.F.2. LIMITED WARRANTY, DISCLAIMER OF DAMAGES - Except for the "Right
+of Replacement or Refund" described in paragraph 1.F.3, the Project
+Gutenberg Literary Archive Foundation, the owner of the Project
+Gutenberg-tm trademark, and any other party distributing a Project
+Gutenberg-tm electronic work under this agreement, disclaim all
+liability to you for damages, costs and expenses, including legal
+fees. YOU AGREE THAT YOU HAVE NO REMEDIES FOR NEGLIGENCE, STRICT
+LIABILITY, BREACH OF WARRANTY OR BREACH OF CONTRACT EXCEPT THOSE
+PROVIDED IN PARAGRAPH F3. YOU AGREE THAT THE FOUNDATION, THE
+TRADEMARK OWNER, AND ANY DISTRIBUTOR UNDER THIS AGREEMENT WILL NOT BE
+LIABLE TO YOU FOR ACTUAL, DIRECT, INDIRECT, CONSEQUENTIAL, PUNITIVE OR
+INCIDENTAL DAMAGES EVEN IF YOU GIVE NOTICE OF THE POSSIBILITY OF SUCH
+DAMAGE.
+
+1.F.3. LIMITED RIGHT OF REPLACEMENT OR REFUND - If you discover a
+defect in this electronic work within 90 days of receiving it, you can
+receive a refund of the money (if any) you paid for it by sending a
+written explanation to the person you received the work from. If you
+received the work on a physical medium, you must return the medium with
+your written explanation. The person or entity that provided you with
+the defective work may elect to provide a replacement copy in lieu of a
+refund. If you received the work electronically, the person or entity
+providing it to you may choose to give you a second opportunity to
+receive the work electronically in lieu of a refund. If the second copy
+is also defective, you may demand a refund in writing without further
+opportunities to fix the problem.
+
+1.F.4. Except for the limited right of replacement or refund set forth
+in paragraph 1.F.3, this work is provided to you 'AS-IS' WITH NO OTHER
+WARRANTIES OF ANY KIND, EXPRESS OR IMPLIED, INCLUDING BUT NOT LIMITED TO
+WARRANTIES OF MERCHANTIBILITY OR FITNESS FOR ANY PURPOSE.
+
+1.F.5. Some states do not allow disclaimers of certain implied
+warranties or the exclusion or limitation of certain types of damages.
+If any disclaimer or limitation set forth in this agreement violates the
+law of the state applicable to this agreement, the agreement shall be
+interpreted to make the maximum disclaimer or limitation permitted by
+the applicable state law. The invalidity or unenforceability of any
+provision of this agreement shall not void the remaining provisions.
+
+1.F.6. INDEMNITY - You agree to indemnify and hold the Foundation, the
+trademark owner, any agent or employee of the Foundation, anyone
+providing copies of Project Gutenberg-tm electronic works in accordance
+with this agreement, and any volunteers associated with the production,
+promotion and distribution of Project Gutenberg-tm electronic works,
+harmless from all liability, costs and expenses, including legal fees,
+that arise directly or indirectly from any of the following which you do
+or cause to occur: (a) distribution of this or any Project Gutenberg-tm
+work, (b) alteration, modification, or additions or deletions to any
+Project Gutenberg-tm work, and (c) any Defect you cause.
+
+
+Section 2. Information about the Mission of Project Gutenberg-tm
+
+Project Gutenberg-tm is synonymous with the free distribution of
+electronic works in formats readable by the widest variety of computers
+including obsolete, old, middle-aged and new computers. It exists
+because of the efforts of hundreds of volunteers and donations from
+people in all walks of life.
+
+Volunteers and financial support to provide volunteers with the
+assistance they need, is critical to reaching Project Gutenberg-tm's
+goals and ensuring that the Project Gutenberg-tm collection will
+remain freely available for generations to come. In 2001, the Project
+Gutenberg Literary Archive Foundation was created to provide a secure
+and permanent future for Project Gutenberg-tm and future generations.
+To learn more about the Project Gutenberg Literary Archive Foundation
+and how your efforts and donations can help, see Sections 3 and 4
+and the Foundation web page at https://www.pglaf.org.
+
+
+Section 3. Information about the Project Gutenberg Literary Archive
+Foundation
+
+The Project Gutenberg Literary Archive Foundation is a non profit
+501(c)(3) educational corporation organized under the laws of the
+state of Mississippi and granted tax exempt status by the Internal
+Revenue Service. The Foundation's EIN or federal tax identification
+number is 64-6221541. Its 501(c)(3) letter is posted at
+https://pglaf.org/fundraising. Contributions to the Project Gutenberg
+Literary Archive Foundation are tax deductible to the full extent
+permitted by U.S. federal laws and your state's laws.
+
+The Foundation's principal office is located at 4557 Melan Dr. S.
+Fairbanks, AK, 99712., but its volunteers and employees are scattered
+throughout numerous locations. Its business office is located at
+809 North 1500 West, Salt Lake City, UT 84116, (801) 596-1887, email
+business@pglaf.org. Email contact links and up to date contact
+information can be found at the Foundation's web site and official
+page at https://pglaf.org
+
+For additional contact information:
+ Dr. Gregory B. Newby
+ Chief Executive and Director
+ gbnewby@pglaf.org
+
+
+Section 4. Information about Donations to the Project Gutenberg
+Literary Archive Foundation
+
+Project Gutenberg-tm depends upon and cannot survive without wide
+spread public support and donations to carry out its mission of
+increasing the number of public domain and licensed works that can be
+freely distributed in machine readable form accessible by the widest
+array of equipment including outdated equipment. Many small donations
+($1 to $5,000) are particularly important to maintaining tax exempt
+status with the IRS.
+
+The Foundation is committed to complying with the laws regulating
+charities and charitable donations in all 50 states of the United
+States. Compliance requirements are not uniform and it takes a
+considerable effort, much paperwork and many fees to meet and keep up
+with these requirements. We do not solicit donations in locations
+where we have not received written confirmation of compliance. To
+SEND DONATIONS or determine the status of compliance for any
+particular state visit https://pglaf.org
+
+While we cannot and do not solicit contributions from states where we
+have not met the solicitation requirements, we know of no prohibition
+against accepting unsolicited donations from donors in such states who
+approach us with offers to donate.
+
+International donations are gratefully accepted, but we cannot make
+any statements concerning tax treatment of donations received from
+outside the United States. U.S. laws alone swamp our small staff.
+
+Please check the Project Gutenberg Web pages for current donation
+methods and addresses. Donations are accepted in a number of other
+ways including including checks, online payments and credit card
+donations. To donate, please visit: https://pglaf.org/donate
+
+
+Section 5. General Information About Project Gutenberg-tm electronic
+works.
+
+Professor Michael S. Hart was the originator of the Project Gutenberg-tm
+concept of a library of electronic works that could be freely shared
+with anyone. For thirty years, he produced and distributed Project
+Gutenberg-tm eBooks with only a loose network of volunteer support.
+
+
+Project Gutenberg-tm eBooks are often created from several printed
+editions, all of which are confirmed as Public Domain in the U.S.
+unless a copyright notice is included. Thus, we do not necessarily
+keep eBooks in compliance with any particular paper edition.
+
+
+Most people start at our Web site which has the main PG search facility:
+
+ https://www.gutenberg.org
+
+This Web site includes information about Project Gutenberg-tm,
+including how to make donations to the Project Gutenberg Literary
+Archive Foundation, how to help produce our new eBooks, and how to
+subscribe to our email newsletter to hear about new eBooks.